Fálkinn


Fálkinn - 14.12.1964, Blaðsíða 13

Fálkinn - 14.12.1964, Blaðsíða 13
ið, gengju fyrir, ef til kæmi að meiri starfskrafta þyrfti. Jóhanna var aðeins búin að vinna þarna stuttan tíma, hún gerði sér því engar vonir um að fá að vera áfram, það var fjarri henni að álíta, að slíkt kæmi til greina. Nei, hún gerði sér engar tyllivonir, hún þekkti lífið og erfiðleikana við fá- tæktina. Hún mundi baráttuna ASTVMD á meðan hún leitaði sér að at- vinnu, — einhverju vissu starfi, sem hún mætti treysta á, — og óttann um það, að þær myndu ekki hafa nóg fyrir sig að bera, hún og móðir henn- ar, á meðan hún var að læra. Svo fékk hún vinnu á sauma- stofunni. En hvað hún var sæl fyrst þegar henni voru borguð út mánaðarlaunin. Öll framtíð- in brosti við henni, — móðir hennar var borgið, hún gat ver- ið áhyggjulaus. Jóhanna hristi höfuðið. En hvað hún var lengi að vaxa upp úr barnaskapnum upp í fullþroska manneskju. — Svona, hafðu þetta, sagði reynsluleysi hennar. — Skildu lífið, það gerir þá kröfu til þín. Já, já hún vissi það. En það var sársauki í sál hennar yfir því, hvað starf hennar varð endasleppt hér, henni fannst það lamandi fyrir traust sitt og æsku. Jóhanna gekk í hægðum sín- um heimleiðis hálf vansæl og áhyggjufull. „Þú ert þó ekki lasin, góða mín?“ sagði frú Áslaug við dóttur sína er Þær höfðu setið inni dálitla stund. Jóhanna hrökk við, þegar hún heyrði spurningu móður sinnar. Hún leit upp stórum, dökkum augunum og tautaði svo undarlega yfirbuguð: — „Lasin, nei, það er ég ekki." — En henni var býsna þungt um andardráttinn. En hvað allt var ömurlegt, og hvers vegna datt móður hennar í hug að vera að spyrja hana að þessu? Jóhanna ýtti saumadótinu sínu frá sér. Hún hafði verið ákveðin í að segja móður sinni ekki frá, hvernig komið væri, fyrr en eftir jólin, en var hún þá svo veikgeðja, að hún gæti ekki leynt hugar- angri sínu fyrir árvökrum augum hennar? Frú Áslaug þagði. Hún hálf sá eftir að hafa vakið máls á þessu við dóttur sína, víst myndi hún tjá henni áhyggjuefni sín nú ekki síður en endranær, aðeins þegar hún hefði hugsað þau nægilega sjálf. — En síðan Jóhanna fékk þessa vinnú, hafði hún alltaf verið vonglöð og’ örúgg,' það var orðið nýtt að sjá áhyggjur á svip hennar. Frú Áslaug dró þáð heldur ekki í efa, að dóttir hennar mundi nu sém fyrr, treysta þeim, er ávallt hafði gefið henni kjark og kraft í margs kónar erfiðleikum, og vissulega mundi gleðin og jafnvægið ná til þeirra; fyrir blessaða jólahátí^iná eins og svo oft áður, þegar vonin lifði og yfirgaf þær ekki, þrátf fyrir.þéttari skugga en nú voru á vegi þeirra. Aðfangadagurinn rann upp. Veðrið var svo stillt, að ekki blakti hár á höfði. Snjór huldi göturnar, hann sat jafnfallinn á hús- þökum, girðingum og greinum trjánna. Lognið hafði gefið honum næði til að dreifa alls staðar jafnt sinni hvítu ábreiðu. — Hreinleikinn og hátíðarblærinn var svo auðsær, að jafnvel hver skepna myndi á sinn hátt skynja það, að hátíð væri í nánd. Fólkið, sem gekk um göturnar, varð ósjálfrátt hljóðlátara en venjulega og á saumastofunni, þar sem Jóhanna vann, var lítið talað. Flestir voru þöglir og venju fremur kappsamir við að leggja síðustu hönd á það, sem lofað hafði verið fyrir jólin. Jóhanna kepptist við. Hún var þakklát fyrir þögnina, og henni var óvenju rótt í huga. Það var líklega nálægð jólahátíðar- innar, sem gerði skap hennar svo rólegt og hjartaslögin svo jöfn og hæg. Hún ósk- aði þess þó í huga sínum, að lífsbarátta hennar væri ekki eins erfið og raun var á svo að stöðugar áhyggjur gagnvart móður hennar sviptu hana ekki jafn oft sálarró. Hún vissi, að ’tækist henni ekki að vinna fyrir henni og sér, áttu þær engan að, sem myndi hjálpa. Jóhanna reyndi að hugsa ekki, reyndi að fá tímann til að líða, verkið til að vinnast og huga sinn til að fljóta með í áhyggju- leysi, — og þó var hún ekki of góð, frekar en aðrar manneskjur, til að horfast í augu við kjör sín og aðstöðu til lífsins, — berjast, — sigra, — eða hníga 1 valinn. En móðir hennar gat ekki lengur barizt. Hún var búin að heyja sína baráttu, og ekk- ert yrði sárari raun fyrir Jóhönnu en það, ef hún, — eins og margar mæður máttu reyna á efri árum sínum, yrði verra en ein, þrátt fyrir börn sín. Einstæðingsmanneskjan hafði ekki eftir neinu að vonast, — en móðir, sem hafði annazt með kærleika og fórrifýsi um börnin sín, hún átti að geta verið örugg’*um umönnun þeirra á efri ár- um. — Jóhanna fékk sting í hjartað. Hún marnma hennar mátti ekki verða ein af öll- um konunum. sem rsatu einar og snauðar þrátt fyrir börnin ög allar hyllingarnar og vonirnar, á meðan þær héldu þeim í örmum sínum. Það kvaddi hver af öðrum á saumastof- unni og bauð gleðileg jól. Jóhanna var við- utan, henni fannst því líkast, að hún sæi starfssystkini sín sem í draumi, hverfa hvert af öðru út í snjóinn og hátíðablæinn. Nú var hún sjálf alveg að enda við sína flík, hendur hennar unnu af kappi en hugur hennar var fjarrænn og undarlega stemmdur. — Þarna kom umsjónarmaðurinn' og tók við jakkan- um, sem hún hafði verið að leggja síðustu hönd á. Þá var starfinu lokið fyrir hátíðina, henni var frjálst að fara. Jóhanna hristi af sér deyfðina. — Æ, bara að hún hefði mátt sitja og sauma og hugsa ekki um annað en verkið, sem varð að vinna. Gleyma umhverfinu og hvað hennar beið á nýja árinu, að sækja vonandi og biðjandi til vinnuveitendanna, leitandi að atvinnu. hún þekkti minnimáttarkenndina, sem það vakti og kannaðist við áhrif vonbrigðanna, þegar málaleitunin bar engan árangur. Jóhanna tók ekki eftir helgiblænum, sem hvíldi yfir snjóbreiðunni eða hljóðleikanum, sem einkenndi fólkið. Eftirvænting spyrj- andi barnsaugnanna fór einnig framhjá henni, Framhald á bls. 48. 13 FALKINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.