Fálkinn


Fálkinn - 14.12.1964, Blaðsíða 71

Fálkinn - 14.12.1964, Blaðsíða 71
IÐUNHARSKÓR Á AllA FJÖISKVIDUNA CUDÖ tvöfaltCUdOeinanqrunarqler vörumerkid sem húsbyqqjandinn treystir skulaqata 26 simi 12056 eðlis, enginn málflutningur eða annað slíkt til að lífga upp á þurrar teoríur. Auk þess var námsmórallinn lélegur, og ég smitaðist af hinum ríkjandi anda. Ég lauk prófi, en stóð mig engan veginn glæsilega, og feginn varð ég að geta lok- að öllum lögfræðiskruddun- um.“ Karpað í bróðerni á skrifstofu landlæknis, „Síðan fórstu að vinna hjá landlækni?" „Ja, að vísu stundaði ég tungumálakennslu í nokkur ár, áður en ég réðst þangað, en lengst af hef ég unnið á skrif- stofu landlæknis.“ „Og ekki hefur þér tekizt að sannfæra Vilmund Jónsson um ágæti hinna guðspekilegu fræða?“ „Nei, og fyrir bragðið gát- um við karpað f bróðerni og strítt hvor öðrum báðum til skemmtunar í okkar eilífu deilumálum. Það var örvandi að vera daglega samvistum við gáfumann með víðtæk áhuga- mál, og þótt við værum á önd- verðum meiði í andlegum efn- um, Vilmundur og ég, héldum við okkur jafnan við regluna: ,í góðsemi vegur þar hver annan‘.“ „Hvenær tókstu við forystu Guðspekifélagsins hérlendis?“ „Það var árið 1935. Þá voru erfiðir tímar fyrir félagið, stefnubreyting Krishnamurtis hafði valdið miklum truflun- um, og tilfinningar fólks voru á róti. En ég var sannfærður um, að enginn goluþytur nýrra kenninga gæti haggað grund- vallaratriðum guðspekinnar, og ég lagði höfuðáherzlu á fræði- lega afstöðu til hennar 1 fyrir- lestrum mínum, fræðilega, ó- persónulega afstöðu, sem ekki væri um of háð sveiflum til- finningalífsins. Hin heimspeki- lega, fræðilega hlið guðspek- innar hefur alltaf átt betur við lunderni mitt en trúarhlið- in og það er hún, sem ég hef ævinlega reynt að boða og mun ævinlega halda mér við.“ Alltaf verið andlega sinnuð. „Hvað um þig, Svava — hvernig fékkst þú bakteríuna?“ „Ja, ég hef alltaf verið and- lega sinnuð, frá því að ég man eftir mér. Ég hef aldrei efazt um annað líf að þessu loknu, og mig hefur alltaf hungrað og þyrst í fróðleik um dulræn mál. Þegar ég var sjö ára, man ég, að ég las rit nokkurra rétt- trúnaðarpostula, sem þá dvöld- ust á Akureyri, og þar var mikið talað um útskúfun og eilífa glötun. Þetta vakti hjá mér óhug, og ég hafði þungar áhyggjur af sáluhjálp minni, fannst voðalegt að vera ekki frelsuð og óttaðist mjög út- skúfunina eftir dauðann. Lengi á eftir sneiddi ég hjá öllum bókum, sem nefndu Guð á nafn, en las þó alltaf bænirnar mínar á kvöldin, áður en ég fór að sofa. í stað trúarlegra rita sneri ég mér að skáldsög- um og ljóðum, sem ég var mjög gefin fyrir, og lærði mikið af kvæðum utan að. Eftir ferm- ingu fór ég að lesa sr. Harald Níelsson, en hvorki kirkjan né spíritisminn veitti mér veru- lega fullnægingu. Haustið sem ég varð átján ára, fór ég í skóla austur að Eiðum á Hér- aði, og las ég þar fyrst bók um guðspeki. Ég gleymi aldrei þeim sterku áhrifum, sem ég varð fyrir — þetta var bókin ,ÆÐRI HEIMAR* eftir Lead- beater í þýðingu Sigurðar Kristófers Péturssonar, og svo sannarlega fannst mér nýir og bjartir heimar opnast hug- skotssjónum mínum. Ég fyllt- ist hamingju, veröldin var orð- in svo víð og stór og fögur, það var skyndilega svo hátt undir loft í tilverunni... en samtímis fannst mér á ein- hvern dularfullan hátt, að þes3- ar kenningar væru mér ekki nýjar; ég hefði alltaf vitað þetta innst inni.“ Dreymdi um að bæta heiminn. „Hvenær kynntistu svo Gret- ari?“ „Það var ekki fyrr en mörg- um árum seinna. Ég man, að ég las bækur eftir hann, og að þær áttu vel við mig, en ég þekkti hann ekki persónulega á þeim tíma. Ég útskrifaðist úr Kennaraskólanum vorið 1931 og stundaði kennarastörf FÁLKINN 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.