Fálkinn - 14.12.1964, Side 34
Það ríkrr djép kyrrð I stoftmni þeirra hjóna, óhagganlegur
friður, sem minnir á ævagamla, þögla kirkju. Áhrifin frá
ótalmörgum helgiathöfnum virðast enn liggja í loftinu. Einu
sinni var þetta einkennilega súlnaherbergi lokaður salur, sem
aðeins hinir útvöldu fengu aðgang að. Þá var það aðsetur
E. S. eða „innri skóla“ guðspekilegra fræða. Einnig hefur það
verið kirkja frjáls-kaþólskra og fundarsalur sam-frímúrararegl-
unnar. Hér hefur margt verið hugleitt um gátur lífs og dauða,
mikið skrafað og skeggrætt um hin duldu rök tilverunnar.
Og andrúmsloftið er svo þrungið dulúð, að ósjálfrátt sveigj-
ast samræðumar að hjartfólgnasta hugðarefni þeirra Svövu
og Gretars Fells: guðspekinni og ljósi því er hún varpar á
flóknustu vandamál mannlegs lífs.
Guðspekin gerir lífið
aS ævintýri.
„Mér finnst guðspekin í sinni víðustu merkingu fela ALLT
í sér,“ segir Svava. „Lífið 1 öllum sínum myndum, leitina að
sannleikanum, að innsta kjarna allra hluta. Hún er tilraun
til að skilja sjálfan sig og skilja alheiminn, finna þau lög-
mál, sem ríkja á öllum sviðum tilverunnar, og leitast við að
lifa i samræmi við þau. En auðvitað er guðspekin og Guð-
spekifélagið sitt hvað. Félagið er aðeins starfstæki, samtök
fólks af mismunandi kynþáttum, stéttum, trúarskoðunum og
hörundslit, sem trúir á bræðralag mannanna og leitar sann-
leikans eftir ýmsum leiðum, en guðspekin er eitthvað miklu
víðara og stærra — vizka, sem enginn maður, hversu viti-
borinn og þroskaður sem hann er, getur nokkurn tíma tileink-
að sér til fullnustu, a. m. k. ekki fyrr en hann hefur náð því,
sem nefna mætti mannlega fullkomnun.“
Gretar hneigir höfuð sitt til samþykkis. „Guðspekin er í
eðli sínu lífsskilningur,“ bætir hann við. „Hún varpar ljósi á
margar gátur, skærustu ljósi, sem ég veit til, að hafi verið að
þeim beint. Og hún gerir lífið allt að ævintýri.“
Enginn maður á íslandi hefur unnið meira fyrir guðspek-
ina og útbreiðslu guðspekilegra kenninga en Gretar Fells.
Tuttugu og eitt ár var hann forseti íslandsdeildar Guðspeki-
félagsins, tímariti þess, GANGLERA, hefur hann ritstýrt um
nærfellt þrjátíu ára skeið, og ótaldir eru fyrirlestrar hans um
dulræn efni, sumir i útvarpið, eins og alþjóð er kunnugt,
aðrir, og þeir langflestir, á fræðslufundum innan félagsins.
Öll afstaða hans til lífsins og meðbræðra sinna mótast af
guðspekilegum viðhorfum, ljóð hans eru gegnsýrð af guð-
Enginn maður á íslandi mun hafa haldið jafnmarga fyrir-
lestra um dulræn efni og Gretar Fells.
I MUSTERI GUÐSP
iHÍ
MYINiDIR:
RUIMÓLFLR
ELEIMTÍIMLSSOIM
TEXTI:
STEIIMLIMIM S.
BRIEHi
Þau eru samhent í lífi og
starfi, hjónin, og þau kunna
líka að gleðjast og hlæja
saman. Á milli þeirra sést
táknmerki guðspekinnar,
sterkasti tengiliður þeirra í
tuttugu ára hamingjusömu
hjónabandi.