Fálkinn - 21.12.1964, Blaðsíða 9
il
1
Dagur Auðar Eir er iangur. Hún er
eigiukona, móðir þriggja barna,
íögreglukona og guðfræðingur að
mennt. Á kvöldin starfar hún hjá
Hjálpræðishernum. Lesið um einn
dag í iífi þessarar ungu, dugmiklu konu.
Hún rís árla úr rekkju og gengur seint til náða. Dag-
urinn hennar er langur enda er í mörg horn að líta. Hún
er ekki einvörðungu eiginkona, móðir og húsfreyja
heldur lögreglukona að atvinnu og guðfræðingur að
menntun og auk þess ein driffjöðrin í Hjálpræðishern-
um. Hún heitir Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
Þú hefur kannski hlýtt á predikun hjá henni í ein-
hverri kirkjunni, kannski keypt af henni Herópið og
merki Hjálpræðishersins niðri
í Austurstræti og kannski hef-
urðu rakið henni raunir þín-
ar á skrifstofu kvenlögregl-
unnar.
Þau búa á Bárugötu 29 eins
og sakir standa og þangað lögð-
um við leið okkar regnvotan
haustmorgun fyrir skömmu.
Eiginmaður Auðar kennir lat-
ínu og ensku við Menntaskól-
ann og því er ekki kyn þó
fjölskyldan þurfi snemma á
fætur. Að vísu er vekjara-
klukka á heimilinu en má sín
lítils í samkeppni við dæturn-
ar þrjár. Þegar við komum á
Bragagötu 29 á dögunum var
húsbóndinn horfinn í vinnuna,
elzta dóttirin farin í barna-
skóla þó hún sé ekki nema 6
ára, sú yngsta hafði fengið sér
AuSur Eir talar
í símann og
heldur um leið
á yngstu dóttur-
inni, Elínu ÞöII.
Hvenær sem
stund er aflögu,
þá situr Auður
Eir með dætrum
sínum þrem:
Elínu Þöll, Döllu
og Yrsu.