Fálkinn - 21.12.1964, Blaðsíða 19
Jnga, en elnnig skýra frá hug-
lækningum, og er ekki efamál,
að marga mun langa til að
fræðast um þessi mál...“
Bókin er 168 bls., prentuð
í ísafoldarprentsmiðju, en út-
gáfuréttur er höfundarins. Bók-
in kostar kr. 200,00.
Lm ársins hring.
tJr stól. Frá altari.
Yfir moldum.
Nýlega er komin út á vegum
Setbergs Um ársins hring eftir
herra Sigurbjörn Einarsson
biskup. Eins og undirtitill bók-
Sigurbjörn Einarsson, biskup.
arinnar ber með sér, er hún
safn prédikana frá ýmsum
tímum og af ýmsum tilefni
Bókin skiptist í þrjá höfuð-
kafla: Um ársins hring, Rastir
í daganna rás og Minningarorð,
en í þeim kafla eru eftirmæli
um Stein Steinarr, séra Friðrik
Friðriksson, John F. Kennedy
og Davíð Stefánsson.
Ekki er að efa, að þessi
bók verður mörgum kærkomið
lestrarefni því höfundur er
mikill kennimaður og skrifar
fallegt. þróttmikið mál.
Bnkin er 227 bls. Atli Már
gerði káputeikningu. Verðið er
kr. 296.00.
3. bindi merkra
*
Islendinga
Bókfellsútgáfan gefur út 3.
bindi Merkra íslendinga í hin-
um nýja flokki þriðja árið i
röð. Jón Guðnason fyrrverandi
skjalavörður annast útgáfu
þessa bindis eins og hinna
fyrri. Að þessu sdnni birtast í
Merkum íslendingum tólf ævi-
söguþættir, sem skipað er í
tímaröð, hinn fyrsti um kirkju-
höfðingja á Sturlungaöld, en
hinn síðasti fjallar um afkasta-
mikinn sagnfræðing á fyrri
hluta þessarar aldar. Þættirnir
fjalla um þessa menn: Magnús
Gissurarson biskup í Skálholti
eftir Björn Þórðarson, Ari
Magnússon sýslumaður í Ögri
eftir Jón Þorkelsson, Páll
Björnsson í Selárdal eftir Hann-
es Þorsteinsson, Gunnlaugur
Briem sýslumaður eftir Jón
Jónsson, Hallgrímur Scheving
eftir Jón Þorkelsson, Konráð
Gíslason eftir Björn M. Olsen,
Sigurður Vigfússon eftir Valdi-
mar Ásmundsson, Eiríkur
Briem eftir Guðmund G. Bárð-
arson, Klemenz Jónsson ráð-
herra eftir Hallgrím Hallgríms-
son, Bjarni Sæmundsson eftir
Árna Friðriksson og Páll Eggert
Ólason eftir Jón Guðnason.
Aftast í bókinni er ýtarleg
nafnaskrá, og nokkrar myndir
eru til prýði. Merkir íslending-
ar eru 348 blaðsíður og kosta
kr. 448.00.
Sól dauftans
Sigurður A. Magnússon hef-
ur sent frá sér þýðingu á grískri
skáldsögu, Sól dauðans, eftir
Pandelis Prevelakis, einn
fremsta nútímahöfund Grikkja.
Hann er fæddur á Krít 1909,
lauk doktorsprófi við háskól-
ann í Salóníkí, en settist síðan
að í Aþenu, var um skeið ráðu-
neytisstjóri í gríska mennta-
málaráðuneytinu, en var skip-
aður prófessor í listasögu við
Listaháskólann í Aþenu 1939.
Um söguna segir þýðandinn í
formála:
„Fáum þjóðum ætti að vera
auðveldara að skilja grunntón-
inn í „Sól dauðans" en einmitt
íslendingum — svo mjög sem
honum svipar til viðhorfanna í
íslendingasögum, einkanlega
með tilliti til örlagatrúar, ætt-
artengsla og hefndarskyldu.
Umhverfið kann að vera fram-
andi og ýmar siðvenjur fólks-
ins skrýtilegar í okkar augum,
en rauði þráðurinn í sögunni er
hin mikla spurning um hlutfall-
ið milli lífs og dauða, spurn-
ingin um mennskar skyldur eia-
staklingsins við lífið og með-
bræður sína. Af þeim sökum á
þessi rammgríska saga erindi
hingað norðurá hjara verald-
ar.“
Sól dauðans er 241 bls. að
stærð, gefin út af ísafoldar-
prentsmiðju og kostar krón-
ur 274.00.
*
Ferftabók Olavíusar
Ólafur Ólavíus var merkur
athafnamaður á sinni tíð. Árið
1772 gaf hann út í Kaup-
mannahöfn fyrstu útgáfu Njáls-
sögu og um sömu mundir
brauzt hann í að stofna prent-
smiðju á íslandi, en Hólaprent-
smiðja var þá eina prentsmiðja
landsins, stjórnað af biskups-
stólnum og gaf mestmegnis út
guðsorðabækur. Fékk Ólafur
leyfi til prentsmiðjustofnunar
með því skilyrði, að hann gæfi
ekki út guðsorðabækur. Stofn-
aði hann síðan hina frægu
Hrappseyjarprentsmiðju ásamt
Boga Benediktssyni 1773, en
hvarf þaðan árið eftir vegna
misklíðar þeirra Boga. Ólafur
fór rannsóknarferð til íslands
á vegum stjórnaiinnar, og
stóð hún yfir full þrjú sumur
1775—77, en á vetrum sat hann
í Höfn og vann úr gögnum, sem
hann hafði aflað um sumarið.
Ferðabók sinni lauk Ólavius
1779, og var hún gefin út í
Kaupmannahöfn árið eftir.
Nú kemur Ferðabók Ólavíus-
ar í fyrsta skipti út á íslenzku,
fyrra bindið, sem fjallar um
landshagi í ísafjarðarsýslu,
Strandasýslu, Húnavatnssýslu
og Skagafjarðarsýslu. Steindór
Steindórsson menntaskólakenn-
ari þýddi bókina og segir m. a.
í formála: „Bók Ólavíusar er
fjarri því að vera ferðasaga,
og hún er ekki vísindarit í
orðsins venjulegu merkingu.
Ferðir hans eru raktar svo
stuttaralega sem auðið er í upp-
hafi bókar, og síðan vitum við
ekkert um þær, né hvernig
hann fór um landið. Bókin er
skýrsla til stjórnarvaldanna um
athuganir höfundar.
Ferðabók Ólavíusar er 330
blaðsíður að stærð, gefin út af
Bókfellsútgáfunni og kostar kr.
448.00.
Kúrdistan ...
Framhald af bls. 15.
Þeir sem fróðastir eru taldir
um þessi mál, skýra svo frá,
að Arif hinn írakski forseti
hafi sótt fast að ná fullri ein-
ingu íraks og Egyptalands
strax, en Nasser, sem ætíð hef-
ur sýnt orð sín og hugsun
standa nærri veruleikanum en
leiðtogar íraks lífs og liðnir,
hafi fremur kosið að sameining
þessi gerðist stig af stigi. Áður
en hún geti orðið alger verði
írakar að leysa innanlandsmál
sín, en þar er deilan við Kúrda
efst á blaði. Og að því er
Mustafa Karadagi aðalráðu-
nautur Barzanis í utanríkis-
málum sagði mér, hafði Nasser
skýrt honum svo frá, er hann
var í Kaíró fyrir nokkrum vik-
um erinda Barzanis, að Arif
hafi fullyrt við sig, að nú væri
kominn á friður í Kúrdistan
og þetta erfiðasta vandamál
íraks því leyst.
En vopnahlé er annað en
friðarsamningar og Kúrdum og
líklega Nasser líka, sem kúr-
dískir sendimenn sögðu mér
allt aðrar og betri sögur af en
ráðamönnunum í Bagdad, er
vel Ijóst, að lausn kúrdíska
vandamálsins í írak hefur að-
eins verið skotið á frest.
Hlé þetta hefur þó komið
Kúrdum vel, þótt Barzani hafi
sætt nokkurri gagnrýni meðal
landa sinna fyrir að ganga að
því án fullrar tryggingar fyrir
því, að raunverulega yrði geng-
ið að kröfum þeirra. í fyrsta
sinn í þrjú ár hefur verið hægt
að ná inn heilli uppskeru, og
byggður hefur verið upp tölu-
verður hluti þeirra þorpa og
bæja, sem lagður hafði verið
í rúst í nær þriggja ára borg-
arastyrjöld. Bagdaðstjórn hafði
raunar lofað miklum fjárstyrk
til uppbyggingarinnar, og
bændur fengu eyðublöð að fylla
út, en ekki hefur fjárstyrkur-
inn komið enn, og býst enginn
lengur við honum.
„Þúsund loforð og annað
ekki“, sagði Barzani við mig,
er ég innti hann eftir viðbrögð-
um stjórnarinnar við kröf-
um og málaleitunum Kúrda.
Kenndi biturleika í rödd þessa
fyrirmannlega leiðtoga Kúrda,
sem þekktur er fyrir spartversk
og hnyttin svör ekki siður en
fyrir herkænsku sína og þrek,
sem gert hefur honum kleift
að berjast fyrir sjálfstæði og
réttindum Kúrda í 33 ár og
lifa enn, þótt reyndar hafi hann
verið 11 ár af þeim tíma í
fangelsi og önnur 11 ár i út-
legð.
Ríki í ríkinu.
Þingið við Ranya var svar
Kúrda við hinum þúsund inni-
haldslausu loforðum. Til eins-
kis var að biða eftir svörum frá
Bagdad, auk þess sem loforð
og svör úr þeirri átt, jafnvel
Framhald 4 bls. 26.
19
FALKiNN