Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Side 4

Fálkinn - 03.05.1965, Side 4
VILL VERÐA STAR FSSTLLKA Á KÓPAVOGSHÆLI Elsku póstur, Ég þarf að fá að vita dálítið ok bá fannst mér bezt að leita til þín, þó að þetta verði a. m. k. tuttugasta bréfið, sem ég hef skrifað, en ekki fengið svar við. Jæ.ia, en snúum okkur að efninu. Svo er mál með vexti, að mig langar til að verða starfsstúlka á Kópavogshæli. Hvað þarf ég að vera gömul og hvað þarf ég að læra til þess. Getur þú sagt mér það? Með fyrirfram þökk, ein sem les Fálkann. P. S. Hvernig er skriftin? K. H. Svar: Við snérum okkur til for- stöðumanns Kópavogsliælis og hann bar fram þá ósk, að bréf- ritari snéri sér skriflega til stofnunarinnar og skyldi hann fúslega veita allar upplýsing- ar um nám gæzlusystra (tveggja ára nám) og ráðning- arkjör annarra starfsstúlkna. BRÉF FRÁ EYJLIVI .... Úr því ég er á annað borð farinn að hamast við að hamra á ritvélarskömmina er ekki úr vegi að biðja ykkur um að birta opinberlega á ritstjórn- arskrifstofum ykkar eftirfar- andi ályktun: „Almennur fundur haldinn í sálufélagi undirritaðs í dag, 12. dag aprílmánaðar (rétt bráð- um páskar) samþyikkir hjá- róma eftirfarandi ályktun: Skorað er á Vikublaðið Fálk- ann, að hann (þ. e. a. s. rit- stjórnin) hlutist til um að sem alíra fyrst verði hafin birting hörkuspennandi framhaldssögu um saka- eða lögreglumál í blaðinu. I öðru lagi, að sama blað endurlífgi kvikmyndaþátt þann sem um tíma var í blaðinu og hann verði um leið við upp- vakninguna aukinn og endur- bættur, hafa hann jafnvel á heilii opnu." HÁ. KÁ. Svar: Stúlkan í gulu kápunni er sakamálasaga, og það ein af þeim betri. Kvikmyndaþáttnr- inn kemur aftur, og verður ef- laust við og við á heilli opnu. 1 næsta blaði segjum við frá sænsku myndiuni „ÞÖGNIN“, en hún er mjög umtöluð og umdeild. AKLREYRI, Kæri Fálki, Mig langar til að spyrja þig um, hvað maður þurfi að vera gamall til þess að læra á kvik- myndasýningarvélarnar i kvik- myndahúsunum, og hvort það nám krefjist einhvers undir- búnings? Áhugasamur. Svar: Gagnfræðapróf er áskilið. Lærlingur þarf að vinna i 540 klukkiistundir áður en hann fær skírteinl sem fullgildur sýningarmaður. Öryggismála- stjóri, Féiag sýningarmanna og forstöðumenn bióanna meta hæfni lærlingsins. Félag sýn- ingarmanna hefur starfað í rúm 20 ár og eru meðlimir í þvi milli 20—30. Vinnuvika sýningarmanna er 36 stundir á viku og eru laun- in frá kr. 8450,00 til kr. 11.000.00 eftir því hvað við- komandi liefur unnið lengi. Tímakaupið er kr. 92,00. Við vonum að þetta svar sé fullnægjandi. Þessi óvenju hugmynda- rika teikning birtist í „Viljanum", blaði Verzlun- arskólanemenda, og nefn- ist höfundurinn Gunnlaug- ur Briem. Kannski einhver kennarinn taki sig til og teikni myndaseríu um nem- andann. Við höfuni nóg rúm fyrir góðlátlegt spé. eins og hann er

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.