Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 27

Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 27
J ANN tók um úlnliðinn á mér og dró mig að sér. „Hér hefur einhver verið að verki. Þetta er marijuana. Ég hef. flogið nógu oft til Austurlanda til að þekkja plöntuna þegar ég sé hana.“ Ég varð dauðskelkuð. „Hjálpaðu mér að losa mig við þetta. Við skulum rífa það allt upp.“ „Góð stúlka,“ sagði hann og byrjaði að rífa upp úr öðru keraldinu og ég úr hinu. Ég var með fullar hendur af upprifnum plöntum þegar ég fór að skoða ræturnar — ljósgular, mjóar og hálfvaxnar, en ^óumdeilanlega gulrætur. Ég æpti upp yfir mig, og þegar ég eá framan í Martin, vissi ég, að hann hafði verið að gabba jmig. „Af hverju?“ grenjaði ég og barði hann af öllum kröftum í brjóstið með gulrótaknippunum, og frjósamri moldinni rigndi yfir okkur bæði. „Af hverju gerðirðu þetta?“ Ég ætlaði að berja hann aftur, en hann þreif um úlnliðina á mér og hélt þeim báðum föstum með annarri hendi. „Af því að ég þjáist af brjálæðiskenndum hvötum sem ég ræð ekk- .ert við,“ sagði hann. Hann tók undir hökuna á mér með hinni liendinni og kyssti mig á munninn. Loks sleppti hann mér. „Þú ert andstyggilegt fyrirlitlegt kvikindi, og ég hata þig!“ sagði ég, sneri mér við og hljóp að stiganum. „Ég skal senda þér kort frá Tokyo,“ kallaði hann á eftir mér. Ég stóð tuttugu mínútur undir steypibaðinu til að róa mig. Þegar komið var að kvöldmatnum, hafði ég enga lyst. Ég tók tvær aspiríntöflur og eitt glas af mjólk og skreið upp í rúm. Klukkan þrjú glaðvaknaði ég og gat ekki sofnað aftur. Ég kveikti ljós. Eina bókin á náttborðinu mínu var Mygla í laufi og sveppagróður. „Verst að eiga ekki eintak af Hundi læknis Lincolns,“ hugs- aði ég. Þá datt mér skyndilega í hug, að sjálf væri ég ekki annað en hundur læknis Lincolns. Ég eyddi öllum mínum kröftum í að umbreyta mér, svo að ég félli öðrum í geð — ég var máttarstólpi fyrir yfirmann minn, heiðarleg piparmey fyrir Geraldine frænku og garðyrkjustúlka fyrir Ben. Ég leyfði engum manni að sjá nema eina hlið á mér, og þá hlið fágaði ég og slípaði honum til þægðar, til þess að hann sæi, að ég væri rétta stúlkan handa honum. KANNSKI hafði ég aldrei hitt rétta manninn. Kannski hefði einhver þeirra getað verið sá rétti, ef ég hefði leyft ást- inni að þróast í friði. Vissi Martin þetta? Var hann að reyna að segja mér það uppi á þakinu? Það liðu tvær vikur áður en hann kom frá Tokyo. Ég horfði á hann ganga yfir götuna. Hann var mjög karlmann- legur í einkennisbúningnum sínum. Ég beið hálftíma og fór síðan í nýja hvíta kjólnum mínum og barði að dyrum hjá honum. Hann var kominn í gráar bux ur og ljósa skyrtu. Hann leit stóreygur á mig. „Sæll,“ sagði ég. „Ég kom til að vita hvort þú vildir fá lánaða hjá mér bókina sem allir eru að tala um þessa dagana — Daginn sem hundur læknis Lincolns beit póstinn.“ HANN bauð mér inn. „Ég hefði mjög gaman af að lesa þá bók,“ sagð:. hann og settist á sófann. Hann sagði ekki fleira, og ég sá fram á, að ég fengi enga hjálp frá honum í þetta sinn. Ég dró andann djúpt og byrjaði: „Ég missi stjórn á mér ef hættu ber að höndum, ég þekki ekki rauðrófu frá rósakáli, og ég hata flugvélar. Ég veit ekkert um stjórnmál, og ég græt þegar ég þarf að kveðja fólk á járnbrautarpöllum. Ég er kjáni, ég er bleyða, og ég er óheiðarleikinn uppmálaður." Hann ákvað að koma mér til aðstoðar. „Ég ætlaði til Tokyo, en villtist og fór til Timbuktu í misgripum,“ sagði hann. Þetta var það stærsta sem við mig hafði verið sagt. „Ef þú ert ekki þegar bundinn,“ sagði ég og settist í sófann Framh. á bls. 35. Síswsr enviK eci fök i rsrE/NN A LKOÓNfí, niin- OtAyVAR é&SETT-* OR I NN, FVRire. AevfiKrt LTÓS- LAUS- l'viy(?Kíili IU If FÁLKINN 27

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.