Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 25

Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 25
CONSUl CORTINA bílaleiga magniisar skipholii 21 súnar: 21190-21185 tfaukur (juiw*4AAQH HEIMASÍMI 21037 MARTIN hleypti brúnum. „Veiztu, að ég hef alltaf verið brjáláður í bláeygar stúlkur með dökkt hár? Synd, að ég skuli aldrei hitta á þig óástfangna.“ Ég hló. „Það gæti aldrei gengið. Ég er ekki nógu tælandi í sundbol." Hann gaut til mín hornauga. „Láttu mig dæma um það.“ „Og ég gæti aldrei bundizt flugmanni. Flugmannskonur verða að vera glaðar og óttalausar og kveðja menn sína með geislandi dirfskubrosum." „Þú hefur séð mikið af kvikmyndum?" „Já, en þetta er alveg satt,“ sagði ég áköf. „Flugmenn verða að eiga hugprúðar konur. Og ég er aumasta raggeit sem hægt er að ímynda sér. Ég myndi gráta úr mér augun í hvert sinn sem þú yfirgæfir mig og gera þig svo taugaóstyrkan, að þú færir til Timbuktu í misgripum þegar þú ætlaðir til Parísar og misstir atvinnuna fyrir vikið. Nei, nei, það gæti aldrei gengið. Og svo held ég, að Joseph sé sá rétti. Hann hefur yndislegt skarð í hökunni.“ Martin andvarpaði. „Jæja, hvað annað segirðu mér í frétt- um?“ „Ég hef heklað einhver kynstur. Geraldine frænka kemur á þriðjudaginn, og ég verð að hekla nýja armhlíf í stað þeirr- ar sem fór í vaskinn. Ég hef auðvitað ekki tíma til að sitja yfir því á kvöldin, svo að ég fer með handavinnuna á skrif- stofuna og hekla allan matartímann. Ég hef ekki 'borðað heitan hádegisverð vikum saman. Hérna er listaverkabúðin.“ Við skiluðum Næturljóði nr. 3, en ég fann enga galeiðu. „Má ég bjóða þér í heitan hádegisverð?“ spurði Martin þegar við komum út aftur. „Þú þarft samt ekki að gráta þegar við kveðjumst." Ég hugsaði mig um. „Ég skal borða með þér, ef ég fæ að borga fyrir mig,“ sagði ég. „En viltu gera mér greiða fyrst — fara heim til yfirmannsins míns og gefa hundinum hans? Hann biður mig alltaf um það þegar hann þarf að fara eitthvað.“ „Er hundurinn hrifinn af mannakjöti?“ „Þetta er pínulítil tík,“ flýtti ég mér að segja. „En ég er hrædd við hunda, hvort sem þeir eru litlir eða stórir, og hún hefur tvisvar bitið mig. Ekki mjög illa, en. .“ „Veit yfirboðari þinn, að þú ert hrædd við hunda?“ „Hamingjan góða, veiztu ekki, að einkaritarar verða að vera máttarstólpar skrifstofunnar, óhræddir við alla hluti og færir um að ráða fram úr hverju vandamáli?" „Ja, þú ræður vel fram úr þessu,“ sagði hann. „Lætur bíta mig í staðinn.“ It/I’ARTIN gaf tíkinni sem beit hann alls ekki neitt, og síðan fór hann með mig í indælt veitingahús. Þegar við vorum búin að panta matinn, hallaði hann sér aftur á bak og sagði: „Jæja, segðu mér nú allt um sjálfa þig.“ „Um mig?“ Ég var hér um bil mállaus af undrun. Allir vita, að stúlkur eiga ekki að tala við karlmenn um sjálfar sig — það er grundvallaratriði. Ja. reyndar skipti það engu máli þegar Martin var annars vegar, því að ég var ekki að ► 'am&Zs £hifrWcrur stjornurnar Kæri Astró, Mig langar, eins og svo marga aðra að fá vitneskju um framtið mína. Heilsufarið, fjármálin og ástamálin. Hvað eign- ast ég mörg börn? Ég á einn lítinn dreng og langar til að vita, hvernig maður hann verður? Fyrirfram þökk. Rós. Svar til Rósar: Þú ættir að fara dálítið gæti- legar í ástamálunum heldur en þú hefur gert. Þú hefur plánet- una Úranus í fimmta húsi ásta- málanna, og eykur hann löng- unina eftir rómantík og bendir þar af leiðandi til að um fleiri en eitt ástasamband verði að ræða, sem þó geta orðið fyrir skyndilegum truflunum. Úra- nus hér bendir tíl' nokkuð mikillar löngunar ■ til daðurs. Satúrnus er einnig í fimmta húsi og hefur nokkuð leiðinleg áhrif á gang ástamálanna. Hins vegar hefur þú bæði Júpíter og Venus í sjöunda húsi hjóna- bandsins, og bendir það til gæfuríks hjónabands, en Plúto er einnig í sjöunda húsi, svo það er ávallt hætta á að upp úr slitni skyndilega. Þetta á sérstaklega við um, að þegar þú hefur stofnað til hjúskapar, þá mátt þú ekki fyrir nokkurn mun láta eftir löngun þinni í smá ástarævintýri utan hjóna- bands. Það má búast við, að eitthvað muni gerast í þessum málum hjá þér á næstu tveim árum. Þú minnist ekki á, hvort maðurinn, sem þú talar um í bréfi þínu, sé faðir drengsins þíns. Þið eigið að vissu leyti nokkuð vel saman, en það mun alltaf verða nokkur hætta á alvarlegum árekstrum milli ykkar. Nú í sumar er að mörgu leyti góðar afstöður fyrir þig til myndunar ástarsambands, sem gæti átt sér framtíð, en þú ættir að athuga vel allar hliðar málanna, því það gæti bara orð- ið um að ræða annað barn og ekki meira. Drengurinn þinn er að mörgu leyti sterkur persónu- leiki, og ég held, að ef þú býrð nógu vel að honum, þá eigi hann góða framtíð fyrir sér. Þú skalt samt sem áður ávallt tileinka þér fullkominn heiðar- leika gagnvart honum og aldrei reyna að blekkja hann á nokk- urn hátt. Hann mun verða mjög stoltur og má á engan hátt blygðast sín fyrir uppruna sinn, móður sína eða heimili. Þú get- ur með hegðun þinni og breytni við hann og aðra haft mikil áhrif á hamingju hans. Hann mun að öllum líkindum giftast fremur seint, því honum mun ekki verða sérstaklega létt að mynda sambönd við hitt kynið. Þú getur haft mikil áhrif á líf þessa drengs bæði til góðs og ills. Ég vona, að þér finnist þetta ekki allt virka sem skammir á þig, því það var nú ekki tilgangurinn, en maður hugsar stundum ekki nóg út í það, hvað maður getur haft mikil áhrif á líf barnanna með eigin breytni. Þú munt að öll- um líkindum hafa gaman af að ferðast, og munu ferðalög verða þér til ánægju. Um fjármálin er það að segja, að þau munu verða nokkuð breytileg, og er dálítið undir hagsýni þinni í meðferð fjármuna komið. Þú hefur mjög sterkan Júpíter og mun hann ávallt verða þér góð- ur verndari, og gerir að mörgu leyti líf þitt hamingjusamt. í júlí 1966 færðu kannski tæki- færi til að kynnast þeim manni, sem yrði þér til mestrar gæfu. FÁLKINN 25

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.