Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 40

Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 40
& Stúlkan í guiu kápunni i vtt, iva D YASHICA minister :Mest selda japanska myndavélin! Hún er með innbyggðum cadium ljósmæli, fjarlægðarmæli, ljósopi f 2,8 og hraðastilli frá 1 sek. til 1/500. YASHICA minester D er myndavél, sem hægt er að treysta. Yið höfum margra ára reynslu af vélinni og tökum fulla ábyrgð á henni. Kostar aðelns kr. 3665,- með leðurtösku. Biðjið um skýringarblað. ^ETiM? SíMi 2 0313 BANKASTRÆTI 4 Framh. af bls. 37. „Frændi yðar var rekinn í gegn með pappírshníf," sagði Simmons. „Hvar lá pappírshníf- urinn venjulega?" „Á skrifborðinu. En ég held ekki, að frændi hafi nokkurn tíma notað hann, þvi að ég opn- aði öll bréf fyrir hann.“ „Þegar þér og hr. Sayers kom- uð hingað í dag, var hurðin þá læst?“ „Já, það er smekklás á henni, sem lokast á eftir manni.“ „Segið mér eitt, ungfrú Hart- ley — er alltaf svona kalt á skrifstofunni hjá frænda yðar? Kælitækið var í fullum gangi.“ „Ég setti það af stað, áður en ég fór heim. Hann bað mig um það. Kannski hef ég stillt það aðeins hærra en ég ætlaði.“ „Já, þannig hefur það verið," rumdi í Simmons. Hann leit á Stein, lögreglu- mann, og lyfti brúnum. „Eftir að læknisskoðun hefur farið fram, þarf að ganga frá ýmsu, ungfrú Hartley. Á frændi yðar nokkra náskyldarl ættingja en yður, sem við gætum haft samband við?“ „Nei, ég er nánasti ættingi hans.“ „Jæja, þér heyrið þá frá okk- ur.“ Loren stóð á fætur. Um leið rak hún hendina í veskið sitt, og það datt á gólfið. Þar sem læsingin á því var opin, féll mestallt innihaldið út. Varalitur, greiða og spegill, sömuleiðis peningaveski, allt þetta valt út um teppið. Og einnig miðinn frá efna- lauginni. Loren, Peter og Stein, lögreglu- maður, beygðu sig öll niður í einu. Loren tíndi upp varalit, greiðu og spegil. Peter rétti henni peningaveskið. Stein tók upp miðann frá efna- lauginni og fékk henni. „Þakka yður fyrir,“ sagði Loren. —v— „Hr. Hartley lætur eftir sig heilmikið af peningum," sagði Stein, lögreglumaður, eftir að Loren og Peter voru farin. „Hef- urðu heyrt hans getið íyrr?“ „Það er eins og mig minni það. Og þessi ungfrú Hartley er nán- asti ættingi hans ...“ „Að því er virðist, hefur hún komið á skrifstofuna á hverjum degi eins og aðrar stúlkur, sem vinna úti,“ mælti Stein. „Hér eftir þarf hún sennilega ekki á þvi að halda." Simmons kinkaði kolli. „Sú hefur haft það náðugt að þurfa ekki að vinna eftir hádegi á föstudögum. Þó er auðvitað enn betra að þurfa hreint ekki að mæta í vinnunni framar ...“ „Það er ekkert á pappírshnifn- um að græða, hr. Stein,“ sagði einn lögreglumannanna. „Það eru skorur í handfanginu, svo að það koma aðeins fram brot af fingraförum. Ekkert, sem við getum notað.“ „Það datt mér í hug,“ anzaði Stein. „Þegar öllu er á botninn hvolft getum við ekki búizt við að fá allt upp í hendurnar." „Hún lítur út fyrir að vera æfður golfleikari," sagði Simm- ons. „Reyndar gæti það lika ver- ið tennis. Að minnsta kosti hef- ur hún þroskaða Vöðva.“ Stein brosti. „Eg sá ekki betur en vöðvarnir á henni væru ákaf- lega hrífandi." Simmons brosti líka, en með efasemdarsvip. Stein gekk út að glugganum og leit niður á götuna. Hann opnaði gluggann og hallaði sér út. Framh. í næsta blaði. 40 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.