Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 9

Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 9
HUGLEIÐINGAR UM HJÓNABANDID HAMINGJUSÖM BRÚDHJÖN - SVÖ BYRJA IIIDINDIN Félagsfræðirann- SÓK.NIR eru enn á algeru frumstigi hér á landi, og ís- , lenzkar hagskýrslur æði þög- Ular um marga þá þætti mann- lífsins, sem ekki eru síður mikilvægir en að draga fisk úr sjó eða stunda búskap. Þannig ef ákaflega erfitt að átta sig á, hve tíðir hjónaskilnaðir eru á íslandi. Þeir koma að vísu all- ir til skila í skýrslum, en gall- inn er sá að hérlendis er það svo algengt, að fólk setji upp bú „gangi í hjónaband", án þess að leita staðfestingar á hjúskapnum, að þær tölur, sem hagskýrslur birta, geta gefið mjög villandi upplýsingar. Það mun þó vera rétt, að sambúð og hjúskapur endist hér betur en í þeim nágrannalöndum, þar sem aðstæðum og viðhorfum svipar mest til þess, sem við eigum að venjast. En þróunin er þó sú sama hér og annars staðar, að hjónaskilnuðum fjölgar tiltölulega og á sjálf- sagt eftir að fjölga enn eftir því, sem meiri stórborgarbrag- ur verður á lífi þess rúma helm- ings þjóðarinnar, sem búsettur er í Reykjavík og næsta ná- grenni. Og sú staðreynd ætti að verða mönnum aðvörun um að hugsa sig vel um áður en í hjónabandið er gengið. Félags- fræðingar hafa skýringar á reiðum höndum á því, hvað það er, sem eykur líkur á því, að upp úr hjúskap slitn-i: Sé menntun makanna og al- menn áhugamál mjög mismun- andi, hafi þeir að baki sér mjög ólíka reynslu, séu kröf- ur þeirra til lífsins í veiga- miklum atriðum frábrugðin, þá aukast líkur á hjónaskiln- aði. Erlendar rannsóknir benda einnig til þess, að því yngri sem konan er þegar til hjú- skaparins er stofnað, því lík- legra sé, að hann endi með skilnaði. Allvíðtæk rannsókn, sem gerð var í Kaupmanna- höfn, benti til þess, þótt sum- um kunni að virðast það ein- kennilegt, að húsmæður, sem ekki vinna utan heimilis, geta fremur búizt við því en hinar, að hjónaband þeirra endi með skilnaði. FLESTU nýgiftu fólki finnst mikið spunnið í maka sinn. Aðdráttarafl holdsins er þá oftast meira en það verður nokkru sinni síðar, og hverjum finnst það ekki óblandin ánægja að kynnast náið ann- arri manneskju, sem maður hefur þegar laðazt að? En það er gömul saga, að 1. GREIM ástarvíman varir sjaldnast lengi, þótt ef til vill sé full mikið sagt í þessari sögu: ,,Fá- ir þú þér flösku á brúðkaups- daginn og leggir í hana baun í hvert sinn, sem þú og konan þín njótist fyrsta hjúskaparár- ið, en takir úr henni baun í hvert sinn, sem það gerist árin sem á eftir koma, verður flask- an aldrei tóm.“ En ekkert hjónaband endist til frambúðar á kynlífinu einu saman. Og sá leiði makanna hvors á öðrum, sem að lokum veldur skilnaðinum á sér ekki eingöngu, og jafnvel ekki aðal- lega, kynferðislegar orsakir. Hver eru upptök þessa leiða? FLEST hjón ræða saman um alla heima og geima í byrj- un hjúskaparins (það er ástæða til að taka þetta fram, því að svona er þessu alls ekki varið alltaf þegar fram í sækir). Þau skiptast á daglegri reynslu sinni, fitja upp á ýmsum efnum til að kanna viðbrögðin. Smám- saman kemur á daginn, hvað þau eru sammála um og hvað skilur á milli. Hvort um sig finnur viðkvæma bletti á hinu, og oft er það svo, að vissum umræðuefnum er bægt frá, verða eins konar tabú, bann- helg, vegna þess að annað hvort hjónanna vill ekki um þau tala. Þessi forboðnu umræðuefni geta haft mjög neikvæð áhrif síðar meir, því að þau eru eins konar sprengiefni, sem gripið er til þegar síðarmeir fer að kastast í kekki. Við skulum til dæmis segja að eiginkonan hafi áður átt einn eða fleiri elsk- huga og hún finnur á sér, að aðeins tilhugsunin um þá gerir manninn afbrýðisaman, þá kýs hún náttúrlega helzt, að liðið sé gleymt og grafið. En ef einn góðan veðurdag fýkur nógu mikið í hana, þá getur hún átt það til að hrópa til hans fullum hálsi: — Já, ég hef kynnzt mörgum karlmönn- um og þeir voru allir miklu skemmtilegri en þú! En við höfum farið of hratt yfir sögu. Smám saman kemur að því, að umræðuefnin eru á þrotum. Þeir eru margir, sem ekki nenna að ganga í endur- nýjun lífdaganna. Það þarf tals- vert að leggja á sig til að kynn- ast nýjum viðhorfum, og eiga það á hættu að þurfa jafnvel að horfa á hlutina frá öðru sjónarmiði en menn voru van- ir. Maðurinn kemur heim úr vinnunni eftir langan erfiðis- dag (og er það ekki svo um flesta nú orðið?) Það kann vel að vera, að hann hafi um dag- inn kynnzt ýmsu nýstárlegu, sem honum finnst sjálfum æði merkilegt, en hann nennir ekki að fara að lýsa því öllu fyrir konu sinni. En ekki er ýkjalangt frá þeirri stundu, að hjón hætta að leggja það á sig að segja hvort öðru skemmtilega frá því, sem þeim býr í brjósti, til þess tíma, að þau leggja niður al- menna kurteisi í daglegri um- gengni sinni. AÐ er gömul reynsla, að þegar hjón eru farin að fá leiða hvort á öðru standandi eða sitjandi, þá taka þau leið- ann með sér í rúmið (ef hann var þá ekki þar fyrir). Menn skyldu kannski halda, að kynmök, sem ekki gera í sjálfum sér miklar kröfur til eiginlegra orðaskipta væru ein- mitt vel til þess fallin að bæta það upp, sem á skortir á öðrum sviðum. Það halda líka margir. En þessu er þó ekki þannig varið yfirleitt. Það eru helzt karlmennirnir, sem hafa trölla- trú á, að í bólinu sé að finna lausn á öllu vandamáli hjóna- bandsins: „Ef ég get bara kom- ið henni i bólið, þá hættir hún líklega þessu nöldri.“ Framh. á bls. 35.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.