Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 42

Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 42
W Veiðimannabrauð Framh. af bls. 38. Rækjuostabrauð. 4 hveitibrauðsneiðar 2 pakkar hraðfrystar rækjur 3 msk. majonnes 10-15 olívur 1 eggjahvíta 3 msk. rifinn ostur. Smyrjið brauðsneiðarnar, olívurnar skornar í sneiðar, blandað saman við kryddað majonnesið ásamt rækjun- um. Salat þetta er látið á brauðsneiðarnar. Eggjahvítan stífþeytt, rifna ostinum blandað saman við, sett ofan á rækjurnar. Brauðið bakað við 225° í 3—4 mínútur. CUDQ tvöfaltCLldOeinanqrunarqler vörumerkid sem húsbyqqjandinn treystir skúlaqata 26 simi 12056 • Svikinn héri Framh. af bls. 39. Rjómavöfflur. 4 dl rjómi 2% dl kalt vatn 160 g hveiti Smjör í járnið. Vöfflujárnið hitað, smurt beggja vegna með smjöri. Rjóminn stífþeyttur, hveiti og vatni hrært saman við, deig- ið hrært eins lítið og hægt er. Setjið tæpa matskeið af deigi í hvert hinna fjögurra vöfflu- rúða, vöfflujárninu lokað, bak- að í 2V2—3 mínútur. Vafflan losuð varlega úr vöfflujárninu með gaffli, vöfflujárnið smurt með smjöri á ný. Vöfflurnar bornar fram með sykri, þeyttum rjóma og góðu aldinmauki. • Jórvík Framh. af bls. 8. f þeim tíma skrifaði sögu- ■l*- maður nokkur, að áður hefði Jórvík verið ,fögur eins og sjálf Rómaborg'. En þótt gamla borgin hefði verið eyði- lögð, reis hún aftur með mikl- um blóma á miðöldum, og er álitið af mörgum, að fáar borg- ir séu til í Evrópu, er hafa geymt svo ósvikinn miðaldar- blæ sem hún. Gamli borgar- múrinn stendur enn að miklu leyti; dómkirkjan mikla, York, er ein hin stærsta og tignar- legasta í landinu, auk hennar eru enn 20 aðrar gamlar kirkj- ur eftir í borginni. Margar götur hafa einkenni fornar tíðar og eru mjög þröngar, og húsunum hallar saman yfir höfði ferðamannsins. En borgin lifir ekki aðeins á fornöldinni. Þar finnst einnig blómlegt verzlunar- og við- skiptalíf og smáiðnaður að auki (hin fræga sælgætisverksmiðja Bowntrees meðal annars), og menntunarstarfsemi Jórvíkur, sem hefur verið þýðingarmikil allt frá dögum Alcuins, hefur aukizt nýlega með stofnun há- skóla. Jórvík er ekki stór borg á enskan mælikvarða, lítið eitt stærri en Reykjavík, íbúar um 100 þúsund, en ber samt svip höfuðborga. Gamall enskur spádómur um borgina segir: Winchester was, London is, and York shall be, the finest of the three. Winchester var, Lundúnir eru, og Jórvík mun verða, hin fegursta þeirra þriggja, — Sonur minn. Eftir fjögur ár í Háskólanum ertu ekkert nema andleg eyðimörk. Get- urðu sagt nokkuð um sjálfan Þig? — Ja — já, ég eyði þó litl- um peningum í mat. ___ 42 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.