Fálkinn - 03.05.1965, Blaðsíða 12
a '* a
FIAMHALDSSAGAN 3. HLUTI
ETIR
FRANCES OG RICHARD LOCKRIDGE
SAGAISI FRAIVI AÐ ÞESSIJ:
Loren Hartley þiggur heimboð Alicear Jackson, sem
segist vera gömul skólasystir hennar. Heima hjá Alice
fá þær sér drykk. Mörgum tímum seinna vaknar Loren
á bekk í skemmtigarði einum. Henni er ómögulegt að
muna, hvað gerzt hefur. Hvorki frændi hennar, Bob
Campbell, né vinur hennar, Peter Sayers, geta uppgötv-
að, hver þessi dularfulla skólasystir er. Og hvorugur
trúir almennilega sögu Lorenar. — Daginn eftir tekur
Loren eftir dökkleitum blett á kápunni sinni: hann er
einna líkastur blóðblett. Hún fer strax með kápuna í
hreinsun . . .
Loren færði stólinn frá borð-
inu og leit á Cantrell. Andlit
hennar var algerlega svipbrigða-
laust, og hún varð skyndilega
þurr i kverkunum.
„Mér var sagt, að þið Alex
frændi mynduð eyða helginni
saman..."
„Voru það orð frænda þíns?“
„Nei...“
„Hver þá?“
„Þjónninn þinn ... Hann til-
kynnti Charies það.“
„Það finnst mér anzi lélegur
brandari!"
Norman Cantrell náði sér í
s’tól og settist.
„í íyrsta iagi hef ég ails engan
þjón! Og auk þess hefur Alex
ekki látið sjá sig hér, eins og
við höfðum þó talað um! Ég
veit hreint ekki, hvað ég á að
halda. Þetta er í fyrsta skipti
I 30 ára langri vináttu okkar,
sem hann hefur brugðizt mér!“
Peter Sayers virti Loren. fyrir
sér fuilur athygii.
„Við ætluðum að hittast kl. 1
til að spila golf,“ bætti Cantrell
við reiðilegur. „En klukkan 3
einmitt þegar ég var að fara
heim af skrifstofunni, hætti
frændi þinn ailt í einu við að
mæta!“
Loren fékk sér sopa. Svo
spurði hún: „Hringdi hann sjálf-
ur?“
„Nei. Það var einhver einka-
ritari. Hún sagði, að hann hefði
beðið sig að láta mig vita.“
Það varð andartaks þögn.
Cantrell þagði því að hann var
ennþá argur yfir þessu; Loren
vegna þess að hún varð æ óró-
legri; Peter, sökum þess að hann
vildi síður blanda sér í einka-
mál annarra.
„Nú, varst þú ekki á skrifstof-
unni hjá frænda þínum í gær?“
spurði Cantrell.
„Nei, um þrjúleytið var ég
farin þaðan ...“
Og skyndilega stökk Loren á
fætur. Glasið hennar valt niður
af borðinu og brotnaði í þúsund
mola á steinflísunum.
12
f/ lkinn
„Ég verð að hringja til hans
strax!"
Hún hljóp inn í húsið.
Peter fór á eftir.
„Þetta er nú ekki svo þýðing-
armikið!1' hrópaði Norman Cantr-
ell á eftir þeim. „Hann útskýrir
áreiðanlega fyrir mér á mánu-
daginn, hvers vegna hann sveikst
um að koma!“
Loren var þegar komin inn í
símaklefann, þegar Peter náði
henni.
Hún var að veija númerið.
„Hvað er eiginlega að?“
spurði Peter.
„Þetta er eitthvað dularfullt,"
sagði Loren. „Síðan í gærdag er
allt jafn dularfulit...“
Loksins anzaði Charles.
„Er frændi kominn aftur?"
spurði hún og náði varla andan-
um.
„Nei, ungfrú Loren. Er ég ekki
margbúinn að segja yður, að
frændi yðar er með hr. Cantrell
um...“
„Takk.“ Loren lagði á. „Ég
held ég ætti að hringja á lög-
regluna," sagði hún við Peter.
Peter, sem hafði staðið í opn-
um kiefadyrunum, tók í hend-
ina á Loren, leiddi hana inn í
forsalinn og ýtti henni ofan í
hægindastól.
„Hlustaðu nú á mig,“ sagði
hann ofur rólega, „frændi þinn
ér fullorðinn maður. Það getur
komið fyrir, að fullorðnir menn
þurfi að skreppa eitthvað í einka-
erindum og iíki ekki alls kost-
ar, að lögreglan sé send á eftir
þeim um leið.“
„Ef til vill," sagði Loren hik-
andi. Það liðu fáeinar sekúndur,
þá hafði Loren tekið ákvörðun.
Hún stóð á fætur.
„Viltu keyra mig norður í bæ,
á skrifstofuna?"
„Núna? Á laugardagskvöldi?"
„Kannsiki liggja þar skilaboð
til min frá Alex frænda ...“
Þau gengu að bílastæðinu.
„Út af hverju hefurðu svona
miklar áhyggjur, Loren?" Hann
settist við stýrið og setti í gang.
Hún smeygði sér inn við hlið
ina á honum.
Loren hafði eiginlega verið
búin að ákveða að gleyma allri
sögunni og minnast aldrei oftar
á hana við neinn.
En nú varð hún að gera það.
Eftir að hafa hitt Cantrell var
málið orðið enn óræðnara ...
Á leiðinni í bæinn sagði Loren:
„Ég veit, að þetta hljómar allt
mjög undarlega. En ég ætla samt
að byrja á byrjuninni og segja
þér frá öllu, sem komið hefur
fyrir mig síðan um hádegi í
enda við að segja mér, lieldur
ótrúleg saga. Finnst þér það ekki
líka?" s
Það var eins og hún hefði
misst seinasta bakhjallinn. Peter
trúði henni þá ekki heldur...
Þegar hann hélt áfram, mændi
hann enn á götuna.
„Stúlka, sem þú manst ekkert
eftir, stöðvar þig á förnum vegi.
Hún segist vera gömul skóla-
systir þín. Síðan akið þið heim
til hennar. Þú minnist þess að
hafa þegið drykk hjá henni —
og að hafa svo vaknað alein á
bekk í Bryant Park ...“
„Já.“
„Svo ferðu seinna ásamt
frænda þínum í sama húsið. En
þar kannast enginn við neina
Alice Jackson. Og hin stúlkan,
þessi Bertha Mason, hefur held-
ur aldrei heyrt minnzt á Alice
Jackson. Þetta er rétt með farið
fram að þessu, er það ekki?“
Loren kom ekki upp orði. Það
var eins og gripið hefði verið
fyrir kverkar henni.
Hún sneri sér undan og horfði
út í bláinn.
„Var sagan Iengri?“ spurði
Peter.
„Nei!“ svaraði Loren fokreið.
„Ef þú trúir mér ekki, geturðu
að minnsta kosti látið mig í
friði! “ Hún sneri sér að honum.
Augu hennar voru full af tárum.
„Þú getur iátið mig úr einhvers
staðar! Ég tek leigubíl! Þú þarft
ekki að vera hræddur um, að
ég komist ekki leiðar minnar!"
Hann færði fótinn af benzín-
gjöfinni og iét bílinn renna upp
að gangstéttinni. Svo nam hann
staðar.
„Láttu ekki svona, Loren!"
SÖGU-
HETJURIMAR
LOREN HARTLEY er ung og
geðfelld, amerísk stúlka. Hún
vill síður vera öðrum háð. Og
hún hefur afar slœmt minni . .
ALEX HARTLEY er föður-
bróðir Lorenar; auk þess er
hann vellauðugur kaupsýslu-
maður og hefur skrifstofu í
hjarta New York-borgar . . .
ROBERT CAMPBELL, kallað-
ur Bob, er fjarskyldur œttingi
Hartleyfólksins. Hjálpsemihans
gær...“
Peter ók hratt. Hann horfði
beint fram fyrir sig á veginn,
meðan hann hlustaði.
Eftir að Loren hafði lokið máli
sínu, leit hún út undan sér á
Peter.
Enn beindist augnaráð hans
að veginum. Og er hann tók til
máis, ieit hann ekki á hana.
„í fyrsta iagi,“ mæiti hann,
„er allt þetta, sem þú varst að
er takmarkalaus . . .
PETER SAYERS er ungur,
fœr málafœrslumaður í Was-
hington. Hann er klár í kollin-
um, en samt er ekki laust við,
að Loren geti komið honum úr
jafnvœgi . . .