Fálkinn - 03.05.1965, Side 13
Hann tók fram tvær sigarettur,
kveikti í þeim og rétti Loren
aðra. „Hvernig getur jafn skyn-
söm stúlka og þú verið svona
mikill þrákálfur! Sérðu ekki
sjálf, að ég vil hjálpa þér?“
„Nei!“
Hann brosti og kyssti hana á
kinnina. „Ekki enn?“
Hún hreyfði sig ekki. Hún
sogaði að sér reykinn og blés
honum út um gluggann.
Það var fáránalegt að vera
svona særð, - það vissi hún
sjálf...
En Peter hafði valdið henni
svo miklum vonbrigðum: Hann
hafði yfirheyrt hana eins og
málaflutningsmaður!
„Ég held ég þekki þig nógu
vel,“ sagði Peter. „Ef þú segir
að eithvað sé svona eða hin-
segin — þá stendur það heima."
„En þú leizt út eins og þú ..
„Ég sagði þér bara, að þessi
saga þín hljómaði ótrúlega,
Loren. Og það gerir hún vissu-
lega! Þú gætir ekki sannað hana,
þótt þú þyrftir þess. Eða hvað?“
„Þarna sérðu! Þú trúir mér
samt ekki!“
Peter beið, þangað til þrír bíl-
ar, sem voru að reyna að kom-
ast fram úr hver öðrum, voru
farnir framhjá, þá sneri hann
sér aftur að Loren.
„Við getum sagt sem svo: Ef
einhver skjólstæðinga minna
segði mér svona sögu — þá
myndi ég ekki trúa einu einasta
orði og fleygja honum út.“
„Ég er ekki skjólstæðingur
þinn!“
Hann beygði sig niður að henni
og kyssti hana ofur laust á ljósa
hárlokkinn, sem lafði niður á
ennið.
„Nei,“ sagði hann brosandi,
„en mér finnst þú samt töfrandi.
Og nú keyrum við beint á skrif-
stofuna hans frænda þíns!“
—v—
Það er ekki erfitt að finna
bilastæði í 40. stræti síðdegis á
laugardögum. Skrifstofubygging-
arnar eru auðar og flestir hús-
búar að heiman.
Peter Sayers lagði bílnum
fyrir framan húsið, þar sem
frændi Lorenar hafði skrifstofu
sína.
Saman gengu þau inn.
Auðvitað voru þarna hvorki
húsvörður né lyftudrengur á
þessum tima.
„En lyftan er í gangi," sagði
Loren og þrýsti á hnappinn.
Hún kom lika að vörmu spori,
og þau héldu upp á við.
„Hefurðu lykil að skrifstof-
unni?“ spurði Peter.
1 stað svars opnaði Loren
veskið sitt og dró lykilinn upp
úr. Hún var alltaf með lykilinn
að skrifstofunni, ef til þess kæmi,
að hún yrði að bregða sér þang-
að fyrir frænda sinn utan hins
venjulega skrifstofutíma.
Þau gengu yfir langan breiðan
ganginn að skrifstofudyrunum.
Fótatak þelrra þergmálaði. um
húsið.
Furðulegt, hversu dauð bygg-
ingin virtist á þessum tíma.
„Og ef þú finnur engin skila-
boð,“ sagði Peter Sayers og hall-
aði sér að dyrakarminum, „þá
förum við heim til þín og mat-
reiðum eitthvað handa okkur.
Sammála?"
Taugaóstyrkur Lorenar óx
með hverri minútunni, sem leið.
„Við sjáum til,“ sagði hún og
stakk lyklinum í öryggislæsing-
una.
Hún gat ekki opnað fyrr en
í annarri tilraun.
Kyrrðin, sem þau höfðu tek-
ið eftir áður, virtist enn ógn-
vænlegri í skrifstofuherbergjum
frænda hennar.
Fótatak þeirra varð hljóðlaust
á þykku gólfteppinu í forstof-
unni.
„Er alltaf svona kalt hérna?“
spurði Peter Sayers.
Loren gekk þvert yfir gólfið
í átt að breiðri, leðurklæddri
hurðinni á einkaherbergi frænda
hennar.
Hún lagði hendina á snerilinn.
Hún hikaði.
Hún beið, þar til Peter vár
kominn alveg að henni svo hratt
hún hurðinni upp.
Og þá sá hún Alex Hartley ...
Hann lá með höfuð og axlir
fram á stóra skrifborðið sitt.
Alex Hartley var dáinn...
Það hlaut að hafa blætt mikið
úr sárinu á hálsinum á hon-
um...
Á gólfinu við hliðina á stóln-
um lá pappírshnífur.
—v—
Loren greip höndunum fyrir
andlitið og sneri sér undan.
Peter Sayers leit enn einu sinni
á likið, svo tók hann utan um
axlir Lorenar og fór með hana
fram i forstofuna aftur.
„Við verðum að láta lögregl-
una vita,“ sagði hann.
Meðan Loren lét fallast í hæg-
indastól og starði fram fyrir
sig galopnum augum, gekk
Peter að símanum, sem stóð þar
nálægt.
Hann tók upp tólið og byrjaði
að velja númerið. Hann hikaði,
svo sneri hann sér að Loren.
„Ég 'var að velta fyrir mér...“
sagði hann. Loren leit upp.
Skelfingin skein enn út úr
augunum á henni. Andlitið var
náfölt, og það var rétt með
erfiðismunum, að hún gat hreyft
varirnar.
„Hverju varstu að velta fyrir
þér?“
Peter Sayers hélt á símtólinu
í annarri hendinni. Með hinni
studdi hann sig við skrifborös-
brúnina.
Hann virtist einkennilega utail
við sig.
„Þegar nú lögreglan kemur ..,
Ég held það sé betra, að þú
minnist ekkert á, það sem gerð-
ist í gær ...“ sagði hann.
„Það skil ég ekki. Hvað áttu
við með því?“
„Ja ...“ Ennþá sýndist hann
vera jafn utan við sig. „Það gæti
komið sér illa — vakið óþægi-
legar grunsemdir, skilurðu ..
„Nú, hvernig gæti það gert
mig grunsamlega?" Loren horfði
á Peter án svipbrigða.
„Eftir örskamman tíma,“ sagði
hann, „fyllist hér af fólki, sem
mun grandskoða allt og leggja
fyrir þig alls konar spurningar.
Það er ekki víst, að þeir fari
strax að pumpa þig. En þeir
spyrja þig áreiðanlega, hvenær
þú hafir séð frænda þinn seinast
Framh. á bls. 37.