Fálkinn - 03.05.1965, Page 15
TRANSISTORTÆKI
Hér er tæki, sem margir kunna að hafa áhuga á. Þetta er transistortæki, er nefnist Twen-
star og hefur þá náttúru, að það er sama hvernig það snýr, platan spilar sitt lag ótrufluð,
hvort sem hún er undir, ofan á eða á rönd. Hristingur, eins og t d, í bílum hefur engin
áhrif Útvarpið er fyrir lang- og miðbylgjur og auk þess er plötugeymsla. Verðið er 248
mörk.
Hér er skemmtilegt húsgagn fyrir pípureykingamenn.
Þetta er kassi úr tekki eða palisandersvið, er geymir
allar græjurnar er pípureikingamenn þurfa að nota. Við
sáum þessa mynd í þýzku blaði og verðið var gefið upp
175 mörk. Margfaldið með 10 og þið sjáið að kassinn er
nokkuð dýr — en þetta er góð gjöf.
EITLRLVFJASIUYGL
hefur löngum verið arðvænlegur atvinnuvegur,
og menn lagt mikið á sig til að sinna honum,
þó svo sektir séu stórar, ef upp kemst. — Og
menn hafa fundið upp á mörgu til að koma
bannvörum milli landa, og oft eru þessar upp-
finningar svo hugvitsamlegar að furðu gegnir.
Myndin sýnir okkur eina aðferð til að smygla
heroini, en ekki er hægt að mæla með henni
til árangurs, enda náðist náunginn, sem notaði
hana, og myndin var tekin af á lögreglustöðinni,
(þó ekki hérlendis, sem betur fer). Heroinið
sem náunginn bar á þennan hátt, var 50.000
dollara virði!
NAGLASNYRTING
Það er óþekkt fyrirbrigði, að selir nagi á sér neglurn-
ar, og þess vegna verður að klippa þær af þeim selum
sem eru í dýragörðunum, svo þeir slasi ekki meðbræður
sína. — Sélurinn sá arna, sem þið sjáið á myndinni,
veitti gæzlumönnum sínum harða mótspyrnu, þegar þeir
fönguðu hann til naglasnyrtingar, en þeir voru tveir
á móti einum og höfðu því betur.
FALKINN
15