Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Side 16

Fálkinn - 03.05.1965, Side 16
SKINN- ÞRYKK MYNDIRNAR: 1. Hjónin Li og Vult Sinion hafa endurvakið gamla listgrein, sem gæti á íslenzku kallast „skinn- þrykk“. Á myndinni halda þau á lambsgæru sem þau hafa skreytt með því að þrykkja á hana gömul mynstur. 2. Lítil dóttir þeirra hjóna situr fyrir, íklædd vesti, húfu og vettlingum úr áþrykktu skinni. 3. Þessir skinnskór eru hvort tveggja í senn; hlý- ir og fallegir. 4. Vult sker mynstrin út í tréplötu; síðan er farðinn sem nota skal, settur á plötuna og loks þrykkt- ur á skinnið. Þá grein annast frúin, sem er dönsk og vann áður við leirkerasmíði. Norðmenn hafa löngum verið þekkt- ir fyrir þjóðlegan og skemmtilegan heimilisiðnað, og hefur hann borið af, hvað gæði og fegurð snertir. Nýlega rákumst við á grein í norsku blaði, þar sem segir frá nýstárlegri teg- und af heimilisiðnaði, og þar sem hrá- efnið til framleiðslunnar er vel þekkt hérlendis og iðnaðurinn skemmtilegur, gátum við ekki stillt okkur um að taka greinina traustataki, ásamt myndunum, sem henni fylgja og birta þér, lesandi góður, í þeirri von, að þú getir bæði haft gagn og gaman af. Hjónin Li og Vult Simon, búa í Hemsedal, en þangað fluttu þau fyrir tíu árum siðan. Og í þessu umhverfi fengu þau hugmynd sína, þ. e. að skreyta sútuð kindaskinn með þykkum mynstrum, fengnum úr gömlum bókum. Og nú er svo komið að „skinnþrykk“ frá Hemsedal eru seld um víða veröld. Fyrst í stað unnu þau hjónin að „skinnþrykkinu í tómstundum sínum, en fljótlega varð eftirspurnin svo mikil, að þær dugðu ekki til, og þá sneru þau sér að „skinnþrykkinu“ af fullri alvöru og nú er svo komið að þau hafa ekki undan að framleiða. „Skinnþrykk“ mun vera allgömul tegund myndlistar, segir í umræddri grein, en upphaflega ekki hugsuð ein- göngu sem skreyting, heldur gerð til heilla og langlífis þess sem skinnið átti. Fyrir á að gizka tvö hundruð árum. „dó svo þessi listgrein út“, ef svo mætti að orði komast. Eftir að hafa kynnt sér forn áþrykkt skinn og þau mynstur sem ríkjandi voru í öllum myndskurði norrænum, hóf Vult Simon að skera mynstrin út í tré, og Li þrykkti þau á kindaskinn. Aðferðin er forn og mjög einföld í eðli sínu. Auk þess að þrykkja á kinda- eða lambaskinn, nota þau hjónin rúskinn. Hlutirnir sem þau síðan búa til úr hinum þrykktu skinnum, eru margvís- legir og má þar til dæmis nefna vesti, 16 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.