Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Side 18

Fálkinn - 03.05.1965, Side 18
mAiarekstur k þítíU*, msk ;<í. fJZzrm SCHWARRKOPFS 9. Umboðsdómurinn, er konung- ur skipaði til að rannsaka og dæma um dauðdaga Schwartz- kopfs, var skipaður tveimur mönnum, annar var andlegrar stéttar en hinn sýslumaður. Þessir menn voru: Hákon Hannesson, sýslumaður í Rang- árvallasýslu, og síra Þorleifur Arason, prófastur á Breiðabóls- stað í Fljótshlíð. En sækjandi I málinu var skipaður Sigurð- ur Sigurðsson, sýslumaður i Árnessýslu. Umboðsdómurinn tók til starfa í september 1725 í Kópavogi, en þar var þing- staður Seltirninga. Þessir menn voru ólíkir, jafnt að hugs- unarhætti og allri gerð, og skal það greint að nokkru. Hákon Hannesson sýslumað- ur var harðger maður og að flestu mikilmenni, aðsópsmikill í málum og lét ógjarnan hlut sinn. Hann var nokkuð drykk- felldur og sást lítt fyrir, er svo bar undir. Er hér var kom- ið sögu, var hann kominn á efri ár, og því ekki eins kapps- fullur og áður. Hann var lítill vinur Bessastaðamanna og æðstu umboðsmanna konungs í landinu, enda hafði hann lent í deilum við þá, en haldið hlut sínum, sem fátítt var á þessum árum. Sigurður sýslumaður, er oftast er nefndur Sigurður landsþingsskrifari eldri, var maður fastur fyrir, reglumað- ur mikill í embættisrekstri, gætinn og traustur. Hann hafði einnig nokkra ástæðu til að vera miður hlynntur Bessa- etaðavaldinu, þó hann kynni vel að halda svo á málum gegn því að lítt kæmi að sök eða yrði honum til tálma. En um síra Þorleif Arason gegndi öðru máli. Hann var óreglusamur, metnaðargjarn og sást lítt fyrir í þeim efnum. Hann er talinn gáfumaður og lauk háskóla- 18 FALKINN prófi í guðfræði við háskólann í Kaupmannahöfn. Hann var mikill vinur Fuhrmanns amt- manns, og hafði amtmaður út- vegað honum meðmæli frá Raben stiftamtsmanni nokkr- um árum áður, er hann sótti um biskupsembætti í Skálholti eftir Jón biskup Vídalín. En meðmælin dugðu Þorleifi ekki, enda er talið, að Árni Magnús- son hafi brugðið fyrir hann fæti, og hlaut Jón Árnason biskupsembættið. Síra Þorleif- ur hlaut skjótan embættisframa og eitt bezta brauð landsins, þar sem var Breiðabólstaður í Fljótshlíð. Hann kunni vel að halda á málum, þrátt fyrir það að hann væri örlyndur og drykkfelldur, og naut talsverðs trausts, sérstaklega hjá Fuhr- manni amtmanni. Nær öruggt er, að framburð- ur Páls Kinchs og Sveins Lar- sen var sendur umboðsdómin- um til undirstöðurannsókna málsins, enda lagði síra Þorleif- ur og Fuhrmann á það mikla áherzlu að gera framburð hins fyrrnefnda tortryggilegan. Dómendum var þá enginn vafi á, hvar hinna seku var að leita, og hvernig átti að hefja rann- sókn málsins, eins og berlegt er af heimildum. Var nú stefnt til Kópavogs vitnum til að gefa upplýs- ingar og bera vitni um dauða Schwartzkopfs og aðra atburði, er orðið höfðu á Bessastöðum síðustu misserin. Var öllu heimafólki á Bessastöðum stefnt þangað, ásamt mörgu fólki af Álftanesi og víðar að af Suðurnesjum. Cornelíus Wulf landfógeti var yfirheyrð- ur, og er framburður hans að mestu kominn fram í undanfar- andi þáttum. Einnig voru Hólmsmæðgur, Katrín og Ka- ren, yfirheyrðar, ásamt Fuhr- manni amtmanni sjálfum. Af framburði þeirra er fátt að hafa. Þau báru aðeins af sér sakirnar, er Kinch og Larsen báru á þau í framburði sínum. Áður en lengra er haldið, er vert að geta þess að fleiri tíð- indi höfðu orðið á Bessastöð- um þessi misseri í ástum. Piper ritari Fuhrmanns gekk að eiga Katrínu Hólm, og nefndi hún sig upp frá því frú Pipers. Að vísu er ekki hægt að leiða að því bein rök, að gifting þessi hafi staðið í beinu sambandi við framkomu Katrínar í garð Schwartzkopfs, en hins vegar er ekki grunlaust, að flýtt hafi fyrir henni aðstaða frúarinnar í væntanlegum málum. Það styrkir óneitanlega málstað hennar að vera gift virðuleg- um embættismanni, ritara æðsta umboðsmanns konungs í landinu, og ekki sízt hjá dóm- endum, er lítt þekktu til og virtu menn meir af þjóðfélags- legri stöðu, en af sannri þekk- ingu. 10. Eftir að umboðsdómurinn hóf að rannsaka málið, kom brátt í ljós, að málið var umfangs- mikið og erfitt viðfangs, og ekki sízt sakir þess, að Fuhrmann amtmaður reyndi á allan hátt að bæta aðstöðu Hólmsmæðgna, og síra Þorleifur varð honum dyggur þjónn til þeirra þarfa. Hákon sýslumaður reyndi aftur á móti að malda í móinn, og halda sig við venjulegar að- ferðir í málum. Varð þetta til þess, að sundurþykkja varð milli Hákonar og síra Þorleifs, og flýtti það ekki fyrir mála- rekstrinum né rannsókninni. Sigurður sýslumaður virðist hafa farið hægt í sakirnar, enda var hlutverk hans annars eðlis en hinna tveggja. Margt merkisfólk var kall- að fyrir réttinn í Kópavogi í september 1725. Tveir prestar voru þangað leiddir til að bera vitni, höfðu þeir báðir komið til Schwartzkopfs, meðan hún lá. En það voru síra Björn Thorlacíus í Görðum á Álfta- nesi, sálusorgari Bessastaða- fólksins, og síra Halldór Brynj- ólfsson prestur á Útskálum, síðar biskup á Hólum. Bera þeir báðir, að hún hafi aldrei við þá nefnt, að sér hafi verið gefið eitur. Margrét Elísabeth Bogens, ekkja síra Ólafs Péturs- sonar í Görðum, er heimsótti Schwartzkopfs í veikindum hennar, ber það sama, og bætir því við, að hún hafi gefið sér í skyn, að veikindi hennar myndu stafa af því, að hún móti vana sínum hefði vanrækt að láta taka sér blóð um lengri tíma, en það þótti í þennan mund læknisráð við flestum sjúkdómum.Einnig segir prests- ekkjan frá því, að hún hafi þvegið líkið og lagt það til og verið við að kistuleggja það, og ekki getað greint, að líkið væri í neinu frábrugðið líkum annarra, er á sóttarsæng deyja. Aftur á móti vitnar Niels Kjær varalögmaður og Þórdís kona hans, sem bæði voru við- stödd kistulagninguna, og er framburður hans þannig: „Ég sá hinn dauða líkama liggja á borðinu í ofnstofunni, svo vel klæddan, sem göfugu líki sæmir að dönskum sið. Ég sá hana einnig á sama hátt eftir að búið var að leggja hana í hina ytri kistu hennar, og ég tók á höndum hennar, og voru þær mjúkar og liðugar og höndur nokkurs lifandi manns geta verið, og voru tveir bláir blettir á hvorri um sig, hvor upp af öðrum. Andlit hennar athugaði ég einnig og voru var- ir hennar svartbláar og nokkr- ir bláir blettir á stærð við stóra títuprjónshausa til og frá um andlit hennar.“ Frú Þórdís Kjær lýsir líkinu

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.