Fálkinn - 03.05.1965, Qupperneq 36
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
| Ilrúturinn, 21. marz—20. avríl:
Þér ffæti boðizt óvænt tækifæri til að fá
I bctur launaða stöðu eða eitthvað, sem aukið
|í>æti tekjur þínar til muna. Það getur einnig
I verið, að einhver félagi þinn eða samstarfs-
] maður biðji þig um lán. Þú skalt samt ekki
Ivera of fljótur á þér að taka upp pyngjuna.
| Nautið, 21. avríl—21. maí:
Dagleg störf þín munu ganga þér sérlega
[ vel þessa viku, og þú ert sannarlega í skapi
til að skemmta þér á kvöldin. Övænt og
skemmtileg ástarævintýri, sem ekki stæði þó
I lengi, mundi verða til að auka ánægjuna.
Tvíburamerkið, 22. maí—21. júní:
Hvíld og ró með fjölskyldu þinni og ástvin-
í um munu sópa burt allri þreytu og leiðindum.
I Láttu ekki árekstra á vinnustað eða leiðindi
1 samstarfsmanná þinna hafa áhrif á þig; þeir
verða að glíma við sitt.
| Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Þú munt að öllum líkindum fá upphringingu
| frá vinum þínum eða félögum og þeir munu
hafa hug á að fá þig í heimsókn eða bjóða þér í
| smá ferðalag, en eitthvað verður það í þessari
viku, sem kemur þér þægilega á óvart.
Ljónið, 2&. júlí—23. ánúst:
Vinnufélagar eða yfirmenn munu koma þér
á margan hátt á óvart í þessari viku. Þetta
| gæti falið í sér á einhvern hátt auknar tekjur
f,Trir þig. Þú hefur líka óvænt tækifæri til
að koma ár þinni vel fyrir borð.
Mcyjan. 24. ápúst—23. sevt.:
Þér býðst óvænt og skemmtilegt tækifæri til
að láta ljós þitt skína þessa viku. Gríptu því
öll þau tækifæri, sem berast til að koma per-
sónulegum málefnum þínum á réttan veg, en
þú mátt búast við að ýmislegt óvænt kunni
að gerast..
Vopin, 24, seyt.—23. okt.:
Það, sem þú hélzt óheillavænlega þróun á
f jármálasviðinu, gæti skyndilega breytzt og
orðið þér til hagnaðar. Það er þó anzi mikið
undir því komið, hvernig þú bregzt við. íhug-
aðu allar hliðar mála vandlega.
Drekinn. 24. okt.—22. nóv.:
Breyting á kunningjahópnum gæti orðið til
þess að þeir, sem ógiftir eru, fyndu þar til-
vonandi maka og þeir, sem giftir eru, góðan
félaga, þó ekki sé meira sagt. Þó gæti þróun
mála breytet á óvæntan hátt og valdið þér
vonbrigðum.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. dcs.:
Þú hefur nú unnið til þess að aðrir beri
virðingu fyrir þér, en láttu ekki skyndilega
velgengni í starfi eða við félagsmál verða til
þess að þú sinnir fjölskyldu þinni of lítið.
Steingeitin, 22. des.—20. janúar:
Þú dregst óvenjumikið að skemmtunum þetta
tímabil, og er því líklegt að margt skemmti-
legt og óvænt hendi þig. Reyndu að njóta þess
sem bezt og notfæra þér hin óvæntu tækifæri,
sem kunna að berast upp í hendurnar á þér.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar:
Óvænt þróun fjármálanna getur skapað
tækifæri fyrir þig til að veita fjölskyldu þinni
þau þægindi, sem þú hefur lengi þráð að gera
Samt sem áður skaltu fara að öllu með gát,
því þú getur þurft á því að halda.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Það virðist vera nokkur tregða í heimilis- og
fjölskyldumálunum hjá þér núna; þú ættir því
að grípa hvert tækifæri til að auka ánægju
þína og þinna. Smá skemmtiferð gæti orðið góð
upplyfting og haft ótrúlega góðar afleiðingar.
FLOTEX plast-nylon teppi eru falleg og sterk
Glæsilegt franskt Iitaval með ótal blæbrigðum eftir
því hvernig Ijósið fellur á það.
Sólarljósið vinnur ekki á litum þess.
FLOTEX er hægt að ryksuga og þvo. Af því nást auð-
veldlega allir blettir, ávaxtasafi, blek o. fl.
FLOTEX einangrar hita og hljóð, því fylgir kyrrð og
hlýja.
FLOTEX er alltaf eins og nýtt.
FLOTEX á öll gólf.
FLOTEX - UMBQÐIÐ Á ÍSLANDI
Brautarholti 20. Símar 21999 og 32847
FRANSK-ÍSLENZKA
VERZLUNARFÉLAGIÐ
FALKINN