Fálkinn


Fálkinn - 19.07.1965, Síða 4

Fálkinn - 19.07.1965, Síða 4
— SEGÐU KÖRLUNUM AÐ VERA KLÁRUM, SEGIR ÞORSTEINN VIÐ VAKTMANNINN. ÞEIR KOMA HVER AF ÖÐRUM FRAM Á DEKKIÐ í GULU OLÍUSTÖKKUNUM. TVEIR HAFA FARIÐ UPP Á HVALBAKINN, OG VÉLSTIÓRARNIR TAKA SÉR STÖÐU VIÐ SPILIÐ. ÞORSTEINN HEFUR STJÓRNBO RÐSHURÐINA í BRÚNNI OPNA í HÁLFA GÁTT, OG NÚ KEMUR KALLIÐ: — LÁTIÐ FARA! Þegar ég var smápolli dreymdi mig oft stóra kom- mandörbrú og hvíta húfu og marga borða á handleggjunum, og stundum í bíóhúsinu varð draumurinn að veruleika, og áður en maður vissi af voru stuttbuxurnar orðnar að stíf- pressuðum offíserabuxum og komið glansandi fínt kaskeiti á litla kollinn. Þessi gamli óska- draumur rifjaðist upp fyrir mér, þegar ég kom fyrst í brúna á Jóni Kjartanssyni og beið eftir, að skipstjórinn vakn- aði svo ég gæti stunið upp er- indnu: að fá að fara einn túr á veiðar. Tækin og dótaríið, sem svo mikið er af um borð á síldarbát í dag hverfa í stóru brúnni á Jóni Kjartanssyni, og rattið stendur á miðju gólfi eins og á Queen Mary. Á gólf- inu er renningur, sem hvergi sér kusk á, og maður getur hik- laust gengið um og látizt vera að hugsa þarna í lyftingunni á Jóni Kjartanssyni. Það er seytjándi júní og beð- ið eftir löndun á Norðfirði. Fullar lestir, en vantar þó tals- vert á, að hleðsla sé á skamm- dekk. Skipsskrokkurinn er dökkblár en keisinn, brúin og hvalbakurinn hvítmálað. í mat- ^Það eru hröð handtök við rimpið og skipstjórinn, Þor- stcinn Gíslason tckur til hcndi.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.