Fálkinn - 14.02.1966, Blaðsíða 16
jf í."».
fír'ftSWa
imI i
«1 IIl bb
Issi* WfjP
íiijl!i
«sr
8s
£
iSSSík
■k ii:
»vr
!!•"«
SK III L*
ATTA SPÁIVIEIMIM lilU VÍÐA VERÖLD LÁTA LJÖ8 SITT
SKÍNA
Keo, Thailenzkur Búddhamunkur sem frægur er fyrir hár-
rétta spádóma þó að hann geri ekki annað en horfa í andlit
manns. Þannig horfði hann í andlit Johnsons forseta í sjón-
varpinu.
í ÐUR en við höldum lengra,
vildum við gera yður það
fullkomlega ljóst, að ritstjórn-
in (LIFE International), ráð-
færir sig aldrei við stjörnuspá-
menn töframenn, lófalesara,
kristalskúlukvendi eða annað
spáfólk. Það er að segja næst-
um aldrei. En árið 1966 er
eins þrungið óvissu og flest
önnur síðan árið 1 og það er
skylda ritstjórna að varpa ljósi
á óvissuna eftir beztu getu.
Þess vegna höfum við — að-
eins í þetta eina skipti —
snúið okkur til fólks, sem
mögulega sér lengra en við.
Flokkurinn, sem við höfum
valið okkur til leiðsögu brúkar
mismunandi aðferðir.
Keo, 34ra ára gamall thai-
lenzkur Búddhamunkur, sem
ekur í Mercedes og kveikir í
vindlingum sínum með Ronson
gaskveikjara, horfir einfald-
lega í andlit fólks, til að
ákvarða framtíð þess. En hann
hefur nægilega mikil áhrif á
viðskiptavini sína, til þess að
stöðugur straumur þeirra ligg-
ur til hofsins Wat Traimukhy-
aram í Bang Saen. Sumir eru
menn í opinberum stöðum.
Hoshu Sakai, 65 ára gamall
Japani, sem eitt sinn langaði
til að verða læknir, notar 50
grannar viðarstengur og 6 rétt-
hyrnta íbenholt kubba, sem
líkjast stórum dominó kubb-
um. Stengurnar og kubbarnir
gerðu Sakai kleift að segja fyr-
ir um mikinn jarðskjálfta í
nýjársboðskap árið 1964. Jarð-
skjálftinn. átti að verða í júní-
mánuði í einhverri af hafnar-
borgunum, sem liggja að
Japanshafi. Og 26. júní 1964
reið mikill jarðskjálfti yfir
borgina Niigata. í sama nýárs-
boðskap spáði hann með aðstoð
stanganna og kubbanna að
Ikeda forsætisráðherra yrði
ekki endurkjörinn og Eisaku
Sato myndi taka við af honum.
Ikeda náði samt sem áður
kosningu, en varð veikur
tveim mánuðum síðar og fékk
Sato forsætisráðherraembættið
í hendur.
André Barbault varaforseti
hinnar alþjóðlegu stjörnuspá-
dómamiðstöðvar (Centre Inter-
national d’Astrologie) í París,
setur allt sitt traust á stjörn-
urnar, sem hann segist ekki
hafa veitt verðuga athygli fyrr
en á fullorðinsárum. Árið 1946
sá hann í stjörnunum fyrirboða
mikillar. þjóðfélagsbyltingar í
Kína. í janúar 1953 spáði hann
„líkindum til að skipt yrði um
valdamenn í Kreml“ og það
kom fram með dauða Stalins
í marz. 1962 spáir hann aukn-
ingu átakanna í Vietnam „síðar
í febrúar og í byrjun marz
1965.“ Um samskipti Indlands
og Pakistans talar hann þá
um „ógnþrungið andrúmsloft
fyrstu fimmtán dagana í sept-
ember 1965.“ Árið 1963 spáir
hann „hættuástandi árið 1965,
þar sem Kína og Bandaríkin
standa hvort gagnvart öðru, en
Rússar lenda þar mitt á milli.“
Reinhold Ebertin er 65 ára
gamall Þjóðverji og býr í Aalen
Wuerttemberg í V-Þýzkalandi.
Móðir hans fékkst við stjörnu-
spár, en faðir hans var stærð-
fræðingur. Hann sjálfur iðkar
það sem hann nefnir geimlíf-
fræði (cosmobiology) eins kon-
ar samruna stjörnuspáfræði og
veraldlega tölfræði. Á grund-
velli þessarar aðferðar sinnar
gat Ebertin gert eftirfarandi
heyrum kunnugt á ráðstefnu,
sem skoðan abræður hans
héldu 4. ágúst 1963, að Kenne-
dy forseti „yrði bráðlega fyrir
alvarlegu áfalli. Hann gæti
16
FALKINN