Fálkinn - 14.02.1966, Blaðsíða 38
ItlTSTJOM: KRISTJAM STEINGKIMSDOTTIIt
Góðir fiskréttir
FISKFLÖK
% kg þorskflök
Salt
2 msk. smjör
1 laukur
1 púrra
2 gulrætur
Laukur og púrra skorið í þunnar sneiðar, látið það sjóða
í smjörinu dálitla stund, má alls ekki brúnast; nokkrum msk.
af vatni bætt út í pottinn, gulræturnar hreinsaðar, skornar
langsum og síðan skornar í minni bita, sett út í pottinn,
soðið 3—5 mínútur; tómatkraftur og annað krydd sett út í
pottinn. Þorskflökin skorin á ská 1 hæfilega bita, raðað ofan
á pottinn, saltað. Hlemmur settur á pottinn, soðið í 8—10
mínútur. Borið fram í pottinum ásamt soðnum kartöflum.
MEÐ GKÆNMETI.
2-3 vel þroskaðir tómat-
ar eða
3 msk. tómatkraftur
2 negulnaglar
6 piparkorn
Muskat
2 msk. söxuð steinselja.
FISKFLÖK MEÐ KARRÝSÓSU OG HRÍSGRJÓNUM.
Áætlið um 600 g af þorsk- eða rauðsprettuflökum handa 4.
Nuddið flökin með salti, vefjið þau saman og festið með pinna.
Raðið rúllunum í botninn á potti.
Sjóðið saman í öðrum potti 3—4 dl vatn. nokkrar lauksneið-
ar, 1 gulrót í bitum, dálítið af steinselju, 6 heil piparkorn, 1
tsk. sítrónusafa, salt og 1 msk. af smjöri. Látið þetta malla
við hægan hita í 15—20 mínútur, svo soðið nái bragði úr
grænmetinu og kryddinu. Hellt varlega yfir fiskrúllurnar, sem
soðnar eru við hægan hita í 5 mínútur. Soðið síað og búin
til úr því bragðmikil karrýsósa, sem gott er að jafna með
eggjarauðu.
Fiskrúllunum raðað í heitt fat, hluta af sósunni hellt yfir,
afgangurinn borinn með í sósukönnu ásamt lausum hrís-
grjónum.
Dúkkukjóll
Efni: nál. 25 g þríþætt hvítt
ullargarn. Hringprjónn nr. 2
(40 cm) prjónar nr. 2. Paliett-
ur og perlur.
Fitjið upp 192 1. og prjónið
6 umf. sléttprjón. Prjónið því
næst gataröð (innafbrot) ★
slegið upp á 2 sl. sm. ★, endur-
tekið frá ★—★ út umf. Prjón-
ið 6 umf. slétt og svo 2 mynst-
ur eftir skýringamynd (X =
brugðin lykkja) prjónið 5 cm
slétt í viðbót. Prjónið nú 2 sl.
sm. á allri umf. f næstu umf.
er tekið jafnt úr svo 80 1. séu
á. Þá er mynstur prjónað. Eftir
6 umf. eru felldar af 2 1. í
hvorri hlið fyrir handveg. Nú
er bak og framstykki prjónað
hvert fyrir sig en eins. Eftir 3
mynstur eru 16 miðl. felldar
af fyrir hálsmáli. Prjónið 9
umf. með 11 1. hvoru megin.
Fellt af.
Frágangur: Kjóllinn press-
aður léttilega á röngunni. Hlið-
arnar og önnur öxlin saumuð
saman. Pilsið faldað að neðan.
Mjó teygja fest í mittið á röng-
unni. Hinni öxlinni lokað.með 2
smellum og litlum palliettum
tyllt í mynstrið með smáum
perlum.
38
FALKINN