Fálkinn - 14.02.1966, Blaðsíða 17
orðið fyrir skyndilegum slys-
um, stóráföllum, jafnvel bana-
tilræði."
Gopesh Kumar Ojha er 55
ára gamall og búsettur í Delhi.
Hann aðhyllist hindúíska
stjörnuspáfræði blandaða vest-
rænum kerfum. Margir ind-
verskir stjói’nmálamenn eru
meðal viðskiptavina hans og
borga há ómakslaun. í viðtali
við indverska ríkisútvarpið
1962, spáði hann réttilega að
bardagarnir milli Indverja og
Kínverja sem þá stóðu yfir,
myndu ekki verða langvinnir
og einnig því að Jacqueline
Kennedy myndi ekki þurfa að
aflýsa heimsókn sinni til Ind-
lands af heilsufarslegum ástæð-
um. Síðar spáði hann vopnahléi
í bardögum Indverja og Pak-
istana þann 24. september.
Samið var um vopnahlé
þann 23.
Pandit Gaya Prasad Shastri,
sem er 37 ára gamall Indverji
búsettur í Benares notar Bhr-
igu Sanhita, sem var skrifuð
á áttundu öld af hinum heilaga
Bhrigu, og á að innihalda
örlög allra mannlegra vera í
fortíð, nútíð og framtíð. Shastri
heldur því fram, að hann eigi
frumrit bókarinnar, sem hann
segir að hafi verið í ætt sinni
í 21 ættlið, sem allir fengust
við stjörnuspádóma. Hann seg-
ir að Shastri forsætisráðherra
(þeir eru ekki skyldir) leiti
einatt ráða hjá sér og einnig
Chavan varnarmálaráðherra.
Hann á stóran hlaða af vottorð-
um frá viðskiptavinum sínum,
þ. á. m. frá Morarji Desai.
Francesco Waldner býr í
þakíbúð í Róm ásamt fimm
persneskum köttum. Hann er
52ja ára að aldri. Waldner
lagði stund á skyggnilýsingar,
kynnti sér rithandarfræði,
stjörnuspáfræði og sálfræði.
(Hann er m. a. vel að sér í
Freud og Jung), áður en hann
formaði kerfi sitt, sem saman-
stendur af stjörnukortum, rit-
handarrýni, lófalesti’i og ein-
stöku sinnum kristalskúlurýni.
Árið 1958 spáði hann fyrir
Lundúnablaðið Daily Express,
að Margi’ét prinsessa myndi
ákveða að giftast á árabilinu
1959 til 1960; að Boudoun
Belgíukonungur myndi kvæn-
ast árið 1960 „gáfaðri, stjói’n-
samri og ákveðinni ungri konu,
sem verður elskuð og virt af
Belgum,“ að John F. Kennedy
öldungadeildarþingmaður „yrði
forseti einn góðan veðurdag“
og að Bi’igitte Bardot myndi
giftast árið 1959 „manni, sem
er fæddur undir tvíburamerk-
inu og með honum mun hún
eignast son.“ Honum skjöplað-
ist aðeins í því, að Jacques
Charrier er fæddur undir
Sporðdrekamerkinu.
Lundúnakonan Ingrid Lind
lærði stjörnuspáfræði af
frænku sinni, sem var mennta-
kona, mjög ströng og dálitið
sérvitur, sem m. a. kom fram
í því að hún neitaði að taka
þóknun fyrir spádóma sína.
Ungfrú Lind, sem varð stjörnu-
spámaður að atvinnu árið 1953
er nú varaforstjóri stjörnuspá-
dóma rannsóknarstöðvar og
höfundur bókarinnar Stjörnu-
spádómar og heilbrigð skyn-
semi. Hún kýs heldur að gera
stjörnukort fyrir einstaklinga,
en að spá um heimsmálin. En í
útsendingu kanadíska útvarps-
ins í árslok 1964 spáði hún
að 1965 yi'ði ár örlagaríkra
atburða, þó ekki heimsstyrjald-
ar og það yrði „sérstaklega ár
upphafs nýrra atburða og ó-
væntra.“ En hún spáði líka að
Hoshu Sakai, spáir með 50 prjónum sem kallaðir eru „zeichiku“
og sex fílabeinskubbum sem kallaöir eru „sangi“ Framan á
kimanóanum síniun hefur hann merki stéttarinnar.
FÁLKINN
17