Fálkinn - 16.05.1966, Page 5
SAAM 1966 — stöðugar framfarir
Hin sænska SAAB bifreið er ein af
þeim tegundum, sem sífellt er end-
urbætt alveg frá því að fyrsti SAABinn
varð til. Árgerðin 1966 er endurbætt að
verulegu leyti, en hið ytra er þó ekki
munur frá árgerð 1965. Langi mann til
þess að kynnast nýjungunum þá er
fyrsta skrefið að opna vélarhúsið þá
sést strax að þrír blöndungar eru komn-
ir þama, þ. e. einn fyrir hvert sprengi-
hólf. Þrír blöndungar, — þetta er stór-
kostlegt, flestir bílar kæmust vel áfram
með einum og aðeins sport útgáfur eða
bílar, sem hallast í þá áttina, eru ef til
vill með tveimur. Ástæðan fyrir þess-
ari endurbót er sú að þetta hefur gefið
verulega betri raun með tilliti til jöfn-
unar á bensíngjöf inn á hvert sprengi-
hólf í tvígengisvél.
Þegar maður veit það, að nógu erfitt
getur verið að stilla tvo blöndunga, svo
að þeir vinni saman, þá fellur manni
Fleiri nýjungar má nefna. Vélin hefur
verið endurbætt að öðru leyti. Þjappan
er nú 8.5:1 og þetta ásamt blöndungún-
um þrem gefur meiri orku eða 46 ha
SAE við 5000 snúninga á mín.
Reynsluakir þú SAAB kemur það
strax í Ijós að framangreindar nýjung-
ar eru til bóta. Gallinn við SAAB var
fyrst og fremst sá, að snerpan máttivera
meiri við lágan snúningshraða vélarinn-
ar, galli sem flestir gerðu sér ljósan er
þeir keyptu SAAB en létu alla hina
góðu eiginleika, sem SAAB-verksmiðj-
urnar buðu upp á í þessum bíl, sitja í
fyrirrúmi.
Endurbæturnar gefa þá útkomu, að
vélin gengur þýðar, aukinn viðbragðs-
flýtir og meiri hámarkshraði. Aðrir
kostir vélarinnar haldast óskertir: hljóð-
lítil vél, nærri eins og túrbínu hreyfill
við meðal- og hámarkshraða, þar sem
þessi litla perla í tvígengisvélum hagar
SAAB 95 station
er 7 manna.
kannski allur ketill í eld að stilla þessa
þrjá í SAAB. Verksmiðjan hefur á ein-
faldan hátt gert þetta kleift. Blöndung-
arnireru samstilltir. Það eruaðeinstvær
stilliskrúfur að einum og sama blönd-
ungnum. Loftspjöldin þrjú vinna sem
eitt, þar sem þau eru föst á einum gegn-
umgangandi öxli.
sér eins og forláta 6-sprengihólfavél. Að
auki er SAAB nú skemmtilegri bæjar-
bíll en áður, þar sem hin nýja mýkt vél-
arinnar nýtur sín.
Aksturseiginleikar SAAB 1966 eru
þeir sömu vel þekktu og í fyrri árgerð-
um, sem hafa gert það mögulegt fyrir
SAAB fjölskyldubílinn, að komast í
fyrsta sæti í alþjóða þol- og kappakstri,
að vísu oftast með spenntri vél. í
vetrarveðráttu eins og þeirri, sem verið
hefur á Norðurlöndum nú í ár þá hefur
það sýnt sig að framhjóladrifið ásamt
fríhjóladrifinu hefur sannað ágæti sitt.
Er það ekki einmitt við erfiðustu aðstæð-
Vélin er að
framan í
SAAB og er
öryggi í
því
ur, sem aksturseiginleikarnir koma í
ljós, og þá er SAAB tvímælalaust einn
af þeim beztu.
Því heyrist fleygt að SAAB, í sam-
vinnu við TRIUMPH verksmiðjurnar,
séu að koma með nýja fjórgengisvél og
er þetta alveg rétt. Þessi nýja vél á að
fara í nýjan og stærri SAAB, sem vænt-
anlegur er einhvertíma á næstu 3 ár-
um. En það er upplýst af SAAB-verk-
smiðjunum að litli SAABinn með tví-
gengisvélinni haldi áfram í framleiðslu
og er það vel. Með nýjustu endurbótun-
um á tvígengisvélinni hefur þessi litla
vél verið færð skör hærra.
Árgerð 1966 af SAAB er nú eingöngu
4ra gíra. Leitið upplýsinga um bílinn
með tvöfalda bremsukerfið og sem fram-
leiddur er undir kjörorðinu:
„ÖRYGGI FRAMAR ÖLLU“.
SöluumboS Akureyri: Tömas Eyþórsson, c/o Veganesti.
Viögeröir Akureyri: Bifreiöaverkstæöi Rafns og Siguröar, Oddeyri.
Viögeröir Reykjavík: SAAB verkstæöi Jens og Kristjáns, sími 31150.
£tieim SjwnAMh Zr
co. Langholtsvegi 113 Sími 30530
FÁLKiNN
5