Fálkinn - 16.05.1966, Blaðsíða 44
ALCON 1“ dælurnar eru auðveldar í notkun,
hafa Iágan brennslukostnað, og eru mjög létt-
ar. Við höfum selt tugi slíkra dælna, og allar
hafa reynzt framúrskarandi vel.
ALCON 1“ dælan dælir 7000 ltr. ú klst.
Verð kr. 4.906,00.
Slöngur, barkar og rafmagnsdælur í
flestum slærðum fyrirliggjandi.
ÚTVEGUM
f ALLAR GERÐIR OG \
J STÆRÐIR AF DÆLUM ■
GiSLI JÓNSSON&G0.HF.
SKÚLAGÖTU 26 SIMI 11740
Venjulegur ljósmælir, eins og
sá sem ljósmyndarar nota sýn-
ir mikinn mun á dagsbirtunni
innan hringsins og utan og átta-
vitar neita hreinlega að verka.
Til er annað svæði skammt
frá, þar sem svipaðra afla gæt-
ir, en ekki í nærri eins ríkum
mæli og enn er staður í Colo-
rado með rafsegultruflunum,
en hann er heldur ekki eins
áhrifamikill og loftgatið mikla
í Oregon.
Oflin eru þarna að verki og
það er hægt að mæla þau. En
hvers eðlis þau eru og af hvaða
orsökum spunnin, veit enginn.
Oregon loftgatið er áreiðanlega
einkennilegasti staður á jarð-
ríki — og ef til vill einnig sá
„geggjaðasti“.
• Nám í svefni
Framh. af bls. 21.
verkefni, sem ætluð voru nem-
endum, sem höfðu lært ensku
í eitt ár. Blisintsenko þakkaði
árangur þessara tilraunar að
nokkru leyti röddinni sem
fræðsluna veitti. Röddin sem
mennirnir heyrðu var með
bergmálshljómi „eins og það
væri rödd úr öðrum heimi sem
hvíslaði í eyra þeirra.“ En jafn-
vel þó að beitt sé tæknilegum
töfrabrögðum virðist ekki unnt
að fá hinn sofandi mann til að
tileinka sér staðreyndir, sem
eru andstæðar eðli hans. Yfir-
völd í fangelsi nokkru létu
þylja í eyru hóps sakamanna
hvatningarorð um betra sið-
gæði, betri hegðun og meiri
tillitssemi, meðan þeir sváfu.
En þau gáfust fljótlega upp við
þessa tilraun, því að fangarnir
urðu æ uppstökkari og óró-
legri með hverjum deginum
sem leið.
Öllum sem fengizt hafa
við svefnfræðslurannsóknir ber
saman um eitt atriði: hvísl
svefnfræðarans kemur hinum
sofandi manni aðeins að notum,
þegar svefn hans er á ákveðnu
höfgastigi. Nætursvefn heil-
brigðrar manneskju tekur
reglubundnum höfgabreyting-
um. þannig að hann gengur í
bylgjum, sem endurtaka sig
þrisvar til fimm sinnum á nóttu
hverri. í hverri bylgju skiptast
á fjögur höfgastig: maðurinn
sofnar, síðan kemur létt svefn-
stig, þá djúpur svefn og loks
draumastig. En þess ber að
gæta, að röð höfgastiganna get-
ur verið önnur en sagt er hér
að framan. Á djúpsvefnsstiginu
nær hvísl svefnfræðarans alls
ekki til vitundar hins sofandi
manns.
Það sem við höfum nú heyrt
um niðurstöður vísindamanna,
sem stunda rannsóknir á námi
í svefni, gefur okkur engan
veginn tilefni til að falla í stafi
af undrun og hrifningu. Við
þekkjum öll þá staðreynd úr
daglegu lífi, að eyrað vakir
lengur en augað. Malarinn
hrekkur upp af værum blundi.
ef það hættir að skella í myllu-
hjólinu. Og hver móðir þekkir
það af eigin reynslu, hvernig
heili hennar flokkar þau hljóð
sem berast henni til eyrna eftir
að hún er sofnuð. Hún heyrir
ekki háværan gný götuumferð-
arinnar, en minnsta kjökur-
hljóð í barni hennar vekur
hana samstundis.
Einnig kemur til greina, að
á .móti þeim tilraunum sem
borið hafa jákvæðan árangur,
bæði í Bandaríkjunum og Rúss-
landi, koma margar misheppn-
aðar tilraunir.
En þó að visindin séu í vafa
um ágæti þessarar fræðslu-
aðferðar, gera forstöðumenn
hinna nýtilkomnu svefnfræðslu
stofnana sér enga rellu út af
slíku. Þeir telja sig hafa leyst
þessa nýju námsaðferð úr aka-
demískum viðjum og flutt hana
út á meðal fólksins. Cosmo-
phone í Ziirich hefur t. d. ekki
gert neinar sjálfstæðar tilraun-
ir með svefnfræðslu. En það
hefur gert hana að markaðs-
vöru. Það fær viðskiptavinin-
um til umráða einfalt tæki
sem skiptir efni kennsluplöt-
unnar í skammta af hæfilegri
tímalengd. Rásklukka sem
tengd er við plötuspilarann og
nemandinn getur stillt eftir
vild, setur svo spilarann af stað
þrisvar á nóttu.
En þó að nemandinn ákveði
tímann fyrir fræðsluna sjálfur,
gefur fyrirtækið honum þó
þær leiðbeiningar, að nota um-
fram allt fyrstu tvær stundirn-
ar eftir að hann sofnar og eins
síðasta klukkutímann áður en
hann vaknar. Tímasetning 3.
lexíunnar er aftur erfiðari, þar
sem svefnbylgjur fólks eru
mismunandi, sérstaklega eftir
aldri.
Nemendum sem eiga ,,and“-
fróðleiksfúsa maka er ráðlagt
að fá sér koddafræðara, þ. e. a.
s. lítið hátalaratæki, sem hægt
er að stinga undir koddann.
í Bretlandi og Bandaríkjun-
um getur fólk valið um svefn-
námskeið gegn stami, nagla-
nagi, ósjálfráðu þvagláti, reyk-
ingum, drykkjuhneigð, kyn-
getuleysi eða astma. Ekki svo
lítil fjölbreytni það.
En þegar öllu er á botninn
hvolft, hlýtur það að teljast
frumhlaup að hefja almenna
notkun þessarar aðferðar, áður
en gengið hefur verið fullkom-
lega úr skugga um, að hún hafi
ekki skaðleg áhrif á sálarlíf
fólks. T. d. sýna draumarann-
sóknir síðari ára, hversu mikil-
vægt það er, að draumastig
fólks sé ekki truflað. Fólk sem
er hindrað í því að dreyma
verður taugaspennt, og ofsa-
fengið, það verður sjúkt.
Og ef þess er ekki gætt, að
haga svefnfræðslunni þannig,
að hún trufli ekki drauma nem-
andans, getur svo farið, að
fræðarinn undir koddanum
setji þann sem á honum lúrir
alveg út af sporinu, í stað þess
að styðja hann og styrkja á
námsbrautinni.
FÁrKiNN
FLÝKIJK
IJT
44 FÁLKINN
. x