Fálkinn - 16.05.1966, Síða 8
12 ÁRA EITUHHYltJLAlt I ?
Fjölskyldan hér á myndinni er spönsk og heimilisfaðirinn heitir Andres
Martinez del Aguila, en það er alls ekki hann, sem er höfuöpersónan,
heldur stúlkan sem stendur bakatil og á milli foreldra sinni. Hún heitir
Piedad og er 12 ára gömul. Fyrir skömmu dóu fjögur af systkinum henn-
ar á dularfullan hátt og allir héldu að skæð drepsótt hefði tekið sig upp
á heimilinu og nágrannarnir forðuðu sér í önnur hverfi. Við nánari
rannsókn kom í Ijós að bömin dóu af cyankaliumeitrun og nú berast
böndin að Piedad litlu, að hún hafi byrlað þeim eitrið. Ekki er málið
samt fullrannsakað ennþá.
IUERKAR FORIYILEIFAR
Við Sakkara í Nilardal fundust nýlega 5000 ára
gamlar grafhvelfingar sem eiga að líkindum
eftir að varpa nýju og skemmtilegu Ijósi á
daglegt líf manna í Egyptalandi fyrir fimmtíu
öldum. Grafirnar fundust fyrir hreina tilviljun,
þegar fornfræðingar voru að rannsaka áletranir
á vegg í annarri gröf. Veggurinn opnaðist allt í
einu óvænt og þeir gátu gengið beint inn í
dýrðina.' Þar voru fyrir hundruð smurlinga og
það sem meira var: Fjöldi askja með efnum til
líksmurningar. Áletranir báru með sér að þarna
voru m. a. smurlingar konunglegs hirð nagla-
hreinsunarmanns, en það er embætti, sem menn
vissu ekki fyrr að hefði verið til; konunglegs
kjötöflunarmanns og hirðslátrara.
WP
|I I f II fl
DOTTIR
DIETRICII
Svo sem kunnugt er var
Marlene Dietrich lengi
handhafi titilsins „falleg-
asta amman" og svo var
lengi álitið, að hún hefði
fallegustu fætur í heimi.
Kannski er svo enn. En
konan hér á myndinni er
einmitt sú dóttir Marlene,
sem gerði liana að ömmu
á sínum tíma. Hún lætur
ekki mikið á sér bera og
virðist ekki notfæra sér
frægð móðurinnar sér til
framdráttar á nokkurn
hátt. Hún er gift ítölskum
leikfangaframleiðanda.
Aga Khan í kvennaleit
Að því er segir í heimspressunni, er á því nokkur vafi að
Karim Aga Khan haldi titli sínum sem trúarleiðtogi ismalískra
í Indlandi. Hann hefur nefnilega ekki látið fallerast í hjóna-
band enn sem komið er og veldur þegnum sínum miklum
áhyggjum vegna þess. Fyrir nokkru átti að pússa hann saman
við prinsessu nokkra, Shahanaz að nafni, en sá böggull fylgdi
skammrifi að konukindin hafði verið gift áður og var skilin.
Nú er hann helzt orðaður við einhverja Anoucha von Mekhs,
og allir eru heldur vongóðir að úr rætist.
Þrjátíu mánuðum eftir dauða sinn hefur hinn ágæti páfi,
Jóhannes 23. gert kraftaverk. Hann birtist fimni ára gömlum
dreng í draumi, en drengurinn var lamaður á báðum fótum.
I draumnum tók hann fætur drengsins milli handa sinna og
fullvissaði hann um að eftir fjórar vikur gæti hann hlaupið
um eins og félagar hans. Nákvæmlega fjórum vikum síðar,
stóð drengurinn upp úr hjólastólnum og tók til fótanna. Lækn-
ar segja að hér hafi kraftaverk gerzt.
8
FÁLKINN