Fálkinn - 16.05.1966, Side 28
GAMANMYND MEÐ HLJÓMUM
GUNNAR LEIKUR EINS OG ÍSLENZKUR CHAPLIN,
SEGIR PÉTUR ÖSTLUND
Að öllu forfallalausu verð-
ur ný íslenzk kvikmynd
frumsýnd í lok þessa mán-
aðar í einu kvikmyndahúsi
borgarinnar. Hér er um
gamanmynd að ræða og fara
Illjómar með aðalhlutverk-
in; Gunnar, Erlingur, Pétur
og Rúnar. Nafn myndarinn-
ar er ættað frá Afríku,
Umbarumbamba. Um merk-
ingu orðsins þori ég ekkert
að segja, en víst er, að þetta
er einhvers konar tjáningar-
yrði og þá sennilega í sam-
bandi við ástina einu og
sönnu. Hljómar flytja sex
lög í myndinni; öll eftir
Gunnar Þórðarson, en text-
ana samdi Pétur Östlund, en
þeir eru allir á ensku. Um
svipað leyti og myndin verð-
ur frumsýnd, kemur út
vandað albúm, sem inniheld-
ur tvær plötur með lögum
úr myndinni. E.M.l. mun
sjá um dreifingu þeirra er-
lendis, en eins og kunnugt
er, hafa Hljómar gert
tveggja ára samning við
þessa voldugu hljómplötu-
útgáfu. Sýningartími mynd-
arinnar er um 30 mínútur.
í tilefni þessa merka at-
burðar í „beat-sögu íslend-
inga, rabbaði ég við fjór-
menningana og framleið-
anda kvikmyndarinnar, Jón
Lýðsson, kvöld eitt í Ingólfs-
kaffi. Þegar ég spurði pilt-
ana, hvernig þeim hefði fall-
ið að sjá sig á hvíta tjald-
inu, svaraði Pétur:
Gunnar er fæddur gaman-
leikari. Síðan bætti hann
við, hlæjandi: Það er enginn
vafi á því, að hann er hinn
íslenzki Chaplin.
Gunnar reyndi að mót-
mæla og bað mig lengstra
orða að setja ekki þessa
dellu úr honum Pétri í Fálk-
ann — og ég lofaði því.
Hvenær hófst taka mynd-
arinnar?
JÓN: Það mun hafa verið
seinnipartinn í júlí í fyrra-
sumar. Þetta stóð yfir í 3
mánuði, og var myndað á
ýmsum stöðum fyrir austan,
t. d. að Aratungu og Hvoli.
GUNNAR: Skömmu síðar
fórum við til Englands til
að Ieika inn á segulband
músíkina við myndina. Við
erum mjög ánægðir með
þessar upptökur hjá E.M.I.
í London, enda hafa margar
frægar hljómsveitir unnið
einmitt í þessu sama stúdíói,
t. d. Swinging Blue Jeans,
Who o. fl. Það tók samtals
16 tíma að taka þessi 9 lög
upp.
Gekk ekki erfiðlega að
kvikmynda á sveitaböllun-
um?
JÓN: Við þurftum að hafa
sérstakan mann til að sjá
um, að kvikmyndatökumað-
urinn yrði ekki ónáðaður, og
hafði hann nóg að gera. Þó
var sérstaklega erfitt um
vik í Aratungu, vegna þess
að dansgestirnir vildu ólm-
ir komast upp á sviðið til
Hljóma, hvort sem það hef-
ur verið þessi vanalega til-
beiðsla eða, að þá hefur
langað til að vera þátttak-
endur í myndinni.
Hvers vegna eru lögin
með enskum texta?
PÉTUR: Það er vegna
þess, að myndin er fyrst og
fremst framleidd sem út-
flutningsvara. M. a. hefur
komið til tals, að hún verði
sýnd í sjónvarpi erlendis
eða sem aukamynd í kvik-
myndahúsum. Hér verður
hún sýnd um land allt og
er meiningin, að við ferð-
umst með henni og leikum
fyrir dansi á þeim stöðum,
sem hún verður sýnd.
Hvað heita lögin?
RÚNAR: I don’t care,
Country dance, Love enough,
Better days, My life og að
lokum If you knew, sem er
þekktara undir nafninu Ertu
með? Myndin hefst á því,
að við erum á leið á sveita-
ballið og auðvitað allir á
hestum. Meðan á þessu at-
riði stendur er Country
dance leikið.
ERLINGUR: Þessi sena
var margtekin, því Pétur
greyið var alltaf að detta af
baki.
PÉTUR: Ég man nú ekki
betur en að þú dyttir æði
oft líka. En það fór ónota-
tilfinning um mig, þegar
hesturinn, sem hljóðfærin
voru bundin á, trylltist og
skeiðaði burt.
ERLINGUR: Það var stór-
kostlegt atriði. Pétur fórnaði
höndum í örvæntingu, enda
engin furða, því trommu-
settið ha.,s er virt á 93 þús-
und.
Er L.P. plata í bígerð?
GUNNAR: Seinni partinn
í sumar kemur út hæggeng
hljómplata og það er enginn
vafi á því, að hún mun
koma á óvart. Lögin, sem
eru í kvikmyndinni eru í
ekta beatstíl, en síðan hef-
ur músíksmekkur okkar
breytzt, og kemur það glöggt
í ljós á þessari L.P. plötu.
JÓN: Það hefur verið
lögð mikil vinna í þessa
kvikmynd og ekkert til spar-
að, enda er árangurinn góð-
ur. Piltarnir taka sig allir
mjög vel út í myndinni og
búa yfir góðum leikhæfi-
leikum. Þá má geta þess,
að nú þegar er í bígerð önn-
ur kvikmynd með Hljómum
og verður hún þá í fullri
lengd.
28 FÁLKINN