Fálkinn - 16.05.1966, Page 30
ROLLS-ROYCE FRÁ 1911 FÓR FYRIR MILLJÓN
Bandaríkjamaður nokkur borgaði 9800 £ (meira
en milljón ísl. kr.) fyrir Rolls-Royce ..Silver Ghost“
—smíðaár 1911.
Tilsvarandi nútímaútgáfa af Rolls-Royce heitir
„Silver Shadow“. Hann kom á markaðinn fyrir
nokkrum mánuðum og kostar aðeins 6557 £, eða
tæplega 800 þúsund ísl. kr.
Það var hið fræga uppboðsfyrirtæki Sotheby í
London, sem bauð upp 56 gamla bíla á tveimur
klukkustundum, og voru þeir slegnir á samtals um
átta milljónir króna. Þetta var í fyrsta skipti sem
haldið var uppboð á „bílaöldungum" hjá Sotheby.
Annars hafa þar eingöngu verið á boðstólum lista-
verk og gamlar bækur, eins og við íslendingcir
könnumst við síðan Skarðsbók var borin þar upp,
sællar minningar.
Talsmaður fyrirtækisins lét svo um mælt, að
Sotheby liti á þessi úrvals sýnishorn gamalla bila
sem listaverk á sína vísu.
Meðal bílaöldunganna var glæsilegur vagn, sem
hafði verið í eigu framkvæmdastjóra Rolls-Royce
verksmiðjanna sir Henry Royce, eins og gefur að
skilja af gerðinni Rolls-Royce. Yngstur á uppboð-
inu var Horchbíll frá 1939.
Nýi eigandinn að hinum 6 m langa „Silver
Ghost“, sem á sínum tíma var smíðaður fyrir
austurlenzkan maharaja, sagði: „Þessi vagn er ein-
stök gersemi. f mínum augum verður hann ekki
metinn til fjár.“
Tveggja sæta skemmtiferðavagn, Sun,-
beam, af árgerð 1903, með 12 hestafla
vél. Þessi bíll fannst fyrir nokkrum ár-
um og var þá 1 mjög slæmu ásigkomu-
lagi. En það þurfti aðeins að endumýja
fáeina hluti í honum til þess að gera
hann gangfæran á ný. Hann fór á upp-
boðinu fyrir ca. 370.000,00 kr.
Minervette var þessi tveggja sæta bif-
reið frá belgísku bílaverksmiðjunni
Minerva nefndur. Hann er frá árinu
1904 og hefur 5 hestafla vél. Þetta farar-
tæki ber mikinn svip af fjórhjóla hest-
vagni. Bíllinn á myndinni er einn af
þremur sinnar tegundar í heiminum.
Skiltið undir númersplötunni gefur til
kynna að þessi vagn er ! eigu „Bílaöld-
ungaklúbbs".
Fjögurra-lítra-Bentley frá árinu 1931, byggðu
Vélarorka þessa tveggja sæta Swift
bíls með blæjuþaki er 7 hestöfl. Hann
var smíðaður 1906 af fyrirtæki, sem
áður framleiddi reiðhjól, og vélin hef-
ur aðeins einn strokk. Þetta aldna farar-
tæki hefur eðeins einu sinni skipt um
eiganda áður. SwiftbíIIinn tók þátt á
mörgum kappökstrum og stóð sig vel,
þó að ekki sé tryllitækið margra gata.