Fálkinn - 16.05.1966, Page 48
Hrein húð, silkimjúkt hár, mjúkar
hendur og umhugsun alls líkamans er
merki um góða umhyggju.
Árangur af góðri umhirðu húðarinn-
ar og líkamans kemur fram með árun-
um.
Það er ætlazt til, að konur séu allar
aðlaðandi. Samt sem áður gleyma marg-
ar konur þessu.
Illa hirt hár, óaðlaðandi hendur og
neglur, ljót húð er vöntun á virðingu
fyrir sjálfum sér og öðrum.
Daglegt bað þvær burt fitu og svita
sem kemur yfir sólarhringinn um allan
líkamann.
Konan verður að finna rétta sápu sem
hæfir húðinni (karlmaðurinn engu síð-
ur). Hver og ein kona á að velja sér
baðolíu, baðsalt og talkum af eigin
smekk vegna ilmsins.
Oft þarf líkaminn mýkjandi krem
eða vökva eftir bað og ekki má gleyma
fótunum.
Hreinsun og uppfrískun líkamans er
jafnáríðandi og góð umhirða andlits-
ins.
Ásamt sápu. baðolíu eða baðsalti haf-
ið bursta með löngu skafti og vel þykk-
an þvottapoka til að vekja frumurnar
og blóðrennslið og að sjálfsögðu til að
fjarlægja dautt skinn.
Sturtubað eftir það er æskilegt.
Hafið vikulega pimpstein eða því um
líkt til að fjariægja sigg á fótunum.
Notið naglabursta til að skrúbba fæt-
urna, olnboga og hendur. Notið mikla
sápu. Skolið húðina út tæru vatni þar
sem sápan þurrkar jafnt húðina á líkam-
anum og andliti.
Þurrkið líkamann hressilega með
góðu þykku handklæði.
Skellið handklæðinu yfir herðarnar,
undir handleggina þvert yfir bakið og
mjaðmirnar. Þurrkið vel og líflega.
Þetta er sagt það næstbezta við nudd.
Ýmsar þekktar skemmtilegar vörur
eru til til að gera böðun skemmtilega,
afslappandi og um leið frískandi.
FÆTUBNIR:
Sárir fætur geta orsakað hrukkur í
andliti.
Áður hefur verið minnzt á, hvernig
skal baða fæturna. Eftir bað þarf að
þurrka fæturna vel, sérstaklega milli
tánna til að varna að húðin springi. Ef
einhver óvenjuleg sár eru á fótum, vitj-
ið þá læknis.
Hér koma nokkrar leiðbeiningar um
meðferð fótanna.
Verið viss um að skórnir passi. Ann-
ars bezt að losa sig við þá.
Lofið að fara aldrei aftur í skó sem
hæfa ekki fætinum.
Skerið aldrei líkþorn eða sigg. Það
orsakast venjulega af skóm sem passa
ekki. Ef sársauki er í líkþornum og
siggi, látið fótasérfræðing fjarlægjá
þessi óþægindi.
Skiptið um skó að minnsta kosti einu
sinni á dag. Þetta er afar áríðandi ef
háir hælar eru notaðir meirhluta dags-
ins.
Setjið fótaduft eða talkum á fæturna
og inn í skóna daglega.
Ef fæturnir bólgna, hvílið þá í salt-
vatni eða volgu vatni með góðu fóta-
salti. Leggið fæturna upp við öll tæki-
færi til að hjálpa blóðrásinni. Nudd
hjálpar einnig.
Þegar búið er með hina vikulegu
hreinsun fótanna ætti mýkjandi krem
eða vökvi að nuddast inn í fæturna.
Það heldur húðinni mjúkri og hjálpar
blóðrásinni.
Setjið Cologne (Steinkvatn) á fætur
sem eru heitir og þreyttir. Þetta minnk-
ar hita húðarinnar og varnar bólgum.
Gefið sjálfum ykkur góða fótsnyrt-
ingu vikulega. Það er ekki nauðsynlegt
að lakka neglurnar en til að láta sér
líða vel í fótunum verður að hugsa vel
um neglurnar og naglaböndin ásamt
öðrum hlutum fótanna.
Skerið eða klippið táneglurnar beint
fyrir til að varna að nöglin vaxi inn í
holdið. Rúnnið þær ekki eins og negl-
urnar á fingrunum.
Notið naglabandamýki og sérstaklega
gerð lítil prik (orangewood) til að
þrýsta aftur naglaböndunum á tánum.
Aldrei að klippa naglaböndin.
Munið að betra er að hafa ekkert
naglalakk en illa gert.
SVITAMEÐUL:
Margir halda að svitameðul séu ný-
næmi. Svo er ekki. Það er hægt að
fara aftur á 13. öld þar sem búið var
til duft til varnar svita. Formúlan var
einhvers konar lauf, ýmis ,hvít“ púð-
ur og svolítið af rauðvíni.
Nú eru svitameðul alveg sjálfsagð-
ur hlutur og margar gerðir til af þeim.
Notið gott svitameðal reglulega, en
ekki bara öðru hvoru.
Leiðbeinið unglingum jafnt drengj-
um sem stúlkum að nota svitameðul.
Þá má ýta undir karlmennina og
sumar konur með not á þessari afar
nauðsynlegu vöru.
Allt svitakrem verkar bezt, þegar bor-
ið er á hreina þurra húð.
Margs konar styrkleiki er fáanlegur,
veljið þann sem hæfir bezt.
Það er æskilegt að skipta öðru hvoru
um svitakrem, maður getur orðið ónæm-
ur fyrir þeim.
Nota á svitakrem strax eftir daglegt
báð. Þá daga sem tíðir fara fram eða
eitthvað reynir á, er æskilegt að nota
svitakrem tvisvar á dag.
Bezt er að setja ekki svitakrem undir
hendur fyrr en átta stundum eftir að
hár hafa verið fjarlægð.
HÚÐ OG MEÐFERÐ
ANDLITSINS:
Aukahár:
Hár á andliti. Allar konur hafa eítt-
hvað af hárum á andliti. Það er aldrei
til leiðinda nema þau séu dökk eða
mikið af þeim.
Það kemur fyrir að hárvöxtur auk-
ist á breytingartímabilinu. Þegar konur
eru miðaldra. Einnig oft eftir móður-
lífsaðgerðir. Möguleiki er á að læknar
geti gert eitthvað í því tilfelli.
Hár undir handleggjum. Það er tal-
inn sjálfsagður hlutur að fjarlægja hár
undir handleggjum. Auðveldast er að
nota rakvél. Gætið þess að raka ekki
of þétt að húðinni svo að hún skaðist
ekki. Ef rakað er undir höndum, þá
notið svitameðul átta stundum síðar.
Ekki fyrr.
FALKINN