Fálkinn - 27.06.1966, Blaðsíða 6
Fálkinn
24. tbl. — 39. árg. — 27. júní 1966.
EFIMI
SVARTHÖFÐI SEGIR ....................... 6—7
ALLT OG SUMT............................ 8—9
HINN NÝI ELSKHUGI KVIKMYNDANNA....... 10—13
ELZTI MAÐUR VERALDAR ................. 14—17
SÁLFRÆÐI DAGLEGA LÍFSINS ................ 16
LEYNDARDÓMAR í IÐRUM JARÐAR ......... 18—21
LEIKIÐ FJÓRHENT, ný framhaldssaga eftir Hildu
Lawrence .......................... 22—24
FURÐUR HIMINS OG JARÐAR eftir Hjört Hall-
dórsson ........................... 26—27
BÍTLATÍZKAN OG KLÆÐNAÐUR UNGA
FÓLKSINS ......................... 28—29
HVAÐ SEGJA ÞEIR f FRÉTTUM, rætt við helztu
myndastyttur hæjarins ............. 30—31
BRENNIMERKT, framhaldssaga eftir Erik Nor-
lander ............................ 32—34
STJÖRNUSPÁ .............................. 35
f SVIÐSLJÓSINU ....................... 36—37
BARNASAGA ............................. 47
SNYRTING: HENDUR OG NEGLUR .............. 48
FORSÍÐAN: Bítlatízkan frá Karnabæ. — Ljósmynd: R. G.
í NÆSTA BLAÐI verður meðal annars frá-
sögn í máli og myndum ai hinu hörmu-
lega slysi í Belgíu er mikill hluti aí börn-
unum $ skólabekk einum íórst er veriS
var aS kenna umlerSarreglur. Grein verS-
ur um estrogen, hormónalyiiS, sem virSist
geta viShaldiS œskuþokka kvenna iram á
elliár. Sveinn Sœmundsson ritar grein um
Eyþór í Lindu á Akureyri í flokknum: LeiS-
in til fjár og frama. Og Þorsteinn fráHamri
skrifar um Drekkingarhyl i Almannagjá,
én þar var konum drekkt fyrr á öldum og
allt fram á átjándu öld. Önnur greinverSur
um hellakönnun, og nú um islenzka hella,
og þegar talaS er um íslenzka hella er
ekki hœgt aS komast hjá aS tala um tröll
eins og íslenzkar þjóSsögur frœSa okkur
um þau. Þá er viStal viS franska snyrti-
dömu og staShœfir hún aS karlmenn þurfi
aS nota krem. Svo má ekki gleyma föstu
þáttunum: Svarthöfða, sálfrœði daglegs
lífs, Undarlegum hlutum, I sviðsljósinu og
Allt og sumt.
Ritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson (áb.). BlaÖamenn: Steinunn S.
Briem, Grétar Oddsson. Ljósmyndari og útlitsteiknari: Rúnar
Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Hrafn Þórisson. Auglýsingar:
Fjóla Tryggvadóttir. Dreifing: Kristján Arngrímsson. Útgefandi:
Vikublaðið Fálkinn h.f. AÖsetur: Ritstjórn, afgreiösla og auglýs-
ingar: Grettisgötu 8, Reykjavík. Símar 12210 og 16481. Pósthólf
1411. — Verð í lausasölu 30,00 kr. Áskrift kostar 90,00 á mánuði,
á ári 1080,00 kr. Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.f.
Prentun meginmáls: Prentsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Mynda-
mót h.f.
6
FÁLKINN
islenzku blööin
EIN af undirstöðum lýðræðisins er óháð skoðanamyndun,
hinn opni vettvangur, þar sem sagt er frá málum eins
og þau eru. í mörgum löndum Evrópu hafa óháð blöð löng- (
um verið talinn hornsteinn slíkrar skoðanamyndunar, og í
Bandaríkjunum þykir sjálfsagt að blöðin séu óháð, þótt þau
styðji ákveðna stjórnmálastefnu hverju sinni, og er það ekki
alltaf stefna sama flokksins, sem hvert blað styður. Þannig ,
myndast æskileg hreyfing á vettvangi stefnumála, sem hefur
það eitt að markmiði að hirða úr það bezta á hverjum tíma.
Eins og í mörgu öðru, þá hefur ísland nokkra sérstöðu hvað
blaðaútgáfu snertir. Hér eru öll dagblöð gefin út sem flokks-
blöð, þótt hlutafélaganafn kunni að fylgja einhverju þeirra.
Afleiðingin verður meira eða minna lokaður heimur, þar sem
mikill hluti þýðingarmikilla upplýsinga er látinn liggja í
þagnargildi, og kemur aldrei fyrir almenningssjónir. Hafa
flokksblöðin í því efni mótazt mjög af eigendum sínum eða
ráðamönnum, sem skipa hið lokaða stéttarfélag á Alþingi. Þau
hafa þá meginstefnu að reka áróður, og hlutlausar upplýs-
ingar komast ekki að, nema í málum, sem ekki snerta pólitík.
íslenzku blöðin styðja því mjög að þeirri þróun að gera flokk-
ana að trúarsöfnuðum með viðeigandi postulabréfum flokks-
forustunnar. Sem blöð eru þessi flokksmálgögn einskis nýt og
þeim er ekki treystandi til að segja óbrenglað frá öðru en
konsertum, ínálverkasýningum og bíóum. Slíkt ástand hefði
átt að vera búið að kalla á útgáfu óháðs blaðs fyrir löngu, en
ekkert slíkt blað hefur séð dagsins ljós enn fyrir utan Mvnd-
ina, sem hóf göngu sína með því að boða kartöfluskort hjá
Vestmannaeyingum. Blaðið dó fljótlega, þótt ekki væri það
úr kartöfluskorti. Óháð blað sem kæmi út í dag hefði gífur-
lega áríðandi hlutverki að gegna, sem varðaði þjóðarheill,
og myndi geta, ef rétt væri á haldið, losað um trúarhöftin á
meðlimum flokkanna, og gert einstaklinginn færari um að
dæma en áður. Lýðræðið verður ekki til í þingsölum. Það er
flutt þangað af glöggum og upplýstum almenningi, sem er læs.
Sluður til sölu
INN í það tómarúm. sem flokksblöðin hafa skapað hér á
landi, hafa með árunum komið þrjú vikublöð sem margur
■ Þakkir
fyrir grein
Kæri Fálki!
Ég var að ljúka við að lesa
frásögn leigubílstjórans í 19.
blaði þínu. Ég vil fyrst og
fremst þakka hana, hún er því
miður sannleikurinn sjálfur,
svo hörmulegur sem hann er.
Það er þyngra en tárum taki
að sjá ungt og efnilegt fólk
eyðileggja sjálft sig á vin-
neyzlu, en eru þeir fullorðnu
ekki fyrirmyndin þar eins og
viðar, ætli unga fólkið sé ekki
að reyna að leika eftir þeim
eldri, smeykur er ég um það.
Ég vildi að frásögn þessa ágæta
bílstjóra birtist i öllum blöðum
sem gefin eru út hér á landi,
ef ske kynni að hún opnaði
augu einhverra fyrir okkar
stærsta böli. Hafið kæra þökk
fyrir umrædda grein. Betur áð
fleiri blöð birtu svipaðar frá-
sagnir.
Með kveðju.
Kona.'
Svar:
Þökkum bréfiö. Okkur fjykir
lofiö gott.
Hinn grái
hversdagsleiki
Kæra pósthólf!
Þegar ég og maðurinn rninn
vorum ennþá í tilhugalífinu, Þá
talaði hann alltaf við mig um
franitíðardrauma sína og önn-
ur áhugamál. Núna eftir að