Fálkinn - 27.06.1966, Blaðsíða 16
SAUFRÆÐI DAGLEGA LIFSINS
ROAIMDI
LITIR
VIÐ eyðum að minnsta
kosti einum þriðja æv-
innar í hvíld eða svefn,
þannig að við ættum að
leggja rækt við svefnher-
bergið okkar. Þar er bezt
að hafa róandi liti og hús-
muni, svo að við getum
sla’ppað vel af.
Sterkir litir koma ekki til
greina í svefnherbergi, en
mjúkir daufir litir eru
ákjósanlegir. Engin gljá-
málning á gluggakistur eða
lista — sólarljósið eða birtan
frá götuluktunum getur
speglazt í henni og truflað
ró okkar. Spegillinn yfir
snyrtiborðinu þarf líka að
vera á heppilegum stað. Bezt
er að hafa hann á sama vegg
og gluggann, þannig að birt-
an skíni á þann sem er að
spegla sig, en ekki á spegil-
inn sjálfan. Að minnsta kosti
má sólin ekki geta skinið
beint á spegilinn.
Loftljós eru ekki æskileg
i svefnherbergi nema meðan
verið er að taka til, vegna
þess að þau verka ekki ró-
andi. Rúmlampar á veggn-
um eru ágætir ef þeir lýsa
vel án þess að skína í augun
á okkur. Skermarnir ættu
að vera með hlýjum lit, ekki
dökkir, svo að ljósið geti
ekki skinið í gegnum þá, og
ekki svo ljósir, að peran
skíni í gegn. Húsgögnin
mega ekki vera köntuð með
hvössum hornum — það er
ekkert eins laust við að vera
róandi og að reka sköflung-
inn eða mjöðmina í hvassa
brún eða horn.
Gluggatjöldin þurfa að
vera nógu dökk og þétt til
að útiloka birtu. Þótt sumir
geti sofið prýðilega í björtu
herbergi finnst flestum
betra að hafa eins dimmt
og mögulegt er. Gömlu
dökkgrænu rúllugardínurn-
ar voru ágætar og þjónuðu
sínum tiigangi, en þær eru
komnar úr tízku af fagur-
Amalía Líndal
fræðilegum orsökum. Rimla-
tjöld geta dregið talsvert úr
birtu, en til að myrkva her-
bergið algerlega eru glugga-
tjöld oft notuð til viðbótar
og skapa þá vistlegri blæ.
Herbergi sem aðeins hefur
rimlatjöld fyrir gluggunum
er likara skrifstofu en svefn-
herbergi. Ef efnið í tjöldun-
um er þunnt skuluð þið at-
huga, að dökkir litir útiloka
blrTuna betur en ljósir. Ef
tjöldin eru úr þykku efni
eruð þið hins vegar frjálsari
í litavali, því að þá sést
hvort eð er ekki svo mikið
í gegnum þau.
Teppi á gólfinu verkar ró-
andi, en það er ekki eins
auðvelt að hreinsa það og
venjulegan gólfdúk. Ef þið
hafið teppi út í horn verður
loftið heldur ekki eins ferskt
inni, jafnvel þótt glugginn
sé opinn allan daginn. Aftur
á móti dregur teppi út í
horn mjög úr hávaða, en
sama er að segja urh hús-
gögn og gluggatjöld. Mottur
við rúmið eða stólana eru
hagkvæmar, auðvelt að þrífa
þær og hreyfa til eftir þörf-
um.
Ef svefnherbergið snýr til
suðurs verka gulir eða appel-
sínugulir litir of æsandi, en
sé það móti norðri gerir ekki
til, þótt þessir litir séu not-
aðir í hófi. í verulega róandi
svefnherbergi eru tilvalin
dökkbrún gluggatjöld og
dökkbrúnt, þykkt rúmteppi
sem dregur úr hávaða. Gott
er að hafa bæði gluggatjöld
og rúmteppi í sama litnum,
t. d. dökkbrún, dökkgræn
eða dökkblá. í setustofu
kynni það að verka of ein-
hæft, en í svefnherberginu
þurfum við að hafa kyrrð
og ró.
Myndirftar á veggjunum
ættu að vera fáar og vel
valdar. Á þessar myndir
munuð þið horfa þegar þið
Framh. á bls. 27.
Tannlæknir rannsakar elztu
tennur í heimi, þær scm |
enn eru uppi í lifandi
manni. (Fremri opna til
hægri).
Shirali er greinilega ekki
vaxinn fullkomlcga upp úr
dálitlum spjátrungshætti.
Hér mátar hann stráhatt
fyrir framan spegil (Fremri
opna, miðmynd).
Hejzt er að sjá að Shirali sé
að éta brauðsneið á þessari
mynd (fremri opna til
vinstri), en hvort sem það
er rétt eða ekki, vekur
það mikla kátínu hjá
áhorfendum.
Elzti maður heims á hest-
baki og tekur í höndina á~
lestarstjóra. Eitthvað
hlýtur gamla manninum
að vera farið að förlast í
hestamennskunni, því að
aðstoðarmaður hans verður
að halda við færleikinn.
(Efri mynd til vinstri).
Shirali á skólabekk, þó seint
sé. Verið er að útskýra
fyrir honum gerð einhvers |
torkennilegs hlutar.
(Neðri mynd til hægri).
|
3
Þarna skoðar hann rifbeinin
í sjálfum sér með hjálp
nýjustu tækni. Þau virðasi
bæði kát, læknirinn og
hann. (Efri mynd til hægri),
i
i
Hér er verið að fylgja
Shirali yfir götu í stórborg.',
(Sjá neðri mynd til vinstri),
Líklcga er gamli maðurinn
ekki aldeilis dús við
umferðina, svo nýkominn
ofan úr fjöllunum.
Myhdir: N. Rakmanov APN.
16
FALKINN