Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Page 17
bundið verð hjá okkur, þannig að við tökum áhættuna
af verðlaginu á meðan.
- Hverju þakkar þú þennan árangur ykkar?
- Eg þakka hann eingöngu því, að við byggjum í nógu
stórum einingum og á endurtekningu.
Við höfum reynt að ná sem flestu í bindandi samninga
með útboðum; eldhúsinnréttingum, klæðaskápum, sól-
bekkjum, hurðum, gluggum, teppum og svo framvegis
og allir þessir þættir hafa unnið með okkur.
- En þetta kallar á fjármagn?
— Rétt er það. Enginn nær hagkvæmum verksamning-
um, nema hann hafi fé til að binda samninginn og svo
til að halda honum. En þetta hefur gengið þolanlega hjá
okkur með lítils háttar bankafyrirgreiðslu.
- Þú telur þá stór samtök vera bjargræðið?
— Stærðin skapar tvímælalaust hagræðingu. Takmörk
hljóta að vera á báða bóga; bæði hvað borgar sig að
vera smár í sniðum og svo hitt, hve stórt má byggja án
TIMARIT IÐNAÐARMANNA
53