Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 71
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 2009 51
FÓTBOLTI Karlalandslið Íslands
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
mætir San Marínó ytra kl. 19.30 í
kvöld en leikurinn er liður í undan-
keppni EM 2011. Eyjólfur Sverris-
son, landsliðsþjálfari U-21 árs liðs-
ins, er að vonum bjartsýnn fyrir
leikinn en íslenska liðið hefur farið
vel af stað í undankeppninni og
San Marínó er með áberandi sla-
kasta liðið.
„Það fer bara vel um okkur
hérna í sól og fimmtán stiga hita.
Þetta er líka fallegt bæjarstæði
í San Marínó og gaman að koma
hingað. Við erum vitanlega með
betra lið en þeir eins og sást ber-
sýnilega á fyrri leik liðanna á
Laugardalsvelli sem endaði 8-0
en leikurinn byrjar náttúrlega 0-
0 og við verðum að vera á tánum
og halda okkar striki. Við höfum
verið ákveðnir í okkar gjörðum,
verið sérstaklega áræðnir fram á
við og spilað oft á tíðum frábær-
an sóknarbolta. Við erum fljótir að
sækja og það hefur gengið vel og
það er því ekkert annað en sigur
sem kemur til greina,“ segir Eyj-
ólfur.
Íslensku strákarnir hafa unnið
þrjá af fjórum leikjum sínum til
þessa í undankeppninni, þar af
vann liðið San Marínó og báða leik-
ina gegn Norður-Írlandi en tap-
aði á móti Tékklandi. Ísland á svo
eftir að mæta Þýskalandi í tveimur
leikjum og Tékklandi á útivelli og
Eyjólfur segir að framhaldið ráð-
ist eðlilega á þeim leikjum.
„Við vorum í raun algjörir klauf-
ar þegar við töpuðum gegn Tékk-
um í leik sem við hefðum ekkert
átt að tapa og ég tel því að við
séum vel á pari við bæði Tékka og
Þjóðverja. Við sýndum það bara
með sigrunum gegn Norður-Írum
og það kæmi mér reyndar ekk-
ert á óvart ef Norður-Írar næðu
að stríða Tékkum og Þjóðverjum.
Það er ekki spurning en leikirn-
ir gegn Tékklandi og Þýskalandi
munu skera úr um hvað við náum
langt í þessu,“ segir Eyjólfur. -óþ
U-21 árs landslið Íslands mætir San Marínó í undankeppni EM 2011 í kvöld:
Erum vitanlega með betra lið
ÖFLUGIR Strákarnir í U-21 árs landsliði Íslands hafa farið vel af stað í undankeppni
EM 2011 en þeir mæta San Marínó í kvöld í leik sem fyrir fram má álykta að sé auð-
vinnanlegur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Heildarútgáfa
Savanna tríósins er komin út
70 lög á þremur geislaplötum. Útgáfunni fylgir 64 síðna rit sem Jónatan
Garðarsson hefur tekið saman um feril tríósins í máli og myndum.
Savanna tríóið starfaði aðeins í fimm ár, frá 1963 til 1968. Það er skipað
þeim Birni G. Björnssyni, Troels Bendtsen og Þóri Baldurssyni.
Þessi útgáfa á heildarútgáfu Savanna tríósins er mikill fengur fyrir þá
sem hafa gaman af þjóðlagatónlist og áhuga á þróun íslenskrar
dægurtónlistar, en plötur Savanna tríósins hafa verið ófáanlegar lengi.
Upptökurnar hafa verið hreinsaðar og snyrtar á stafræna vísu og hafa
aldrei hljómað betur en nú.
Savanna tríóið
3CD
FÓTBOLTI Markvörðurinn Carlo
Cudicini hjá Tottenham lenti
í alvarlegu mótorhjólaslysi
snemma í gærmorgun en lögregl-
an í Lundúnum sagði að slysið
hefði getað orðið lífshættulegt.
Cudicini keyrði þá á BMW-
mótorhjóli sínu inn í hlið á Ford
Fiesta-bifreið en slapp með
meiðsl á hendi og mjöðm sam-
kvæmt opinberri heimasíðu
Tottenham. Ekki lá fyrir í gær
hversu alvarleg meiðslin voru
hvað varðar framtíð leikmanns-
ins í fótboltanum en hann var
fluttur á sjúkrahús í austurhluta
Lundúna til aðhlynningar og nán-
ari skoðunnar. - óþ
Carlo Cudicini hjá Tottenham:
Meiddist illa í
mótorhjólaslysi
CARLO CUDICINI Sagður heppinn að
sleppa lifandi úr mótorhjólaslysi í gær.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Aganefnd enska knatt-
spyrnusambandsins, FA, hefur
dæmt knattspyrnustjórann Sir
Alex Ferguson hjá Englands-
meisturum Manchester United
í tveggja leikja bann auk sektar
fyrir ummæli hans í garð dómar-
ans Alan Wiley.
Ferguson ásakaði Wiley eftir 1-
1 jafntefli United við Sunderland
um að vera ekki í nægilega góðu
líkamlegu ásigkomulagi til þess
að ráða við hraða leiksins.
Ferguson þarf að greiða 20 þús-
und punda sekt og má ekki vera
á hliðarlínunni í tveimur leikjum
United auk þess sem hann gæti
þurft að taka út tveggja leikja
bann til viðbótar ef framkom-
an endurtekur sig á næstu átján
mánuðum. - óþ
Dæmt í máli Sir Alex:
Sekt og tveggja
leikja bann
SIR ALEX Er yfirleitt óhræddur við að
segja hlutina eins og þeir eru.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES