Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
FÖSTUDAGUR
20. nóvember 2009 — 275. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Athafnavika
Ný prjóna-
mynstur
Hannyrðafólk bíður spennt eftir
nýju prjónamynstri í dag.
ATHAFNAVIKAN 22
SAMUEL KAMRAN GILL
Stendur glaður yfir
pottunum á Tandoori
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
AUÐUR FYRR OG NÚ er yfirheiti útgáfuteitis sem fram fer í Þjóðminjasafninu klukkan 13 á laug-ardag. Þar verður fagnað útkomu sögulegu skáld-sögunnar Auðar eftir Vilborgu Davíðsdóttir en í bókinni fjallar hún um ævi landnemans Auðar djúpúðgu. Dagskráin er öllum opin.
Samuel Kamran Gill hefur mikla ánægju af eldamennsku. Hann fær útrás fyrir henni á hverjum degienda er hann yfi
Fæst við framandi keim
Samuel Kamran Gill stendur yfir pottunum á nýja indverska veitingastaðnum Tandoori og hefur ánægju
af. Hann mun þó taka sér frí frá störfum í dag enda á hann von á sínu fjórða barni.
Á Tandoori er bæði hægt að borða á staðnum og taka með sér. Sé borðað á staðnum er hægt að ráða styrkleika matarins og
kemur það Samuel á óvart hversu margir velja sterkt.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KJÚKLINGUR PUNJABI
Snitzel
samloka
Kaffi tería Perlunnar á 4. hæðSnitzel samloka með súrsuðum rauðlauk, fersku káli og piparrótarsósu
Villibráðarhlaðb ði
Aðeins
790 kr.
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 20. nóvember 2009
HINN
DULDI
ÞOKKI
Sjáumst í
Smáralind!
INGÓ VEÐURGUÐ
Leikur í Rétti 2
Jón Gnarr og Erlingur Gíslason
einnig meðal leikara
FÓLK 58
Íslenskar múffur
á markaðinn
Steinar Júlíusson, graf-
ískur hönnuður, bakar
og selur múffur
undir nafninu
Meistaramúffur.
FÓLK 58
STEINUNN SIGURÐAR
Opnar sína fyrstu
einkasýningu
Segir verulega sprengingu hafa orðið í fatahönnun
FÖSTUDAGUR FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Hvasst á Vestfjörðum Í dag
verður allhvöss NA-átt á Vestfjörð-
um en annars hægari SV-lægar
áttir og hæg breytileg átt norðan
til. Víða skúrir eða slydda með
köflum en léttir til austan til.
VEÐUR 4
1
2
4
5
7
ATVINNUMÁL Framleiðsluverð-
mæti íslensks fiskeldis er áætl-
að um þrír milljarðar á þessu ári
en hefur verið á bilinu 1,7 til 3,3
milljarðar á undanförnum fimm
árum. Í nýrri skýrslu Landssam-
taka fiskeldisstöðva (LF) um stöðu
fiskeldis hér á landi er því spáð
að framleiðslan muni tvöfaldast
til ársins 2015 og verði þá um tíu
þúsund tonn.
Framleiðslan hefur dregist
saman á síðustu árum og er skýr-
ingarinnar að leita í samdrætti
laxeldis. Á þessu ári segja áætl-
anir að fimm þúsund tonn verði
framleidd, en það er sama magn
og í fyrra. Bleikjueldið gefur mest
af sér, um þrjú þúsund tonn, en í
eldi bleikju standa Íslendingar
fremstir og ráða heimsmarkaðnum
að stórum hluta.
Vaxtarspá LF tekur aðeins til-
lit til áforma þeirra fyrirtækja
sem nú þegar eru í rekstri. Mikil
óvissa er því um spána þar sem
ákvörðun eins fyrirtækis um að
hefja umfangsmikið eldi getur
aukið framleiðsluna umtalsvert á
þeim tíma sem horft er til.
Guðbergur Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri LF, segir að rekstr-
arskilyrði fiskeldis hér á landi
hafi batnað að undanförnu með
fallandi gengi. „Gengið var eld-
inu afar óhagstætt árin 2006 og
2007 en því er öfugt farið nú.
Gengið gerir það að verkum að
rekstrarskilyrðin eru ágæt. Verðið
hefur líka haldist gott, til dæmis á
bleikjunni.“
Á móti hagstæðu gengi krónunn-
ar koma hugmyndir stjórnvalda
um orkuskatt. Það snertir strand-
eldi sérstaklega þar sem tíu til
fimmtán prósent rekstrarkostnað-
ar eru orkukaup. Eldismenn hafa
lengi reynt að fá orkuverð lækkað,
en eins og hjá fleiri greinum hefur
það verið án árangurs.
Ársverk í fiskeldi á Íslandi eru
um 150 og til viðbótar eru afleidd
störf hjá þjónustufyrirtækjum og
stofnunum. Fjölmörg rannsóknar-
og þróunarverkefni hafa verið sett
á koppinn, flest fyrir tilstilli AVS
rannsóknasjóðs sjávarútvegsráðu-
neytisins. Sameiginleg viðfangs-
efni fyrir allar eldistegundir, lax,
bleikju, þorsk og flatfisktegund-
ir, er efling á sjúkdómaeftirliti og
bætt aðstaða til sjúkdómarann-
sókna. Einnig upplýsingaöflun til
markaðsstarfs.
Guðbergur telur að fiskeldi á
Íslandi eigi framtíð fyrir sér en
sníða verði stakk eftir vexti. Hann
lítur til Færeyja sem fyrirmyndar
þar sem framleiðslan er um fjöru-
tíu þúsund tonn á ári. - shá
Fiskeldið gefur þrjá milljarða
Fiskeldið hefur gefið af sér allt að þrjá milljarða á ári. Áætlanir gera ráð fyrir að fimm þúsund tonn verði
framleidd á þessu ári en tíu þúsund tonn árið 2015. Orkuskattar kunna að setja strik í reikninginn.
Gengið var eldinu afar
óhagstætt árin 2006 og
2007 en því er öfugt farið nú.
GUÐBERGUR RÚNARSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI LANDSSAMTAKA
FISKELDISSTÖÐVA.
FÓLK Verkið The End eftir lista-
manninn Ragnar Kjartansson
hefur verið valið til sýningar á
Sundance-kvik-
myndahátíðinni
í janúar á næsta
ári. Verkið er
vídeóverk og er
hið sama og hefur
verið til sýningar
á Feneyjatvíær-
ingnum undan-
farið hálft ár.
Börkur Árna-
son, eigandi
gallerís i8, segir
Ragnar hafa vakið gríðarlega
athygli með verki sínu á Feneyja-
tvíæringnum og nú séu fáir innan
listaheimsins sem ekki þekki til
hans. Verkið verður sýnt í flokki
sem nefnist New Frontier og er
Ragnar einn þrettán listamanna
sem sýna í þeim flokki. Börkur
segir það einkenna verkin í þess-
um flokki að þar renni myndlist
og kvikmyndaformið saman í eitt.
- sm / sjá síðu 50
The End sýnt á Sundance:
Verk Ragnars
vekur athygli
RAGNAR
KJARTANSSON
LITAKORT Alla bláa liti himinsins mátti sjá yfir höfuðborginni í ljósaskiptunum síðdegis í gær. Hvert sem litið var blöstu við nýir
bláir litir. Maðurinn lét fegurðina ekki trufla sig á leiðinni yfir Hringbrautina heldur gekk sinn veg undir bláhimni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Skattamálarafélagið
Telja menn virkilega að með að-
ild að Evrópusambandinu aukist
líkur á hungursneyð? spyr Pawel
Bartozsek.
UMRÆÐAN 26
Sigur í
Grindavík
Grindvíkingar
unnu góðan
sigur á Stjörnu-
mönnum í gær.
ÍÞRÓTTIR 52
FÉLAGSMÁL Stjórn Knattspyrnusam-
bands Íslands biður íslensku þjóð-
ina, knattspyrnuhreyfinguna og
aðildarfélög sín afsökunar á því að
fjármálastjóri þess, Pálmi Jónsson,
hafi „misstigið sig“ árið 2005.
Eins og komið hefur fram voru
teknar þrjár milljónir króna út af
korti KSÍ á strípistað í Sviss, og
kampavínsflöskur voru keyptar
fyrir hundruð þúsunda. Pálmi var á
staðnum og með kortið.
Í ljósi þess að Pálmi hefur
endurgreitt féð og þar sem hann
hefur verið áminntur ætlar KSÍ ekki
að aðhafast meira í málinu.
Gott siðferði er mikilvægt vega-
nesti í starfi íþróttahreyfingarinnar
en ekki er síður mikilvægt að horfa
fram á veginn, fyrirgefa og læra
af mistökunum, segir í yfirlýsingu
KSÍ.
Ingibjörg Hinriksdóttir, stjórnar-
maður í KSÍ, hafði gagnrýnt KSÍ
fyrir málsmeðferðina, en sagðist í
gærkvöldi sammála yfirlýsingunni.
Femínistafélag Íslands hefur kraf-
ist þess að stjórnin segi af sér og að
fjármálastjóranum verði vikið úr
starfi. - kóþ
Kampavíns- og nektarstaðarmál Knattspyrnusambands Íslands:
KSÍ biðst afsökunar á málinu