Fréttablaðið - 20.11.2009, Page 6
6 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip.
Tryggðu þér eintak í tíma.
Bílaapótek Hæðarsmára
Mjódd • Álftamýri
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Herman
Van Rompuy er lítt þekktur utan
heimalands síns. Hann er hæg-
látur hagfræðingur, sem hefur
gaman af japönskum hækum, en
fær núna það hlutverk að vera eins
konar andlit Evrópusambandsins.
Leiðtogar aðildarríkjanna 27
snæddu saman kvöldverð í Brussel
í gær. Tilgangur fundarins var að
velja í tvö ný embætti sambands-
ins, annars vegar forseta leiðtoga-
ráðsins, hins vegar utanríkismála-
fulltrúa.
Fyrir fram leit ekki út fyrir að
þeir myndu eiga auðvelt með að
komast að niðurstöðu. Útkoman
varð þó sú að forsætisráðherra
Belgíu yrði forseti og breska bar-
ónessan Catherine Ashton yrði
utanríkismálafulltrúi.
Gordon Brown, forsætisráðherra
Breta, hafði lagt mikla áherslu á
að Tony Blair, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Breta, fengi forseta-
embættið. Það var ekki fyrr en
hann var kominn til Brussel í gær
að hann sá að ekki þýddi að afla
lengur stuðnings við Blair.
Spánverjar og Frakkar voru
harðir í andstöðu sinni við að
Blair fengi stöðuna, þar sem hætta
væri á því að hann yrði of áber-
andi í embættinu. Þeir vildu frek-
ar fá einhvern sem einbeitti sér
að þeim verkefnum sem embætt-
inu eru ætluð, nefnilega að stjórna
fundum leiðtogaráðsins og taka á
móti erlendum ráðamönnum.
Í staðinn kröfðust Bretar þess
að fá embætti utanríkismála-
fulltrúa Evrópusambandsins,
og þar varð þeim að ósk sinni.
Ashton situr í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, þar sem hún
hefur farið með viðskiptamál, en
sem utanríkismálafulltrúi verður
hún jafnframt varaforseti fram-
kvæmdastjórnarinnar.
Nokkuð margir áhrifamenn í
Evrópu þóttu fyrir fram koma
til greina í forsetaembættið, þar
á meðal Jan Peter Balkenende,
forsætisráðherra Hollands, Jean-
Claude Juncker, forsætisráðherra
Lúxemborgar, Toomas Ilves, for-
seti Eistlands, og Vaira Vike-
Freiberga, fyrrverandi forseti
Lettlands.
Vike-Freiberga, eina konan sem
þótti koma til greina í forsetaemb-
ættið, sagði fyrir fundinn í gær að
breyta yrði því fyrirkomulagi að
ákvarðanir af þessu tagi væru
teknar á lokuðum kvöldverðar-
fundum.
„Í heimalandi mínu finnst fólki
þetta undarlegt. Það spyr hvernig
þetta gengur fyrir sig. Hvort það
sé rétt að forsætisráðherrann beri
einn ábyrgðina, og hvað þá með
okkur hin? Höfum við ekkert um
þetta að segja?“ sagði hún.
gudsteinn@frettabladid.is
Samkomulag tókst
á síðustu stundu
Herman Van Rompuy, forsætisráðherra Belgíu, verður forseti leiðtogaráðs Evr-
ópusambandsins þegar Lissabonsáttmálinn gengur í gildi um næstu mánaða-
mót. Breska barónessan Cathy Ashton verður utanríkismálafulltrúi.
HERMAN VAN ROMPUY Forsætisráðherra Belgíu varð fyrir valinu þegar leiðtogaráð
Evrópusambandsins kom saman í gær til að velja sér forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMHVERFISMÁL Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri
Reykjavíkur, segir að ef helmingur bílaflota Reyk-
víkinga notaði rafmagn í stað jarðefnaeldsneytis
myndi allt að 5,4 milljörðum króna sparast árlega.
Ofangreint kom fram í máli Ólafs á fundi um betri
samgöngur í Hafnarhúsinu í gær, að því er segir í
tilkynningu um fundinn. Sagði Ólafur að rafmagnið
á bílana myndi aðeins kosta tíu prósent af því sem
jarðaefnaeldsneytið myndi kosta, um 600 milljónir í
stað sex milljarða króna.
Að sögn Ólafs er samgöngustefnu Reykjavíkur-
borgar ætlað að tryggja greiðar samgöngur um
borgina án þess að ganga um of á verðmæti eins og
umhverfi, heilsu og borgarbrag. „Hann benti á að
þétting byggðar styddi við uppbyggingu fjölbreytt-
ari ferðamáta. Þá væru bílar almennt að minnka
með aukinni notkun innlendra orkugjafa, eins og
rafmagns, metans og metanóls, og það jákvæða við
þessa þróun væri m.a. að bílarnir þyrftu minna rými
og menguðu líka minna,“ að því er segir í frétt sem
almannatengslastofan Athygli segir af fundinum. - gar
Samgöngustjóri Reykjavíkur segir milljarða sparast væri helmingur bíla rafknúinn:
Kostnaður við rafmagn á bíla
tíundi hluti bensínkostnaðar
RAFBÍLL Í HLEÐSLU Haft er eftir samgöngustjóra Reykjavíkur
að hægt væri að lækka orkukostnað úr 5,4 milljörðum í 600
milljónir ef helmingur bíla í borginni væri rafknúinn.
MYND/GETTY IMAGES
ATHAFNAVIKA Burðarvaki Hafrún-
ar Hauksdóttur varð hlutskarp-
astur í baráttunni um svokölluð
Hagnýtingarverðlaun á Nýsköp-
unarmessu í Háskóla Íslands.
Hafrún er doktorsnemi í verk-
fræði. Hugmynd hennar snýst
um þróun og smíði á tæki sem
fylgist með meðgöngu kúa, en
samkvæmt rannsóknum deyja
um fimmtán prósent kálfa á með-
göngu. Segir í tilkynningu að
þarna sé því um verulega hags-
muni að ræða. Öll þróun aðferða
og tækja til þess að fylgjast með
kelfdum kúm, í því skyni að
draga úr kálfadauða, sé brýnt
verkefni. - sh
Vann Hagnýtingarverðlaun:
Fylgist með
meðgöngu kúa
REYKJAVÍK Framkvæmdastjóri verk-
takafyrirtækisins Fonsa segir það
seinlegt og dýrt að kæra útboð
borgarinnar á uppbyggingu á brun-
areitnum á horni Lækjargötu og
Austurstrætis. Endurbyggingu yrði
líklega lokið áður en dómur félli.
„Ég á síður von á því að ég fari
í mál. Ég get ekki vísað þessu til
kærunefndar útboðsmála, því
þetta tekur ekki yfir þau,“ segir
framkvæmdastjórinn, Sigurfinn-
ur Sigurjónsson. Hins vegar bíði
hann spenntur eftir niðurstöðu
innri endurskoðunar Reykjavíkur,
en innkauparáð borgarinnar hefur
farið fram á rannsókn hennar á
útboðinu.
Sigurfinnur hefur sakað fram-
sóknarmenn hjá borginni um
spillingu, eftir að verktakafyrir-
tækið Eykt, sem átti næstlægsta
tilboðið í framkvæmdirnar, fékk
verkið. Fyrirtæki Sigurfinns var
hins vegar með lægsta tilboðið.
Eykt hefur stutt Framsóknar-
flokkinn dyggilega með fjárfram-
lögum fyrir kosningar og Óskar
Bergsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknar, starfaði áður hjá Eykt.
Samtök iðnaðarins hafa einn-
ig gert athugasemdir við útboðið.
Sigurfinnur segist hafa staðist
allar kröfur vegna útboðsins, þótt
fulltrúar borgarinnar hafi hald-
ið öðru fram. Framsóknarmenn
hafa hafnað þessum ávirðingum.
Eykt hafi styrkt aðra flokka líka.
- kóþ
Framkvæmdastjóri Fonsa bíður eftir rannsókn innri endurskoðunar á brunareit:
Býst síður við að kæra útboðið
ÚR BRUNANUM VORIÐ 2007 Uppbygging
hér átti að hefjast að loknu forvali á
verktaka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Er sanngjarnt að greiða
bankamönnum tugmilljóna
króna bónusa úr þrotabúi
Landsbankans?
Já 3,9%
Nei 96,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hafa afleiðingar hrunsins verið
skárri en þú bjóst við fyrir ári?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN