Fréttablaðið - 20.11.2009, Page 16
16 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
■ Flestir áfengir drykkir inni-
halda aukaafurðir gerjunar
sem mætti kalla aukaefni.
Þessi aukaefni eru ein orsök
timburmanna. Almennt gild-
ir að eftir því sem drykkur er
dekkri því meira er af auka-
efnum í honum. En þótt
drukkinn sé alveg hreinn
spíri losnar maður ekki við
timburmenn. Ástæðan er
sú að lifrin byrjar að brjóta
niður alkóhólið með því
að breyta því í asetaldehýð
sem er eiturefni og veldur
timburmönnum. Ofþornun
sem stafar af þvagræsandi
áhrifum alkóhóls er önnur
orsök timburmanna. Að
lokum má nefna bein
ertandi áhrif alkóhóls á
magaslímu og taugakerfi
sem leiða til ógleði, pirr-
ings og handskjálfta.
FRÓÐLEIKUR
TIMBURMENN
Heimilislegur andi
svífur yfir vötnunum
þegar inn er komið.
Hópur fólks er að sinna
ýmsum hugðarefnum.
Sumir horfa á sjónvarp,
aðrir eru á Netinu, eða
að spila á spil og síðast
en ekki síst eru nokkrir
að búa til jólakort og
mála á gipsmyndir fyrir
jólin.
Fólkið sem um ræðir lifir í
hörðum heimi útigangsfólks,
þar sem fíknin ræður för. Þeir
eru skjólstæðingar Dagseturs
Hjálpræðishersins á Eyjaslóð
7.
Dagsetrið er rekið í sjálf-
boðavinnu að langstærstum
hluta. Það er opið frá klukk-
an 12 til 17 daglega og þang-
að geta skjólstæðingar þess
komið, farið í bað, fengið heit-
an mat, sinnt ýmissi afþrey-
ingu eða bara lagt sig í upp-
búin rúm. Hið síðastnefnda
þiggja margir með þökkum,
enda kaldir og lúnir eftir langa
nótt á götunni.
Margir skjólstæðinganna
eiga lítinn fatabunka sem
bíður þeirra hreinn og strok-
inn á Dagsetrinu. Það er aleig-
an þeirra. Þegar ekki er lengur
þörf fyrir einhvern bunkann,
kemur annar þegar í stað.
„Ég veit ekki hvar maður
væri ef við hefðum ekki
þetta athvarf,“ sagði einn
skjólstæðingurinn, sem sat við
föndurborðið, við blaðamann.
„Hingað er gott að koma og
hér er fólk sem maður finnur
að þykir vænt um mann. Það er
svolítið meira virði en pening-
ar. Ég er bara hluti af því sem
hér er verið að gera. Hlýja og
umhyggja er það sem skiptir
mig mestu.“
Annar skjólstæðingur tók
undir orð hins fyrri með gott
atlæti á Dagsetrinu.
„Hingað kemur maður til
þess að láta renna af sér og
dunda sér, svo tekur náttúru-
lega eitthvað annað við. Hér
eru allir vinir.“ - jss
Synir götunnar farnir að
undirbúa jólin með föndri
FÖNDRAÐ FYRIR JÓLIN Skjólstæðingar Dagsetursins ásamt Birnu Vilbertsdóttur við föndurborðið, þar sem nú eru
búin til jólakort og gipsmyndir málaðar. FRETTABLADID/GVA
MYNDIN
Þessi mynd
var rétt að
segja tilbúin.
Stór frakki
„Vinur minn, Gunnar Birgis-
son bæjarstjóri, sem þarna
var, hefði týnst í þessum
frakka.“
GUÐNI ÁGÚSTSSON SÝTIR KASMÍR-
ULLARFRAKKA SEM EINHVER DIGUR-
VAXINN TÓK Í MISGRIPUM FYRIR
SÍNA EIGIN STÓRU FLÍK.
Fréttablaðið 19. nóvember
Að trúa og treysta
„Það er ætíð hættulegt að
treysta valdi í blindni.“
ÁTTA GUÐFRÆÐINGAR BENDA Á
HÆTTUR ÞESS AÐ TRÚA Á EITTHVAÐ
SÉR ÆÐRA ÁN ÞESS AÐ GETA FÆRT
FYRIR ÞVÍ RÖK.
Fréttablaðið 19. nóvember.
Hengjum
okkur ekki í
smáatriði!
Vinátta – alveg
óháð kerfi.