Fréttablaðið - 20.11.2009, Side 32
HRÍSEYINGABINGÓ verður haldið á vegum
Hríseyingafélagsins á höfuðborgarsvæðinu sunnudag-
inn 22. nóvember. Bingóið verður í Áskirkju og hefst
klukkan tvö. Veitingar verða seldar á staðnum.
„Þannig er mál með vexti að
ég, eins og flest allir arkitekar,
missti vinnuna í hruninu og það
var að sjálfsögðu mikið áfall,“
segir Sigurbjörg Pétursdóttir
innanhússarkitekt sem opnar nú
um helgina verslunina Twizzt á
Smáratorgi 1. „Ég ákvað að snúa
vörn í sókn og skapa mér lifibrauð
á öðrum vettvangi og hafa gaman
af þessu.“ Sigurbjörg segist reynd-
ar ekki óvön verslunarbransan-
um því hún hafi starfað við versl-
un og viðskipti í hartnær fjörutíu
ár. „Ég starfaði í fataverslun í
Kringlunni frá maí á þessu ári og
fékk þá hugmyndina að því að fara
út í eigin verslunarrekstur,“ segir
Sigurbjörg.
Verslunin Twizzt mun bjóða upp
á fylgihluti fyrir dömur, herra og
börn. Á opnunardaginn á sunnu-
dag verður ýmislegt um að vera.
„Stelpan mín, Linda Ósk, sem er
orðin átján ára, er að læra dans og
ætlar til dæmis að undirbúa tísku-
sýningu. Hún er mjög aktív í dans-
inum, hefur tekið snúninga með
Haffa Haff og fleirum. Hún mun
einnig halda danssýningu á opn-
unarhátíðinni,“ segir Sigurbjörg
og tekur fram að dóttir hennar sé
meðeigandi verslunarinnar og að
barnabarnið sem einnig er átján
ára muni aðstoða. Það leggjast
því allir ættliðir á eitt til að láta
dæmið ganga upp.
Í Twizzt verða í boði vörur frá
Bretlandi en Sigurbjörg er opin
fyrir því að taka inn íslenska
hönnun seinna meir þegar búðin
er komin vel á koppinn.
Verslunin verður opnuð á sunnu-
daginn klukkan tólf en tískusýn-
ingin hefst klukkan tvö. Opnunar-
daginn verður 20 prósent afsláttur
af öllum vörum og svo verður 15
prósent kynningarafsláttur til
1. desember. „Ég býð gestum og
gangandi upp á kaffi og konfekt
og svona og danssýningin verður
náttúrulega mjög flott. Módelin
verða í öllu svörtu en ganga með
skart og veski og sýna vörurnar,“
segir Sigurbjörg sem ætlar að
blása á allt kreppuböl ásamt dótt-
ur sinni og barnabarni á Smára-
torginu í Kópavogi.
niels@frettabladid.is
Snýr vörn í sókn
Innanhússarkitektinn Sigurbjörg Pétursdóttir missti eins og margir aðrir arkitektar vinnuna á síðasta ári.
Hún ákvað því að breyta til og opnar á sunnudag verslunina Twizzt með aðstoð dóttur og barnabarns.
Mæðgurnar Sigurbjörg og Linda Ósk voru í óða önn að undirbúa opnun verslunar
sinnar Twizzt sem þær eiga saman. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Verkefninu ljómandi borg er ætl-
að að gleðja íbúa og gera borg-
ina hlýlegri og skemmtilegri.
Tveir næstu dagskrárliðir Ljóm-
andi borgar verða á sunnudag og
fimmtudag. Sunnudaginn 22. nóv-
ember verða barnadagar í Borg-
arbókasafni. Sögustund verður
klukkan 15 í aðalsafni Borgarbóka-
safns á Tryggvagötu en Valgerð-
ur Ólafsdóttir les upp úr bók sinni,
Saga um tilfinningar.
Fimmtudaginn 26.
nóvember k lukk-
an 20 verða síðan
franskir straumar
í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Þá les
Sigurður Pálsson rit-
höfundur upp ljóð í
anda sýningarinnar
„André Kértesz Frakk-
land – landið mitt” og
Tríó Vadims Fyodorov
harmonikkuleikara spil-
ar franska musett- og vals-
sveiflu í bland við heims- og
djasstónlist.
Upplestur fyrir börn
og franskir straumar
Sigurður Pálsson les upp ljóð í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur.
Háloftasinfónía
FÉLAG ELDRI BORGARA Í REYKJA-
VÍK GEFUR ÚT JÓLAKORT Í ÁR.
Myndin á jólakortum Félags eldri
borgara í Reykjavík heitir Hálofta-
sinfónía og birtir mynd af smá-
fuglum á flugi. Hún er eftir lista-
konuna Sveinbjörgu Hallgríms-
dóttur.
Í hverjum pakka eru samtals
sex kort og pakkinn kostar 1.200
krónur. Jólakortin eru mikilvæg-
asta fjáröflunarleið Félags eldri
borgara. Þau eru send til félags-
manna og annarra velunnara.
Einnig er hægt að kaupa kort á
skrifstofu félagsins í Stangarhyl 4
í Reykjavík.
Áður 19.990
Nú 14.990
Stærðir 38-48
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir