Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 36

Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 36
4 föstudagur 20. nóvember núna ✽ nýtt og spennandi The Radiant Facial-maskinn sem gefinn var út með nýja farðan-um frá La Mer gerir húðina bjartari, ferskari og áferðarfallegri á átta mínútum. Húðin er næm fyrir umhverfisáhrifum sem geta haft í för með sér litabreyting- ar, ójöfnur og lífleysi. Maskinn dregur úr þessum einkenn- um, en með honum minnka öldrunarblettir, freknur og litamisfellur snarlega. Þess má geta að kynning verð- ur á La Mer-snyrtivörum í Lyfjum og heilsu alla helgina. Bjartari og ferskari húð Ásgeir Hjartarson og Bergþóra Þórsdóttir: FRUMSÝNA NÝJA DARK-FATALÍNU Dark Ásgeir Hjartarson og Bergþóra Þórsdóttir, eigendur Dark Supernova, hafa verið að vinna í nýrri fatalínu undanfarin tvö ár. BLÓMAANGAN Nýi ilmurinn frá Dolce & Gabbana heitir Rose the One og skartar hinni kyn- þokkafullu Scarlett Johansson í auglýsingaherferð- inni. Ilmurinn er frískleg blanda af blómum með áherslu á rósir eins og nafnið gefur til kynna. V ið ætlum að missa okkur í hári og förðun,“ segir Ásgeir Hjart- arson á hárgreiðslustofunni og fataversluninni Dark-Supernova um tískusýningu sem fer fram á b5 á morg- un. Á sýning- unni verður frumsýnd ný fa ta l ína s e m Á s g e i r hannaði ásamt meðeiganda sínum, Berg- þóru Þórs- dóttur. „Þetta byrjaði allt á þv í a ð Begga „air- brushaði“ aftan á leð- urjakka sem ég átti. Útfrá því fórum við að prófa okkur áfram og gerð- um stutterma- bol i sem við breyttum. Þeir ruku út svo við tókum af skarið og helltum okkur út í þetta,“ útskýr- ir Ásgeir. „Þetta er búið að taka um tvö ár í vinnslu, svo þetta er ekki eitthvað sem við byrjuðum á út af kreppunni til að ná í aukapening,“ segir hann. „Fötin á Supernova- Dark skiptast í tvær línur, ann- ars vegar Dark sem er aðallínan og er meðal annars með topp- um, kjólum og leggings og svo Rock‘n‘Roll joggings, sem eru joggingbuxur og hettupeysur í stíl. Þetta eru bæði þægileg og „cool“ joggingföt, en hægt er að taka hettuna af og skipta henni út fyrir pönkaralegri hettu, skreytt steinum,“ útskýrir Ásgeir. „Við ætlum að halda tískusýninguna og partí í samstarfi við b5. Vinur minn Sig- fús Jónsson kokkur er að taka við eldhúsinu þar sem við ætlum að gera okkur glaðan dag og fagna. Við ákváðum að gera svolítið grín að þessu ástandi sem Ís- lendingar eru í og kalla þetta „hryðjuverka- partí“ í tilefni af því að það er eitt ár síðan Bretar kölluðu yfir okkur hryðju- verkalög,“ segir Ásgeir. „Matseðillinn á b5 verð- ur í hryðjuverkaþema, svo sem Anthrax-steik með Bin Laden-frönskum og frönsk byltingarsúkk- ulaðikaka með vanillu- ís. Eldhúsið verður opnað klukkan 12 í staðinn fyrir 17 og það fylgir eitt létt- vínsglas með hverjum að- alrétti,“ bætir hann við. Um kvöldið mun Ásgeir spila undir nafninu Fas- hion Terrorist, en hann er einnig að gefa út mix-disk á morgun sem ber heitið Molotov Coctail. „Heppn- ir gestir fá eintak af diskn- um og vínglaðning á barn- um. Haffi Haff ætlar líka að mæta á svæðið í öllu sínu veldi og taka lagið Jealousy og Bin Laden,“ segir Ás- geir og vonast til að sjá sem flesta á b5 á morg- un, en tískusýningin hefst um miðnætti. Töff Hönnun Berg- þóru og Ásgeirs verður frumsýnd á tískusýningu á b5 annað kvöld. Flott Dark- fatalínan sam- anstendur meðal annars af topp- um, kjólum og leggingsbuxum. TIL BO Ð! VETRARDEKK ÓD ÝR T 5.490,- jepplingur kr 6.490,- Tilboð á umfelgun Verðtilboð fyrir eldri borgara Fólksbíll kr 4.990,- Jepplingur kr 5.990,- Gerið verðsamanburð Sama verð fyrir ál- og stálfelgur Borgartúni 36, (bakvið Cabin hótel) • Sími 588 9747 • www.vdo.is Opið mán.–fös. 8–18. Lau. 10–14.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.