Fréttablaðið - 20.11.2009, Page 38
6 föstudagur 20. nóvember
✽ nýtt og spennandi
útlit
Á
stæðan fyrir að ég dreif í þessu
var að það leitaði til mín dansk-
ur dreifingaraðili sem var búinn
að vera að nota vörurnar mínar.
Hún spurði hvort ég gæti ekki gert lífræna
snyrtivörulínu og sagðist vilja selja hana
fyrir mig,“ segir Sóley Elíasdóttir leikkona.
Fyrir tveimur árum hóf hún framleiðslu á
græðissmyrslunum Græðir og Kisstu mig
sem hafa notið mikilla vinsælda og nú
hefur hún sett á markað íslenska húð-
snyrtivörulínu sem er bæði umhverfis-
væn og án allra aukaefna. Nýja línan heitir
Sóley og samanstendur af eyGLÓ, andlits-
kremi, Fersk, andlitsfroðu, Nærð, hreinsi-
vatni, Hrein, andlitsmjólk, Mjúk, líkams-
skrúbbi og GRÆÐIR, fjölskyldusjampói,
ásamt birkiR, sérstakri herrasápu fyrir
húð og hár.
„Ég er að nota svipað jurtainnihald og
í græðismyrslin svo vörurnar eru græð-
andi og góðar fyrir húðina. Virku efnin í
þessu eru jurtirnar, svo sem birki sem er
mjög þekkt virkt efni og ég nota mikið,“
útskýrir Sóley sem hóf að þróa línuna fyrir
um einu og hálfu ári síðan. „Ég var lengi
búin að vera með hugmynd í kollinum um
að gera lífrænar snyrtivörur, en ég ætlaði
samt fyrst að gera barnavörulínu. Þessi
upphringing frá Danmörku varð eiginlega
til þess að ég gerði þessa línu fyrst,“ segir
Sóley sem vinnur nú að barnavörulínu sem
er væntanleg í mars.
Sóley húðsnyrtivörurnar eru framleiddar
hjá Fagvörum ehf., matvælaframleiðslu-
fyrirtæki í Hafnarfirði, en Heilsa ehf. sér um
dreifingu. Sóley vinnur einnig með alþjóð-
legri markaðsstofu í London sem hyggst
koma vörum hennar á framfæri erlendis,
en mikill áhugi er á hreinum húðsnyrtivör-
um með íslenskum lækningajurtum víða.
„Það er að koma inn fjárfestir frá London
inn í fyrirtækið mitt sem heitir Dominn-
ique Caretsos. Hún var að vinna sem
markaðsstjóri hjá stærsta snyrtivörufyr-
irtæki í heimi, en ég komst í samband við
hana eftir að ég fór á námskeiðið Konur í
útrás. Hana langaði til að vinna með ís-
lenskar snyrtivörur og svo er þetta búið
að þróast þannig að hún er að fjárfesta
og kaupa sig inn í fyrirtækið. Dominnique
ætlar að vinna við þetta í fullu starfi og
það má segja að maður hafi farið upp á
nýjan „level“ við að fá hana inn í þetta,“
útskýrir Sóley.
Aðspurð segir hún þær ekki stefna á að
markaðssetja vörurnar í Bretlandi strax.
„Bretlandsmarkaður er mjög erfiður svo
við ætlum ekki að byrja þar. Stefnan er
tekin á Skandinavíu í gegnum danska
dreifingaraðilann og svo er það Suður-
Afríka, en þar er Dominnique alin upp,“
segir hún.
Spurð hvort slæmt efnahagsástand hafi
áhrif á framleiðsluna segir Sóley svo ekki
vera. „Af því að krónan er svo veik eru út-
lendu fjárfestarnir spenntari fyrir Íslandi.
Það er náttúrlega dýrt að kaupa aðföng frá
útlöndum, en ég nota allt sem er framleitt
íslenskt í vörurnar mínar. Það er nóg af
möguleikum, maður verður bara að hugsa
út fyrir rammann og út fyrir þessa eyju. Ég
tel að möguleikarnir felist ekki í þessum
massaiðnaði, eins og álinu, heldur fyrst og
fremst í græna iðnaðinum,“ segir Sóley.
- ag
SÓLEY ELÍASDÓTTIR LEIKKONA:
FRAMLEIÐIR ÍSLENSKA
HÚÐSNYRTIVÖRULÍNU
Í útrás Sóley hefur fengið fjárfesti inn í fyrirtæki sitt og stefnir á að markaðssetja snyrtivörulínu sína í Skand-
inavíu og Suður-Ameríku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DAGATALSBÓKIN KONUR EIGA ORÐIÐ ALLAN ÁRSINS HRING er
nú komin út fyrir árið 2010, þriðja árið í röð. Um 80 konur eiga heiðurinn að þessari bók
með hugrenningum og ljósmyndum, en Myrra Leifsdóttir myndskreytir með teikningum.
Bókin er kjörin í jólapakkann, en hluti af ágóða sölunnar rennur til Mæðrastyrksnefndar.
V
erslunin er orðin eins árs og okkur langaði að
halda upp á það og frumsýna nýja fatalínu um
leið. Þetta er önnur fatalínan sem við send-
um frá okkur undir nafninu KALDA, en við sýnd-
um fyrstu fatalínuna okkar á tískuviðburði sem
haldinn var stuttu eftir hrunið í fyrra,“ segir Katrín
Alda Rafnsdóttir, sem rekur verslunina Einveru
ásamt systur sinni Rebekku Rafns-
dóttur. Verslunin fagnar ársafmæli á
laugardaginn og í tilefni þess munu
systurnar blása til veislu.
„Nýja línan inniheld-
ur meðal annars pils,
kjóla og boli. Fötin eru
innblásin af tíunda ára-
tugnum og við erum
með svolítið asnalegar
síddir, mikið af neta-
efni og stutta boli,“ út-
skýrir Katrín Alda. Að-
spurð segir hún þær
systur ekki vera hönn-
unarmenntaðar held-
ur komi þær óskum
sínum á framfæri við
saumakonu sem gerir
hugmyndir systranna
að raunveruleika.
Veislan hefst klukk-
an 16.00 á laugardag
og verða veitingar og tónlist í
boði auk þess sem gestir fá að
líta nýja fatalínu KALDA í fyrsta
sinn. - sm
Einvera heldur upp á afmæli
Hæfileikaríkar systur Katrín Alda og Rebekka Rafnsdætur reka
saman verslunina Einveru sem verður ársgömul á laugardag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
20%
afsláttur á meðan birgðir endast!
Metasys er áhrifaríkt fæðubótaefni sem hefur hjálpað
þúsundum Íslendinga við að létta sig. Að auki er Metasys
mjög heilnæmt og þykir auka orku og úthald. Þeir sem
hafa náð bestum árangri á Metasys hafa bætt inn hæfi-
legri hreyfingu og viðhaft skynsamlegt mataræði
Kíktu inn á www.metasys.is
Þú færð Metasys í heilsu- og
lyfjaverslunum og heilsuhillum
stórmarkaðanna.
100%
náttúrulegt