Fréttablaðið - 20.11.2009, Side 53
FÖSTUDAGUR 20. nóvember 2009
Skráðu þig í Sparitilboð N1 fyrir
miðnætti á www.n1.is
Allir þeir sem hafa skráð sig í
Sparitilboðið geta sparað tugi þúsunda
í rekstrarkostnaði bílsins og unnið
ferðavinninga og fleira skemmtilegt.
SÍÐASTI
DAGURINN!
DRÖGUM UM FJÖLDA
VINNINGA UM HELGINA
WWW.N1.IS
Skráðu
þig fyrir
miðnætti!
Ferð til
USA
· iPodspilarar
frá Applebúðinni
· Dekur í Laugum
· Sushi frá OSUSHI
· Snyrtivörur
Ferðir til
Evrópu
Sektir á þjóðfundi
UMRÆÐAN
Þór Jakobsson skrifar
um bílastæðamál
Á laugardaginn var veittist mér sú
ánægja að taka þátt í
að semja nýjan þúsund
radda brag um bjarta
framtíð lands og þjóð-
ar. Á sögulegum og vel
skipulögðum Þjóðfundi var lagt
á ráðin um hvað þjóðin ætti að
hafa að leiðarljósi til að létta
þrautagönguna eftir Hrunið
mikla og stefna að þegar komið
væri út úr eyðimörkinni. Verð-
ur vonandi gagn að öllu því sem
rætt var og skrifað á óteljandi
litfagra miða í þétt setinni Laug-
ardalshöll. Forsprakkar og allir
sem lögðu hönd á plóginn eiga
hrós skilið og þökk fyrir glæsi-
legt þing með þeim þverskurði
þjóðarinnar sem þarna var
saman kominn.
Það var logn og blíða þegar
þjóðfundarmenn streymdu út úr
höllinni léttir í lund hundruðum
saman eftir skemmtilegan dag.
En samkvæmt frétt í Fréttablað-
inu í dag hefur tíunda hverjum
fundarmanni brugðið í brún er
hann nálgaðist bíl sinn. Kveðja
frá laganna vörðum var komin
á framgluggann: sekt. Og minn
bíll var horfinn! Hafði honum
verið stolið eða hvað? Skal ekki
fjölyrt hér um þennan loka-
hnykk á þjóðfundarþátttöku
minni heldur kem ég hér með
tillögu til íhugunar.
Tekið skal fram að ég er alla
manna argastur út í þá sem
leggja bíl sínum út á gras eða
fara um grasblett til að
stytta sér leið ef önnur
er til. En það er hætt
við, á fjölmennum mann-
fundum, að fleiri fylgi á
eftir út á blett eða tylli
sér upp á gangstétt í röð
fyrir aftan þá sem hafa
byrjað. Af óviðráðan-
legum orsökum var ég
t.d. seint á ferð, kom að
austan meðfram Hús-
dýragarðinum, bílar lagðir þá
þegar tvist og bast á vegar-
kanta og uppi á grasblettum
þegar nær dró Laugardalshöll,
allfjarri henni þó, og bílastæðið
við Skautahöllina fullt.
Það er í rauninni ekki ein-
leikið hve margir þjóðfundar-
menn fengu þarna sektir. Það
hljóta að hafa verið þarna mjög
margir ef ekki flestir sem sækja
ekki oft stórviðburði í höllinni.
Og er því hvorki fullkunnugt um
bílastæði annars staðar í Laug-
ardal né rösklegri framgöngu
lögreglunnar meðan á atburðum
stendur.
Hér er tillagan. Annars vegar
að merkja ætti bannsvæðin mun
rækilegar og víðar en gert er
nú. Hins vegar að kalla ætti til
„varalið“ til að stjórna aðvíf-
andi umferð fyrir upphaf stór-
viðburða – og sérílagi mann-
funda, svo sem landsfunda, þar
sem ætla mætti að væntanleg-
ir gestir væru ekki allir haga-
vanir.
Bílastæðasjóður hefur þénað
um daginn nokkur hundruð þús-
und krónur. Svona pening mætti
nota í fyrirbyggjandi aðgerðir.
Höfundur er veðurfræðingur.
ÞÓR JAKOBSSON
UMRÆÐAN
Ari Trausti Guð-
mundsson skrifar
um eldfjallagarð
Hugmyndir um eld-fjallagarð á Reykja-
nesskaga hafa verið all-
lengi á kreiki.
Fyrir meira en ára-
tug vann ég greinargerð fyrir
Hafnarfjarðarbæ um safn til
sögu eldvirkni og um eldfjalla-
garð tengdan því. Með eldfjalla-
garði er átt við mörg samtengd
svæði eða staði þar sem áhuga-
fólk getur fræðst með einhverj-
um hætti (skilti, prentefni, hljóð-
rænar upplýsingar o.s.frv.) um
sögu eldgosa, eldstöðvar, gos-
myndanir og jarðskorpuhreyf-
ingar. Milli staða geta menn
ýmist ekið, hjólað eða gengið, allt
eftir stað, vegalengd og áhuga.
Sýningar eða sérstök mannvirki
sem varða jarðeld eða jarðhita
geta verið hluti garðsins.
Á Reykjanesskaga er að finna
mest af því sem jarðeldur á
Íslandi hefur skapað en þó ekki
stóru, þroskuðu megineldstöðv-
arnar, eldkeilur og fjöll með
öskju. Hengill er samt þar í ætt
sem ung megineldstöð. Gest-
ir geta skoðað allan garðinn
eða aðeins hluta, eftir því hvað
tími eða áhugi segir til um og
hann nýtist jafnt lærðum sem
leikum. Og þessi garður þarf
ekki að vera sá eini á landinu.
Svæði eins og Eldgjá-Lakagíg-
ar-Langisjór, Hekla-Torfajökull,
Snæfellsjökull og nágrenni, land
frá Hnappadal yfir í Hraunsfjörð
og milli Gjástykkis og Mývatns
eru líka hentug.
Í sínu ítrasta formi tekur eld-
fjallagarður á Reykjanesskaga
til hans alls, þ.e. nokkurra svæða
sem mynda heild og markast
þau að mestu af landsvæðum
og stöðum innan fjögurra eld-
stöðvakerfa sem liggja skáhallt
inn eftir skaganum. Af
sjálfu leiðir að eldfjalla-
garður af bestu gerð er
samvinnuverkefni allra
sveitarfélaga skagans.
Og raunar fleiri aðila
innan þeirra og utan.
Gera þarf framsetning-
una vel úr garði, heild-
stæða og náttúruvæna,
og hafa viðhald í lagi
sem og allan rekstur.
Ég hef skrifað nokkrar blaða-
greinar um eldfjallagarða og
enn fremur unnið lauslegar hug-
myndir að Reykjaneseldfjalla-
garði (eða hluta hans) fyrir ýmsa
aðila síðan á öldinni sem leið og
því fylgst með framvindunni.
Áhuginn sýnist aukast jafnt og
þétt og er það vel. Hann hefur til
dæmis komið fram hjá náttúru-
verndarsamtökum, meðal aðila í
Reykjanesbæ, hjá forsvarsmönn-
um Grindavíkur, í Hafnarfirði
og nú síðast samfara vinnu við
tillögur að opnun Þríhnúkagígs
en hann er í landi Kópavogs.
Fyrir meira en áratug var
unnið að lagningu Reykjaveg-
ar en það er um 130 kílómetra
löng gönguleið, sjö daga ferð, frá
Nesjavöllum, eftir endilöngum
Reykjanesskaganum, að Reykja-
nesvita. Leiðin var stikuð og
koma átti upp gistiaðstöðu (litl-
um skálum og tjaldstæðum) við
hana. Verkið var unnið með sam-
vinnu flestra þáverandi sveitar-
félaga, frá Kjalarnesi til Garðs.
Því miður tókst ekki að ljúka
verkefninu með gistiaðstöðu
og enginn rekstraraðili fannst.
Auðvitað er verkefni sem þetta
lítið miðað við gerð góðs eld-
fjallagarðs en það kennir þó að
samvinna er möguleg. Á það
er minnt með þessum pistli.
Enn fremur er augljóst að sam-
vinnan verður að taka til þess
hvernig menn samþætta slíkan
garð og aðra auðlindanýtingu á
skaganum öllum.
Höfundur er jarðeðlisfræðingur.
Eldfjallagarður er
samstarfsverkefni
ARI TRAUSTI
GUÐMUNDSSON