Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 62
42 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Bókmenntir ★★★★
Snorri
Ævisaga eftir Óskar Guðmundsson
JPV
Óskar Guðmundsson tók langt til-
hlaup að fimm hundruð síðna ævi-
sögu Snorra Sturlusonar og vinn-
ur með henni það afrek að koma
í samfellda sögu í sextíu þáttum
afar flókinni og samslunginni
atburðarás innan marka Deildar-
tungumála og vígsins í Reykholti
1241. Á sama tíma og hann ræðst
í að skipa ferli Snorra Sturlusonar
niður í tímaröð með þeim útúrdúr-
um sem hann telur skylt að draga
til sögunnar og þeir eru ófáir og
snúnir, ekki beint til þess falln-
ir að ánetja lesanda nema hann
hafi tekið þann þroska að takast
á við þennan myrka og ofbeldis-
fulla tíma og nenni að setja sig
inn í samvaxnar grein-
ar tímabilsins, reyn-
ir Óskar að gefa skýra
mynd svo sem hægt
er af daglegu amstri
þrettándu aldarmanna.
Og þótt hann fari af
mikilli gát í að geta
í eyður varð þessum
lesanda hugsað til
þess að í hinu mikla
heimildaleysi sem
ríkir um þennan
tíma í bland við gild-
ar og mikilvægar
heimildir samtíma-
sagna hafi Óskar
náð sér betur á strik ef
þessi grunnur væri notaður til að
smíða skáldsögu um þetta efni.
Að því sögðu mega menn reka upp
ramakvein. Því að biðja um súpu
þegar á borðum er grautur?
Þá er því til að svara að Ósk-
ari eru sannarlega gefin stílefni
til að vinna slíkt verk og nábýli
hans við heimildir, könnun hans á
öllum fáanlegum veitum sem geta
skýrt þessa sögu og gert hana lif-
andi, veittu honum slíka yfirburði
í upplifun á efninu að dugað hefðu
til enn ferskari sögu um manninn
og tíð hans. Okkur er til dæmis,
og það er máski aðalatriðið, ekki
mikið ljósara hvern mann Snorri
Sturluson hafði að geyma. Hann
er okkur enn fjarlægur þótt öllu
sé haldið til haga um ferðir hans
og afskipti á mörgum sviðum af
því sem gekk hér á meðan hann
var upp á sitt besta.
Sturlungaöldin er eitt sögufræg-
asta skeið okkar sögu: átökin um
lífsins gæði, jarðir, völd, sóma,
voru einstaklega ofbeldisfull og
hér eru söguefnin næg í margar
bækur. Óskari tekst ekki frekar en
öðrum að útskýra sagnahefðina og
markaðinn sem hún átti að þjóna.
Íslensk skáld höfðu sannarlega
erindi þegar þau sóttu á erlend-
ar slóðir og fluttu hirðkvæði, hás-
temmt skjall og gjálfur bundið
í brag, en til hvers voru sögurn-
ar? Lesefni fyrir peningamenn og
valdhafa?
Sagan af Snorra er í þessari
stóru versjón Óskars fyrst og
fremst saga höfðingja, það eru
ekki landsetarnir sem reka sög-
una áfram en eru þó efnið sem
allt er byggt á: þegar safnað er
saman mannskap til að fara í fjar-
læg héröð í þeim erindagerðum að
misþyrma fólki og meiða eru karl-
ar rifnir af teignum, stóðin rekin
af fjalli og búin til langferða. Og
þegar menn fóru í mörgum slíkum
flokkum um land-
ið má huga að því
hverjir unnu verkin
á meðan, konur, börn
og gamalmenni.
Texti verksins
leggur sig upp
á fimm hundruð
síður. Hann er víða
þungur yfirlestrar
sökum upptalning-
ar á mönnum í hinum
ýmsu flokkum, hver
var hvar og hverjum
skyldur. Bregður höf-
undur reglulega upp
skýringartöflum um
skyldleika svo lesandi
átti sig á hinum margbreytilegu og
flóknu tengslum sem liggja milli
karlanna sem eru að murka lífið
úr náfrændum sínum og vanda-
mönnum. Óskar skrifar vandað-
an og fjörmikinn stíl, víðast hvar
nokkuð hátíðlegan og hlaðinn eldri
orðmyndum sem er skemmtilegt,
mál hans er menntað og þrosk-
að. Hann er víða tilgátugjarn en
forðast sviðsetningar og eru þó
tækifærin ærin. Ævisaga Sturlu
verður um leið ævisaga Órækju,
Jóns murts, Sturlu Sighvatsson-
ar og fleiri manna sem við þessa
sögu koma en ekki er gætt frekar
að, þótt þörf hafi verið á, í þessa
stóru mynd sem svo mörg mynd-
brot vantar í og enginn getur glætt
lífi nema skáldsaga.
Nú eru fáir færir að gagnrýna
þessa bók að gagni, þótt strákar
hafi hlaupið upp og ausið hana lofi
á breiðsíðum, nema fræðingar sem
hafa eytt jafnlöngum tíma í heim-
ildakönnun og Óskar. Og þeir eru
fáir. Fornleifar hjálpa okkur svo
skelfing lítið. Tilgátuvinnsla er
skemmtileg pæling varðandi Reyk-
holtsstað en því var ekki gengið
svo langt með konungsgarð í Nor-
egi sem þó er vitað nokkuð um og
Óskar hefur örugglega gert sér í
hugarlund. En hann hefur skil-
að mikilvægum áfanga í miðlun
miðaldafræða sem mörgum kann
að nýtast í framtíðinni. Saknað er
eftir mála vígs Snorra og ekki er
tæpt á þeirri kenningu að öll frá-
sögnin af vígi hans sé samin og
hugsuð til að smána hann. Og þá
um leið vaknar sú spurning hvers
vegna eftirmæli hans eru svo rýr,
hvers vegna andskotar hans og
frændur, vandamenn sáu sér hæg-
ast að láta hann hverfa í heimilda-
leysi sögunnar svo stór sem hann
var.
Óskar getur fagnað frábærlega
könnuðu verki, vandlega unnu,
skýringar, heimilda- og nafnaskrár
eru til fyrirmyndar; hann er skýr í
frumlegum eða aðsóttum túlkunum
á stjórnmálalegum og hagfræðileg-
um breytingum, ljósi bregður hann
á hin flóknu tengsl og er ekki ólík-
legt að nú brenni í akademíunni
nokkur öfund er Óskar stendur
keikur í sínu virki: Þetta tókst mér
vel. Páll Baldvin Baldvinsson
Sagan af Snorra Sturlusyni
BÓKMENNTIR Óskar Guðmundsson
ræðst á garðinn hæstan og smíðar af
litlum efnum mikla samtímalýsingu af
lífi jöfurs evrópskra bókmennta.
MYND FRETTABLAÐIÐ
Á fimmtugasta og fjórða aldurs-
ári er Kammerklúbburinn bara
nokkuð sprækur. Á sínum langa
ferli hefur klúbburinn verið í
fararbroddi í flutningi á kamm-
ermúsík á landinu og hafa marg-
ir sprotar vaxið frá honum. Á
þessum vetri verða fimm tón-
leikar á vetrardagskránni, allir
tónleikarnir verða í Bústaða-
kirkju, eru alltaf á sunnudags-
kvöldum og hefjast kl. 20. Tveir
eru að baki en þeir þriðju verða á
sunnudagskvöld. Þar kemur fram
hópurinn Camerarctica, en hann
skipa Hildigunnur Halldórsdótt-
ir fiðla, Bryndís Pálsdóttir fiðla,
Svava Bernharðsdóttir víóla, Sig-
urður Halldórsson selló, Ármann
Helgason klarínetta, Guðrún
Óskarsdóttir semball. Verk-
in eru úr smiðjum Buxtehude,
Shostakovitsj og Brahms.
Dieterich Buxtehude (1637-
1707) fæddist í danska stórríkinu,
á Skáni eða í Holstein. Að megin-
starfi var hann organleikari og fór
mikið orð af hæfni hans. Á efri
árum hans gerðu bæði Händel og
Bach sér ferð á hans fund – hinn
síðarnefndi, þá tvítugur, gekk 400
km leið til að heyra hann spila.
Buxtehude bauð Händel að gerast
eftirmaður sinn sem organleikari í
Lübeck þar sem hann hafði starfað
lengst, með því skilyrði að hann
kvæntist eldri dóttur sinni, sem
Händel afþakkaði. Meginhluti
tónverka Buxtehudes er til söngs,
kórverk og óratoríur, og er margt
glatað. Af kammermúsík voru
aðeins gefnar út fjórtán sónötur
á hans tíð, og sú í D-dúr, sem flutt
var í Kammermúsíkklúbbnum
1958, og í G-dúr sem nú verður
flutt eru úr því safni.
Með flutningi 11. strengjakvart-
etts Dmitris Shostakovitsj (1906-
1975) lokast hringurinn: þá hafa
allir fimmtán kvartettar þessa
helsta kvartettaskálds 20. aldar
verið fluttir í Kammermúsík-
klúbbnum, en kvartett nr. 1 op.
49 var fluttur í nóvember 1957, á
öðru starfsári klúbbsins. Kvart-
ettinn var frumfluttur í Moskvu
26. mars 1966.
Johannes Brahms (1833-1897)
kynntist á efri árum frábær-
um klarinettuleikara, Richard
Mühlfeld, og fyrir hann samdi
hann fjögur kammerverk,
tvær sónötur (op. 120), tríó (op.
114) og kvintett (op. 115). Áður
hafði Brahms látið sem hann
hefði samið sitt síðasta verk, en
Mühlfeld varð til að blása lífi í
hina skapandi æð tónskáldsins.
Kammermúsíkklúbburinn hefur
flutt op. 114 níu sinnum og flytur
nú op. 115 í sjöunda sinn. Mennta-
málaráðuneyti, Reykjavíkurborg,
Alcoa og Smith & Norland hf. eru
styrktaraðilar Kammerklúbbs-
ins í ár. Vefsíðan hans er www.
kammer.is. - pbb
Kammerklúbburinn held-
ur til í Bústaðakirkju
TÓNLIST Camerarctica á æfingu í vik-
unni. MYND KAMMERKLÚBBURINN
Óli G. Jóhannsson opnar sýningu á
nýjum verkum í Studio Stafni, Ing-
ólfsstræti 6, á morgun kl. 15. Óli
hefur gert víðreist að undanförnu
og hafa verk hans verið sýnd víðs
vegar um heim. Síðasta sýning
á verkum Óla G. á vegum Opera
Gallery var í New York en þar
voru sýnd fjórtán verk og seldist
meirihluti þeirra.
Á vegum Opera Gallery hefur
Óli verið með sérsýningar í Lond-
on og Singapúr auk þess að hafa
tekið þátt í samsýningum í Seúl,
Dúbaí og Mónakó.
Fyrirhugaðar eru tvær stór-
ar sýningar á næsta ári á vegum
Opera Gallery ef allar áætlanir
ganga eftir. Að sögn Jean-David
Malat, eins af eigendum Opera
Gallery, hafa viðbrögð við verk-
um Óla G. verið vonum framar
og eru forsvarsmenn gallerísins
mjög ánægðir með framvinduna
til þessa.
Sýningin í Studio Stafni stendur
aðeins til 29. nóvember og er opið
alla daga frá kl. 14.00-17.00 nema
mánudaga. - pbb
Óli G. í Stafni
MYNDLIST Eitt verka Óla á sýningunni í
Stafni sem stendur aðeins fram á næstu
helgi. MYND/GALLERÍ STAFN
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...