Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 68

Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 68
48 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR „Ég er eins og aðrir. Ég kíki reglulega á Facebook og tékka á „statusnum“,“ segir Guðmundur Annas Árnason, eða Mummi, sem hefur gefið út nýtt lag um Facebook, Hver er statusinn hjá þér? Mummi segist vera fyrsti Íslendingurinn til að gefa út lag um Facebook og er bara ansi ánægður með það. „Það eru allir að leika sér á Facebook og ég skildi aldrei að enginn var búinn að semja lag um það. Þegar ég fékk hugmyndina ákvað ég að drífa lagið í gegn áður en einhver annar færi að semja lag um Facebook,“ segir hann og bætir við að textinn hafi verið fljótur að fæðast. „Það sem er svo auðvelt við að semja texta um Facbook er að þarna eru mörg orð og heiti sem fólk er að nota. Maður getur gripið þau á lofti og sniðið í kringum þau.“ Mummi er einnig söngvari í Klaufunum frá Sel- fossi og hefur gefið út með þeim tvær plötur. Sóló- ferill er þó eitthvað sem heillar hann og á næsta ári hefjast upptökur á nýju lagi í Stúdíó Sýrlandi sem mun fylgja eftir vinsældum Facebook-lagsins. Þrátt fyrir að Mummi kíki öðru hverju á Face- book segist hann ekki eyða miklum tíma þar. Ástæðan er sú að hann rekur Kaffi Krús á Selfossi þar sem hann hefur í nógu að snúast. Þar hefur hann útbúið sérhannaðan Klaufamatseðill fyrir hvern og einn í hljómsveitinni sem gestir staðarins geta einnig pantað sér. Matseðillinn hefur heldur betur hitt í mark, enda hélt hann Klaufunum södd- um og sælum er þeir skelltu sér í upptökuleiðangur til Nashville á síðasta ári. - fb Semur fyrsta Facebook-lagið MUMMI Mummi hefur sent frá sér fyrsta Facebook-lagið. Það heitir Hver er statusinn hjá þér? Will Ferrell er oflaunaðasti kvikmyndaleikarinn í Hollywood samkvæmt nýjum lista tímaritsins Forbes. Í öðru sæti er Ewan McGregor og í því þriðja er Billy Bob Thornton. Þrátt fyrir að Ferrell sé einn vin- sælasti gamanleikarinn í Holly- wood eru launin sem hann fær í vasann ekki í neinum takti við gróðann af myndunum sem hann leikur í. Samkvæmt útreikningum Forbes græddu síðustu myndir Fer- rells aðeins 3,29 dollara fyrir hvern dollara sem honum var borgað fyrir vinnu sína. Skoski leikarinn Ewan McGregor er næst oflaunaðastur, í þriðja sæti er Billy Bob Thornton, gamanleik- arinn Eddie Murphy er fjórði og rapparinn Ice Cube í fimmta sæti. Eftir að Eddie Murphy lék í nokkr- um vinsælum myndum í röð á borð við The Nutty Professor krafð- ist hann hærri launa fyrir næstu myndir sínar. Síðan þá hafa vin- sældir hans dvínað þrátt fyrir að hann fái ennþá feitt launaumslag fyrir hverja einustu mynd. Síðasta floppið hans er Meet Dave sem var rökkuð niður af gagnrýnendum. Í könnun Forbes var ekki bara litið til aðsóknar í kvikmyndahúsum heldur einnig sölu á mynddiskum og sjónvarpsréttindum. Hjartaknúsar- inn Tom Cruise varð sjötti á listan- um. Ástæðan fyrir því eru samn- ingar sem hann gerði þar sem hann fékk ekki greitt fyrir hlutverkin heldur fékk hluta af ágóðanum í staðinn. Eina leikkonan sem komst á topp tíu listann var Drew Barrymore sem lenti í sjöunda sæti. Í síðasta mánuði birti Forbes tölur yfir þær leikkonur sem skiluðu mestum hagnaði í Hollywood og varð hin ástralska Naomi Watts hlutskörp- ust. Áður hafði Shia LaBeouf náð efsta sætinu yfir þá karlleikara sem öruggast er að veðja á. Will Ferrell fær of há laun FIMM OFLAUNUÐUSTU: 1. Will Ferrell 2. Ewan McGregor 3. Billy Bob Thornton 4. Eddie Murphy 5. Ice Cube 6. Tom Cruise 7. Drew Barrymore 8. Leonardo DiCaprio 9. Samuel L. Jackson 10. Jim Carrey „Þetta er kynning á okkur öllum og í raun og veru verslun. Þetta er allt nýtt,“ segir hönnuðurinn Edda Skúladóttir. Edda og fjórir aðrir hönnuðir, Áslaug Saja, Ása Gunnlaugs- dóttir, Davíð Þorsteinsson og GUNKAT, kynna hönnun sína á Barónsstíg 3 um helgina. Edda hannar undir nafninu fluga og opnaði í gær vefsíðuna Fluga.is. „Við verðum bara með búðina um helgina,“ segir Edda og bætir við að það verði opið á laugardag frá 12 til 17 og á sunnudag frá 13 til 17. Ýmislegt verður í boði, bæði föt og skartgripir. „Þetta verður rosalega flott og við leggj- um mikið í þetta. Ég er með fatn- að, Áslaug Saja er með boli og leðurvörur, Ása er gullsmiður og GUNKAT er með hárskraut og fylgihluti.“ Edda segir að íslensk hönnun hafi blómstrað í kreppunni og spár um að árið yrði rólegt hafi ekki ræst. „Ég hélt að það yrði rólegt eftir áramótin,“ segir hún. „En það er búið að vera nóg að gera.“ - afb Kynna nýja hönnun Amy Winehouse langar nú að láta laga á sér nefið. Söngkonan eyddi nýverið 35.000 pund- um í að láta stækka brjóst sín úr skálastærð 32B í 32D og samkvæmt heimildum breska dagblaðsins The Sun vill hún núna láta laga á sér „nornanefið“. Winehouse, sem er 26 ára, er sögð kunna vel við allt hrósið sem hún hefur fengið fyrir betra útlit upp á síðkastið. Þá hefur hún verið að teikna upp myndir af sjálfri sér því hún hefur í hyggju að láta búa til dúkku sem lítur út eins og hún og er sann- færð um að dúkkan verði vinsæl meðal barna og aðdáenda. Langar í nefaðgerð BREYTT ÚTLIT Amy Wine- house lét nýverið stækka á sér brjóstin. KYNNIR FATNAÐ Edda og fjórir aðrir hönnuðir kynna vörur sínar um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN OFLAUNAÐIR Will Ferrell fær allt of há laun samkvæmt Forbes. Ewan McGreg- or er í öðru sæti, Eddie Murphy í því fjórða og Drew Barrymore er í sjöunda sæti.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.