Fréttablaðið - 20.11.2009, Qupperneq 71
FÖSTUDAGUR 20. nóvember 2009 51
Fyrirsætan Heidi Klum
eignaðist sitt fjórða barn fyrir
tæpum mánuði en er strax
komin aftur til vinnu. Þrátt
fyrir að líta sérstaklega vel út
heldur hún því fram að hún sé
ekki enn komin með sinn gamla
vöxt. „Maður breytist með
aldrinum. Þetta var allt öðruvísi
þegar ég var yngri og gekk með
mitt fyrsta barn.“ Klum segist
ekki fara í ræktina til að æfa
sig, heldur sé nóg að hugsa um
fjögur börn. „Ég er á stanslausri
ferð með börnin. Þegar maður
á fjögur börn er lítið um letilíf.
Brjóstagjöfin
er besta leiðin
til að missa
barnafituna,
það og hollur
matur ásamt smá
hreyfingu.“
Eltir börnin
EKKERT LETILÍF
Heidi Klum segir
börnin sín fjögur
sjá til þess að hún
hreyfi sig nóg.
„Ég byrjaði að æfa á fullu fyrir svona
ári og sökkti mér þá í þetta,“ segir
Friðrika Hjördís, sjónvarpskokkur og
þáttastjórnandi Wipeout. Óhætt er að segja
að Friðrika sé í fantaformi, enda æfir hún
daglega í Laugum World Class og gengur
reglulega á fjöll.
„Ég mæti eiginlega bara til að geta borðað
meira. Mér finnst hrikalega gott að borða og
er mikill nautnaseggur svo ef ég mætti það
ekki veit ég ekki hvar þetta myndi enda,“
segir Friðrika og hlær, en viðurkennir að
með aukinni líkamsrækt kalli líkaminn
á hollari mat. „Ég fer ekki eftir neinu
prógrammi og hef engan sérstakan metnað
fyrir því að vera með eitthvert „sixpack“.
Þetta er ekki átak hjá mér heldur hluti af
mínu lífi. Svo er þetta líka bara svo gott
fyrir sálina,“ útskýrir Friðrika og segist
hafa litla trú á skyndikúrum. „Ef fólk
ætlar að koma sér í gott form er þetta bara
spurning um að borða skynsamlega og æfa
meira.“
Sýningar á Wipeout hefjast 11. desember
og aðspurð segist Friðrika vera orðin spennt
að sjá útkomuna. „Þetta leggst mjög vel í
mig og ég veit að margir bíða spenntir eftir
að horfa. Það góða við þessa þætti er að
það eru svo margir að ögra sjálfum sér. Við
erum alltaf að passa okkur að gera okkur
ekki að fíflum, en þarna er fólk að fara út
fyrir þægindahringinn, sem gerir þetta svo
skemmtilegt,“ segir hún. - ag
Rikka í hörkuformi
DUGLEG Í RÆKTINNI
Friðrika æfir daglega í World Class í
Laugum og gengur reglulega á fjöll.
Hún segir hreyfinguna engan lúxus,
heldur lífsnauðsyn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nicole Richie liggur nú á spítala
eftir að hún greindist með lungna-
bólgu. Raunveruleikasjónvarps-
stjarnan var flutt á Cedars-Sinai
spítalann í Los Angeles eftir að
hún kvartaði undan vanlíðan og
var hún þá greind, en samkvæmt
talsmanni Richie líður henni ágæt-
lega.
Nicole Richie skrifaði nýverið
færslu á Twitter-síðu sína þar sem
hún kvartaði yfir því að vera búin
að vera kvefuð í sex daga og stuttu
síðar fékk hún lungnabólguna.
Richie verður fjarri fjölskyldu
sinni þar til henni batnar, en hún á
tvö börn ásamt eiginmanni sínum
Joel Madden, dótturina Harlow
sem er tæplega tveggja ára og
soninn Sparrow sem er aðeins
tveggja mánaða gamall.
Nicole lögð
inn á spítala
MEÐ LUNGNABÓLGU Nicole Richie hefur
greinst með lungnabólgu og dvelur nú á
Cedars-Sinai spítalanum í Los Angeles.
Kirsten Dunst segist ekki
lengur vera vinkona fyrrverandi
kærasta síns Jakes Gyllenhaal.
Dunst og Gyllenhaal áttu í
ástarsambandi í tvö ár en hættu
saman árið 2004. „Það væri
gaman að hitta hann aftur en
við erum ekki góðir vinir,“ sagði
Dunst. Gyllen haal er núna með
leikkonunni Reese Witherspoon
en Dunst er laus og liðug. Hún
var áður með rokkaranum Johnny
Borrell úr Razorlight. „Vinkonur
mínar sofa stundum uppi í rúmi
hjá mér en engir aðrir gestir, alla
vega ekki til langs tíma.“
Ekki vinkona
Gyllenhaal
KIRSTEN DUNST Segist ekki lengur vera
vinkona Jakes Gyllenhaal.