Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 72
52 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir skrifaði í gær undir þriggja ára
samning við KR um að gerast aðalþjálfari meistaraflokks
kvenna í fótbolta hjá Vesturbæjarfélaginu en Kristrún Lilja
Daðadóttir verður aðstoðarþjálfari liðsins og Björgvin Karl
Gunnarsson verður þjálfari 2. flokks ásamt því að verða
þeim Guðrúnu Jónu og Kristrúnu Lilju innan handar
með meistaraflokkinn. Guðrún Jóna þjálfaði lið Aftureld-
ingar/Fjölnis síðasta sumar en er að snúa aftur á fornar
slóðir þar sem hún lék 336 leiki með KR við góðan
orðstír á árunum 1985 til ársins 2004 og skoraði í þeim
leikjum 143 mörk.
„Ég er rosalega ánægð með að vera komin heim til KR
þar sem ég hef verið hér alla mína tíð fyrir utan smá hliðar-
skref,“ sagði Guðrún Jóna ánægð í samtali við Fréttablaðið
í gær. KR gekk í gegnum miklar breytingar síðasta sumar.
Félagið missti nokkra landsliðsleikmenn úr röðum sínum
fyrir tímabilið en ákvað í staðinn að byggja leikmannahóp
sinn á ungum og efnilegum leikmönnum.
„Þetta var lærdómsríkt sumar fyrir KR og við munum byggja á
þessum ungu og efnilegu leikmönnum sem eru nú reynslunni ríkari
og stuðla að því að þeir haldi áfram að bæta sig. Við ætlum að
komast aftur í fremstu röð og stefnan er að leggja grunninn að því
strax næsta sumar. KR á náttúrulega heima í toppbaráttunni
og það var því frekar óvenjulegt að sjá liðið
um miðja deild síðasta sumar en núna liggur
þetta allt upp á við,“ segir Guðrún Jóna
vongóð.
„Næsta skref hjá mér verður bara að
skoða leikmannahópinn og kynnast þeim
stelpum sem ég þekki ekki fyrir og stefnan
er klárlega að halda þeim leikmönnum
sem eru fyrir hjá félaginu og fá þá til þess
að skrifa undir samninga,“ segir Guðrún
Jóna en fyrirliðinn Lilja Dögg Valþórsdóttir
skrifaði einmitt undir nýjan tveggja ára
samning við KR í gær.
GUÐRÚN JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR: VAR Í GÆR RÁÐIN ÞJÁLFARI MEISTARAFLOKKS KVENNA Í FÓTBOLTA HJÁ KR
Við ætlum að komast aftur í fremstu röð
Iceland Express-deild karla
Grindavík - Stjarnan 93-83 (38-30)
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 27, Ómar
Örn Sævarsson 19 (12 fráköst), Darrell Flake 16
(8 fráköst), Brenton Birmingham 13, Arnar Freyr
Jónsson 8, Þorleifur Ólafsson 7, Björn Brynjólfs-
son 3.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 29 (8 frák., 6
stoðs.), Jovan Zdravevski 22, Kjartan Atli Kjart-
ansson 13 (9 frák.), Magnús Helgason 8 (9 frák.),
Fannar Freyr Helgason 5 (15 frák.), Ólafur Aron
Ingvason 4, Birgir Björn Pétursson 2.
Tindastóll - Keflavík 69-88 (26-40)
Stig Tindastóls: Svavar Atli Birgisson 22 (10
frák.), Helgi Rafn Viggósson 13, Axel Kárason 12
(9 frák.), Amani Bin Daanish 7 (14 frák.), Helgi
Margeirsson 7, Michael Giovacchini 3, Hreinn
Birgisson 2, Sveinbjörn Skúlason 2, Sigmar
Björnsson 1.
Stig Keflavíkur: Sigurður Þorsteinsson 25 (15
frák.), Rashon Clark 22 (19 frák.), Davíð Þór Jóns-
son 12, Hörður Axel Vilhjálmsson 10, Elentinus
Margeirsson 6, Þröstur Leó Jóhannsson 5, Sverrir
Þór Sverrisson 4, Gunnar Einarsson 4.
KR - Hamar 91-88 (26-34)
Stig KR: Semaj Inge 27, Tommy Johnson 18, Ólaf-
ur Már Ægisson 14, Brynjar Þór Björnsson 13,
Finnur Magnússon 8 (8 frák.), Darri Hilmarsson
6, Fannar Ólafsson 3 (8 frák.), Jón Orri Kristj-
ánsson 2.
Stig Hamars: Andre Dabney 27 (8 frák, 7 stoðs.),
Marvin Valdimarsson 27, Oddur Ólafsson 10,
Svavar Páll Pálsson 9 (8 frák, 7 stoðs.), Ragnar
Nathanaelsson 8 (8 frák.), Páll Helgason 4, Vidar
Örn Hafsteinsson 3.
N1-deild karla
HK - Valur 20-24 (10-11)
Mörk HK (skot): Valdimar F. Þórsson 5/1 (11/2),
Bjarki M. Gunnarsson 4 (4), Vilhelm G. Berg-
sveinsson 3 (3), Hákon Bridde 2 (2), Atli Æ. Ing-
ólfsson 2 (5), Ragnar Hjaltested 2/0 (4/1), Sverrir
Hermannsson 2 (7), Ólafur Víðir Ólafsson 0 (1)
Varin skot: Sveinbjörn Péturss 14, Lárus Ólafss. 2
Hraðaupphlaup: 6 (Bjarki 3, Atli, Ragnar, Hákon)
Fiskuð víti: 3 (Bjarki, Sverrir, Hákon)
Utan vallar: 2 mín.
Mörk Vals (skot): Fannar Friðgeirsson 7 (8),
Arnór Gunnarsson 6 (13), Ernir H. Arnarsson 4
(8), Elvar Friðriksson 3/3 (8/3), Ingvar Árnason
2 (3), Gunnar I. Jóhannsson 1 (4), Sigfús Páll
Sigfússon 1 (4), Orri Freyr Gíslason 0 (2), Atli
Báruson 0 (1).
Varin skot: Hlynur Morthens 15/1
Hraðaupphlaup: 7 (Fannar 4, Arnór 2, Gunnar)
Fiskuð víti: 3 (Orri 2, Fannar)
Utan vallar: 6 mín.
Fram - Akureyri 18-27 (10-12)
Mörk Fram (skot): Arnar B. Hálfdánarson 8/4
(14/4), Magnús Stefánsson 4 (13), Halldór
Jóhann Sigfússon 2 (3), Jóhann K. Reynisson 2
(3), Stefán B. Stefánsson 2 (6), Lárus Jónsson (1),
Hákon Stefánsson (1), Andri B. Haraldsson (6).
Varin skot: Magnús Erlendsson 12 (30/3, 40%),
Sigurður Örn Arnarson 6 (15/1, 40%).
Hraðaupphlaup: 4 (Andri Magnús 1, Halldór
Jóhann 1, Stefán Baldvin 1, Jóhann Karl 1).
Fiskuð víti: 4 (Halldór 2, Stefán B. 1, Arnar B. 1).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Akureyrar (skot): Jónatan Þór Magnússon
13/4 (17/5), Oddur Grétarsson 6 (9), Árni Þór
Sigtryggsson 2 (8), Heimir Árnason 2 (4), Hreinn
Hauksson 2 (2), Hörður F. Sigþórsson 1 (2), Guð-
laugur Arnarsson 1 (1), Geir Guðmundsson (2),
Guðmundur Helgason (2), Valdimar Þengilsson
(1).
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 22 (40/4,
55%).
Hraðaupphlaup: 8 (Oddur 5, Guðlaugur 1,
Heimir Örn 1, Jónatan Þór 1).
Fiskuð víti: 5 (Árni 2, Geir 1, Guðlaugur 1, Oddur
1).
Utan vallar: 14 mínútur.
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Péturs-
son, misstu aðeins tökin í seinni hálfleik.
STAÐAN
Valur 6 5 0 1 158-138 10
Haukar 4 3 1 0 104-98 7
Akureyri 6 3 1 2 144-140 7
FH 5 2 1 2 149-148 5
HK 5 2 1 2 122-128 5
Grótta 5 2 0 3 126-121 4
Stjarnan 5 1 0 4 114-127 2
Fram 6 1 0 5 148-165 2
ÚRSLIT
> Fer í læknisskoðun í dag
Ólafur Ingi Skúlason mun sennilega semja við
danskt félag í dag ef hann stenst læknisskoðun
hjá félaginu. Það staðfesti hann í samtali við
Fréttablaðið en vildi ekki gefa upp til hvaða
liðs hann væri að fara. Danski vefmiðillinn
onside.dk hefur hins vegar fullyrt að hann sé
á leið til SönderjyskE en Sölvi Geir Ottesen,
félagi Ólafs í landsliðinu, leikur með því
liði í dönsku úrvalsdeildinni. Ólafur Ingi
hefur spilað með Helsingborg í Svíþjóð
undanfarin þrjú ár en var þar áður í
Englandi hjá Arsenal og Brentford.
HANDBOLTI „Þið eruð svo fyrirsjá-
anlegir að ég gæti spilað vörn á
móti ykkur,“ sagði Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Vals, reiði-
lega við sína menn í einu af leik-
hléum fyrri hálfleiks gegn HK í
gær. Valsmenn voru þá undir en
náðu forystunni fyrir hálfleik og
létu hana aldrei af hendi eftir það,
unnu 24-20 útisigur.
HK-ingar voru vel inni í leiknum
lengi vel en um miðjan seinni hálf-
leikinn kom kafli þar sem sóknar-
leikur þeirra var í molum og það
nýttu Valsmenn sér og hreinlega
slátruðu heimamönnum. Hlíðar-
endapiltar náðu fimm marka for-
skoti og þá var róðurinn orðinn of
þungur fyrir mótherjana.
„Við náðum ekki að telja tækni-
feilana í seinni hálfleik, þeir voru
það margir,“ sagði Gunnar Magn-
ússon, þjálfari HK. „Þeir bara
slátruðu okkur í hraðaupphlaup-
um. Ég var ánægður með vörnina
og markvörsluna í fyrri hálfleik en
sóknarleikur okkar í seinni hálf-
leik var skelfilegur.“
Gunnar segir að sitt lið eigi enn
langt í land. „Valsmenn eru tölu-
vert á undan okkur eins og staðan
er í dag. Við erum í harðri baráttu
og verðum að spýta í lófana, við
verðum að gera betur en þetta.“
Óskar Bjarni segist hafa verið
mjög ánægður með að hafa verið
með eins marks forystu í hálfleik
miðað við fyrri hálfleikinn. „Við
eigum mjög mikið inni sóknar-
lega miðað við síðustu tvo leiki. Á
móti kemur að ég er mjög sáttur
við varnarleikinn. Ég held að við
höfum síðast unnið hérna 2006 svo
það er mjög kærkomið að vinna,“
sagði Óskar.
Valur er sem stendur í efsta sæt-
inu. „Við tökum bara einn leik í
einu, það hefur alltaf hentað okkur
best. En við vitum alveg hvert við
stefnum og hvert við ætlum.“ - egm
Valsmenn kaffærðu HK-inga á tíu mínútna kafla í N1-deildinni í gær:
Erfið fæðing hjá Valsmönnum í Digranesi
TEKIÐ Á ÞVÍ Fannar Þór Friðgeirsson sækir að marki HK-inga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÖFLUGIR
Justin Shouse og Páll Axel Vilbergs-
son áttu báðir góðan leik en sá síðar-
nefndi hafði betur að þessu sinni.
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar unnu
mikilvægan 93-83 sigur á Stjörn-
unni í Iceland Express-deild karla
í gær. Grindavíkurliðið var með
frumkvæðið allan leikinn en seigla
Stjörnumanna hélt þeim inni í leikn-
um og úr varð spennandi leikur allt
til enda. Grindvíkingar höfðu síðan
betur í lokin og þriggja stiga karfa
Páls Axels Vilbergssonar um leið
og lokaflautið gall lét sigurinn líta
öruggari út.
„Það var gríðarlega dýrmætt
fyrir okkur að vinna þennan leik.
Við hefðum ekki viljað vera með
fjóra tapleiki eftir sjö umferðir.
Við erum mjög kátir með að vinna
þennan leik því þeir eru með hörku-
lið sem þeir hafa bæði sýnt í byrjun
móts sem og í fyrra,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, þjálfari Grindvíkinga,
í leikslok.
Grindavíkurliðið náði ítrekað upp
ágætu forskoti en missti það alltaf
jafnóðan niður.
„Við náðum aldrei almennilega
að hrista þá af okkur. Það vantaði
alltaf þennan sex til átta stiga kipp
hjá okkur sem við erum vanir að
ná. Við erum ekki að ná því en við
erum að vinna þetta á varn-
arleik og við erum að
verjast prýðilega,“ sagði
Friðrik og stigin tvö voru
mikilvægust af öllu. „Þetta
var baráttuleikur og ég var
ánægður með hvað liðið vann vel
saman í þessu. Við höfum verið að
hreinsa til í hausnum hjá okkur og
þetta var nauðsynlegur sigur fyrir
framhaldið hjá okkur,“ sagði Frið-
rik.
Páll Axel Vilbergsson og Ómar
Sævarsson (19 stig, 12 fráköst, 10
fiskaðar villur) áttu báðir sinn besta
leik í langan tíma.
„Ég veit ekki hvort ég er búinn að
finna taktinn en þetta gekk ágæt-
lega í dag,“ sagði Páll Axel Vil-
bergsson sem átti sinn langbesta
leik í vetur í gær, var með 27 stig
og setti niður 7 af 11 þriggja stiga
skotum sínum. Grindavík vann
þær 36 mínútur sem hann spilaði
með 14 stigum. Páll fékk líka mikið
hrós frá þjálfara sínum í leiks-
lok. „Páll Axel var frábær í þess-
um leik báðum megin á vellinum.
Hann spilaði fantavörn og var
frábær í sókninni þar sem
mikið frumkvæði var í
honum,“ sagði Friðrik
og Páll sjálfur viður-
kenndi að þetta hafi
verið allt annað hjá
honum. „Við vorum
ekki spila á fullu sjálfs-
trausti, það vantaði bara
mikið í marga leikmenn
og þar á meðal mig. Ég er
bara búinn að vera lélegur það sem
af er móti. Ég vil ekki segja að ég
sé búinn að snúa við blaðinu en við
erum allavega að vinna í okkar
málum. Þetta var kannski ávísun á
það að við séum farnir að gera rétta
hluti,“ sagði Páll Axel.
Stjörnumenn sýndu mikinn styrk
með því að halda sér inni í leiknum
en eftir sigra í fimm fyrstu leikjun-
um er liðið að ganga í gegnum erf-
iða tíma sem reynir mikið á hóp-
inn.
„Það eru 6 af 7 mönnum hjá
okkur meiddir og þeir eru að
spila á 50 prósent hraða. Það
er samt engin afsökun því þeir
spila leikina en ég er virkilega
stoltur af þeim,“ sagði Teitur
Örlygsson, þjálfari Stjörnunn-
ar, og hann er ekkert að hafa
áhyggjur þrátt fyrir að liðið
sé búið að tapa tveimur leikj-
um í röð. „Við erum hæst-
ánægðir með stöðuna í deild-
inni eins og hún er í dag að við
séum með fimm sigra og tvö
töp. Við ætlum að reyna að ná
fleiri sigrum fyrir jól. Menn
eru á batavegi og þeir verða
bara betri,“ segir Teitur.
Justin Shouse og Jovan Zdra-
vevski voru að venju í aðalhlut-
verkum hjá Stjörnunni en Teitur
hrósaði séstaklega dugnaði
fyrirliðans Fannars Freys Helga-
sonar. „Ég er hrikalega stoltur af
strákunum eins og þeir spiluðu í dag
og þá sérstaklega Fannari. Ég veit
ekki hvað hann tók mörg fráköst á
annarri löppinni sem er bara magn-
að,“ sagði Teitur en Fannar var með
15 fráköst í leiknum.
„Við eigum Njarðvík í næsta leik
og við vissum að þetta yrði brjál-
aður nóvember hjá okkur og þess
vegna var mikilvægt að taka þessa
fyrstu leiki í mótinu. Það hjálpaði
okkur,“ sagði Teitur.
ooj@frettabladid.is
Nauðsynlegur sigur fyrir framhaldið
Grindvíkingar fögnuðu langþráðum heimasigri þegar liðið vann 93-83 sigur á Stjörnunni í gær. Páll Axel
Vilbergsson fann taktinn á nýjan leik og skoraði 27 stig í leiknum. Ómar Sævarsson átti einnig góðan leik.