Fréttablaðið - 20.11.2009, Side 74
20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
GÓÐAR
FRÉTTIR
Frídreifing verður áfram á höfuðborgarsvæðinu, suðvestur-
horninu, Akranesi, Reykjanesi, Akureyri, í Borgarnesi og Árborg.
Nú verður Fréttablaðið líka aðgengilegt í öllum öðrum
landshlutum og fæst í lausasölu á kostnaðarverði.
Þeir sem hafa áhuga á að fá blaðið til sölu á kostnaðarverði
vinsamlegast hafi samband við Pósthúsið í síma 585 8300.
Hér færðu Fréttablaðið á kostnaðarverði:
Nú er Fréttablaðið
aðgengilegt hringinn
í kringum landið.
Ásbyrgi Verslunin Ásbyrgi
Bakkafjörður Mónakó
Baula Verslun
Blönduós N1
Potturinn og pannan
Dalvík N1 – Olís
Egilsstaðir N1
Eskifjörður Shell skáli
Kría veitingastaður
Fellabær Olís
Hella Olís
Hellissandur Hraðbúð N1
Shell
Húsavík N1 – Olís – Shell skáli
Hvolsvöllur N1 – Söluskálinn Björk
Höfn N1 – Olís
Ísafjörður N1
Kópasker Búðin Kópasker
Laugarvatn Tjaldmiðstöðin
Neskaupstaður Olís
Ólafsfjörður Olís
Ólafsvík N1 – Olís
Patreksfjörður Grillskálinn Patreksfirði
N1
Raufarhöfn Verslunin Urð
Reyðarfjörður N1 – Olís – N1
Rif Umboð Shell / Tandur
Sauðárkrókur N1 – Shell skáli
Hlíðarkaup
Siglufjörður Olís
Skagaströnd Olís
Staðarskáli N1
Stykkishólmur Bónus – Olís – Bakarí
Stöðvarfjörður Brekkan veitingastaður
Víðigerði Verslunin Víðigerði
Vík N1
Vopnafjörður N1
Þórshöfn N1
Allt sem þú þarft...
Hægt er að fá Fréttablaðið sent
frítt í tölvupósti á morgnana
eða nálgast það á Visir.is.
Patreksfjörður
Bakkafjörður
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar eru eina
taplausa liðið í Iceland Express-
deild karla eftir fyrstu sex umferð-
irnar og geta unnið sjöunda leik-
inn í röð í kvöld þegar liðið tekur á
móti Breiðabliki í Ljónagryfjunni.
Sigurður Ingimundarson tók við
liði Njarðvíkur af bróður sínum
skömmu fyrir mót en hann hafði
áður stjórnað nágrönnunum og
erkifjendunum í Keflavík á 12 af
síðustu 13 tímabilum. Sigurður
hefur náð að koma með nýtt líf inn
í Njarðvíkurliðið sem olli nokkrum
vonbrigðum í fyrra.
Njarðvíkingar spila með al-
íslenskt lið og eru nú eina liðið í
deildinni sem ekki teflir fram
erlendum leikmanni. Þetta er besta
byrjun alíslensks liðs síðan Njarð-
víkingar unnu fyrstu 14 leiki sína
tímabilið 1988-89.
Sigurður byrjaði frábærlega
með Keflavík á sínum tíma en liðið
vann fjórfalt á hans fyrsta tíma-
bili veturinn 1996 til 1997. Kefla-
vík varð þá fyrirtækjameistari í
nóvember, bikarmeistari í febrúar,
deildarmeistari í mars og Íslands-
meistari í apríl. Þetta frábæra
tímabil byrjaði samt ekki eins
vel og tímabilið hefur byrjað hjá
Njarðvíkingum í ár. Keflavík vann
þá fimm fyrstu leiki sína áður en
það tapaði tveimur af næstu þrem-
ur. Fyrsta tapið kom í deildarleik á
móti Njarðvík í Ljónagryfunni 24.
október 1996. Eftir þessi tvö töp
með tveggja vikna tímabili vann
Keflavíkurliðið hins vegar 15 af
16 síðustu deildarleikjum sínum
og síðan alla titla í boði.
Sigurður þekkti misvel til
leikmanna Njarðvíkinga áður
en hann tók við liðinu en engan
þekkti hann þó betur en Magnús
Þór Gunnarsson sem hefur spil-
að nær allan sinn körfuboltaferil
fyrir hann bæði með Keflavík og
landsliðinu.
Það kemur því kannski ekki á
óvart að Magnús hafi blómstrað
síðan að Sigurður tók við liðinu
en hann hefur skorað 18,7 stig og
gefið 3,8 stoðsendingar á 29 mín-
útum í fyrstu sex deildarleikj-
unum og skoraði enn fremur 28
stig (átta þrista) þegar Njarðvík
sló KR út úr Subway-bikarnum á
dögunum.
Annar leikmaður sem hefur
blómstrað undir stjórn Sigurðar
í haust er Jóhann Árni sem hefur
leikið einstaklega vel.
Nú er að sjá hvort framhald
verði á sigurgöngu Njarðvíkinga
undir stjórn Sigurðar en nágrann-
ar þeirra í Keflavík eru örugglega
farnir að telja niður fyrir fyrsta
innbyrðisleik liðanna síðan sigur-
sælasti þjálfari félagsins tók við
erkifjendunum úr Njarðvík.
ooj@frettabladid.is
Byrjar betur með Njarðvík
en hann gerði hjá Keflavík
Njarðvík hefur unnið sjö fyrstu leiki sína undir stjórn Sigurðar Ingimundarson-
ar sem er besta byrjun alíslensks liðs í úrvalsdeild karla í tvo áratugi.
Í GRÆNU Sigurður Ingimundarson sést hér koma skilaboðum til sinna manna.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Ólöglegt sigurmark
Frakklands í framlengingu í síð-
ari umspilsleiknum gegn Írlandi
á miðvikudagskvöld hefur ollið
miklu fjaðrafoki og Írar hafa
formlega farið fram á að leikur-
inn verði spilaður aftur. Thierry
Henry handlék boltann í tvígang,
áður en hann gaf stoðsendinguna
að sigurmarkinu sem William
Gallas skoraði, án þess að dómari
leiksins tæki eftir einu né neinu og
því var markið látið standa.
„Þessi augljósu mistök sem dóm-
arinn gerði með því að láta umrætt
mark standa hafa ekki gert neitt
annað en að eyðileggja ímynd fót-
boltans og því hefur Knattspyrnu-
samband Írlands kallað á alþjóða-
knattspyrnusambandið FIFA að
það sjái til þess að leikurinn verði
spilaður aftur. Við teljum það vera
mikilvægt í ljósi háttvísi og heiðar-
leika í fótboltanum að FIFA bregð-
ist nú við,“ segir í yfirlýsingu frá
Knattspyrnusambandi Írlands.
Fordæmi er fyrir því hjá FIFA
að leikur hafi verið spilaður að
nýju vegna dómaramistaka en það
gerðist árið 2005 þegar Úsbekistan
og Barein þurftu að endurtaka leik
sinn. - óþ
Írar eru bálreiðir út af ólöglegu marki Frakka í umspilsleik þjóðanna í fyrrakvöld:
Vilja láta spila leikinn aftur
HENDI Ekki fer á milli mála að Thierry
Henry handlék boltann. NORDIC PHOTOS/AFP
HANDBOLTI Akureyri vann í gær
sinn þriðja sigur í röð í N1-deild
karla er liðið lagði Fram í Safa-
mýrinni í gær, 27-18. Staðan í hálf-
leik var 12-10, norðanmönnum í
vil.
Framarar byrjuðu reyndar mun
betur. Þeir voru fastir fyrir í vörn-
inni og leystu framliggjandi 3-2-1
vörn Akureyringa ágætlega. Þeir
komust í 9-5 eftir rúmlega fjórtán
mínútna leik en þá hrundi leikur
liðsins algerlega.
Akureyri skoraði á næstu 30
mínútum leiksins fjórtán mörk
gegn aðeins tveimur hjá Fram og
sneri því leiknum algerlega sér í
hag. Magnús Erlendsson var þrátt
fyrir þetta að verja þokkalega
í marki Framara en þó fjaraði
undan honum eftir því sem á leið.
Jónatan Þór Magnússon fór á
kostum í leiknum og skoraði alls
þrettán mörk. „Við höfum verið að
byrja frekar illa í okkar leikjum
en þrátt fyrir að það hafi gerst í
kvöld fannst mér alltaf ákveðinn
neisti vera til staðar hjá okkur.
Ég hafði því ekki áhyggjur,“ sagði
Jónatan. „En varnarleikurinn var
frábær hjá okkur. Það var nokkuð
óvenjulegt að spila 3-2-1 vörn allan
leikinn en Flóki varði vel í mark-
inu og við keyrðum yfir þá með
hraðaupphlaupsmörkum.“
Einar Jónsson, aðstoðarþjálf-
ari Fram, sagði sóknarleik sinna
manna hafa verið afar slakan.
„Þetta er sama vandamál og
verið hefur í síðustu leikjum. Sókn-
arleikurinn virðist einfaldlega ekki
vera til staðar. Við höfum byrjað
vel og gerðum það aftur í kvöld en
sem fyrr náðum við ekki að nýta
okkur þann meðbyr. Á meðan svo
er virðist lítið hægt að gera.“
Hann segir að það sé engin
afsökun þó svo að Fram hafi misst
marga leikmenn frá síðasta tíma-
bili. „Við erum enn með marga
góða leikmenn í okkar liði en
okkur vantar enn að fá það sem
við viljum úr okkar leikreyndustu
mönnum.“ - esá
Akureyri vann öruggan sigur á Fram í Safamýrinni í N1-deild karla í gær:
Jónatan skaut Framara í kaf
TEKUR Á RÁS Árni Þór Sigtryggsson í
leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FYRSTU 8 LEIKIRNIR MEÐ KEFLAVÍK
3. október deild ÍR (heima) 99-84 sigur
6. okt. deild Grindavík (úti) 108-103 sigur
10. október deild ÍA (heima) 93-60 sigur
18. otk. fbikar Snæfell (úti) 121-77 sigur
20. okt. fbikar Snæfell (h.) 122-82 sigur
24. október deild Njarðvík (úti) 87-94 tap
31. október deild KR (heima) 106-87 sigur
4. nóvember deild Haukar (úti) 81-88 tap
Samantekt: 8 leikir, 6 sigrar og 2 töp
FYRSTU 7 LEIKIRNIR MEÐ NJARÐVÍK
15. október deild ÍR (úti) 88-70 sigur
18. okt. deild Tindastóll (h.) 108-81 sigur
23.október deild Grindavík (úti) 74-67 sigur
29. október deild Fjölnir (úti) 73-64 sigur
1. nóvember deild KR (heima) 76-68 sigur
6. nóvember bikar KR (heima) 90-86 sigur
12. nóv. deild Hamar (úti) 100-89 sigur
Samantekt: 7 leikir, 7 sigrar og 0 töp