Vikan


Vikan - 21.04.1960, Síða 13

Vikan - 21.04.1960, Síða 13
Fgrir hverju er draumurinn? Nú hafið bið tækifæri til þess að fá rétta ráðningu á draumum. IJm það sér drauma- ráðningamaður, sem VIKAN kemur ykkur í samband við. Utanáskrift: VIKAN, póst- hólf 149. Draumráðandi Vikunnar. Fyrir nokkru dreymdi mig undarlegan draum, sem mig langar að biðja þig aS ráSa fyrir mig. Ég var staddur á vinnustofunni, þar sem ég vinn viS málningu, og mér fannst allt vera brunniS til ösku þar inni. Og verkstjórinn var aS hreinsa til brennt dót og bað mig að hjálpa sér. Ég færðist undan o gsagðist e-kki mega reyna á mig svona, þvi að ég væri ekki sterkur fyrir hjartanu. Með fyrir fram þökkum fyrir svarið, Mansi. Svar til Mansa. Draumför þín er hin merkilegasta, en samt veit hún ekki á neitt gott, ef svo mætti segja. í stuttu máli þá merkir draumurinn, að þú verður verklaus vegna hráefnaskorts. Mjög sennilega muntu hætta störfum hjá vinnuveit- anda þínum og fá st.arf, sem hentar l>etur heilsufari þínu. Oft og tíðum er erfitt, þegar svona stendur á, en þessu verðum við auðvitað að taka með jafnaðargeði og herða okkur við hverja mannraun og eigi iáta bugast, þótt ú<- litið sé hið svartasta. Hér mætti segja, að hjálp- in sé oft næst, þegar neyðin er stærst. Vand- aðu þig nú vel við vinnuvalið, þannig að starfið reynist þér létt og ánægjulegt. Það er mjög áríðandi, að vinnuþegi og vinnuveitandi séu báðir ánægðir. Til þess íná margt gera á báða bóga, sem sagt vandvirkni. Þá er árang- urinn auk launanna gleði og hamingja. Til draumráðandans. Mig dreymdi, að ég væri stödd á seglbát og sigldi þöndum seglum á fleygiferð. Mér fannst báturinn vera gulúr, og ég var alein á honum. En allt í einu var einn kunningi minn kominn við hlið mér og stýrði bátnum líka. Allt i einit strandaði báturinn, og „gajinn“ fór út úr bátn- um og ætlaði að ýta á flot, en skyndilega sökk kunningi minn og hvarf mér sýnum. Hvað merkir draumurinn? Rúna. Svar til llúnu. Draumur þinn er fyrir höppum og' glöppum í ástamálum. Þú munt vera í allnánu vinfengi viö einhvern pilt um þessar mundir. Bersýni- legt er, að alll mun leika í lyndi urn stundar- sakir fyrri ykkur og ekki horfur á öðru en hjónaband geti orðið úr þessu öllu, en þá kem- ur skyndilega babb í bátinn, því að stráksi mun taka upp á því að drekka og hætta sam- skiptum við þig. Láttu það samt ekki á þig fá, — þú verður reynslunni ríkari. Hinn „eini rétti“ mun vafalaust birtast þér einn góðan veðurdag, og þá fellur allt í ljúfa löð. Vertu því ekkert að gera þér sérstaka reilu út af þessurn pilti. Hann er ekki sá rétti fyrir þig. Kæri draumráðandi. Ég þóttisí stödd úti í berjsimó að sumarlagi í yndislegu veðri og var að tína bláber, sem voru stór og falleg. Hver er ráðning þin á þess- um draumi? Helga. Svar <il Helgu. Yfirleitt merkir slíkur draumur hjá konum, að þær nvegi eiga von á fjölgun, og vil ég hér með óska þér til hamingju með svo stórkost- legan atburð. Það er ávallt mikið um að vera, þegar á slíku er von, og það færir oftast. mikla hamingju fyrir alla þrjá aðila, þ. e. a. s. móð- ur, barn og föður. Láttu þér þvi líða sem bezt á næstunni, svo að nýi borgarinn verði frískur og ánægður, þegar hann sér dagsins ljós. Góði draumráðandi. Um daginn dreymdi mig hinn undarlegasta draum. Hann er svona: Ég þóttist sjá ungan mann, sem mér fannst vera ég. Hann var klædd- ur i hvitan kufl, með sítt hár, bjart og gáfulegt andlit, djúp, blá augu. í fylgd með honum var hár og þrekinn maður, klæddur í brúnan, hné- Framhald á bls. 32. RAKSTYKKI. Fitjið upp 57 <601 63 1. og prj. 2 sm. sléttprj. með hvitu garni, 6 umf. garðaprjón með ljósbláu garni og síð- an sléttprj. með hvítu garni sömu hæð og framstykki. Leggið stykkið til hliðar. Prjónið annað stykki eins, en á mótstæðan hátt, leggið Það einn- ig til hliðar. ERMAR. Fitjið upp 48 (50) 52 1. með hvítu garni á prj. nr. 2% og prj. 2 sm. sléttprj. og 6 umf. garðaprjón með ljósbláu garni. Prjónið nú sléttprjón með hvítu garni, eftir 3 sm. er aukin út 1 lykkja báðum megin á 1 sm. millibill, alls 11 (12) 13 sinnum. Leggið stykkið til hliðar. AXLARSTYKKI. Nú eru öll stykkln prjónuð saman. Byrjið á vinstra bakstykki, síðan aðra ermina, framstykkið, þá hina ermina og loks hægra bakstykki. Ef ekki eru nógu langir prjónar fyrir hendi er ágætt að prjóna (fram og til baka) á langan hringprjón, eða þá nokkra styttri prjóna, hnúð- lausa. Byrjið nú að prjóna og takið úr í hverri umferð frá réttu þannig að 2 1. eru teknar úr tvisvar á samskeytum bakstykkja og errna og framstykkis og erma. Fyrri 2 lykkjurnar eru prjónaðar sléttar sam- an, en seinni 2 lykkjurnar eru teknar saman þannig, takið l 1. óprj. fram af prjóninum, prjóniö næstu lykkju og steypið siðan óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu. E’ndurtakið nú þessai' úrtökur frá réttu 9 (10) 11 sinnum, og látið þær standast á. Nú er tekið úr þannig, prjónið 16 1. sl. og síðan 2 1. saman og 4 1. sl. tli skiptis þar til 16 1. eru eftir, þá eru þær prjónaðar sléttar. Prjónið 1 umf. brugðna til baka. Prjónið nú 6 umferðir garöaprjón með garða- prjóni. Haldið áfram að prjóna slétt- prjón mað hvítu garni. Eftir 2 (4) 6 umf. er byrjað að prjóna mynztrin með bláu garni. Athugið að byrja með 1 mynztur fyrir miðju. Takið úr um leið og fyrsta mynzt- urumferð er prjónuð þannig, að prjóna 2 1. saman við hvert mynztur að undanskildu iyrsta og seinasta mynztrinu. Ljúkið næstu 3 umferð- um og er þá lokið fyrstu mynztur- röðinni. Prjónið nú 6 (8) 10 umferðir með hvitu garni og síðan aðra mynztur- röð og er hún prjónuð án úrtöku. PrjÓnið 6 (8) 10 umferðir með hvitu garni. Síðan þriðju mynzturröð og takið úi' þannig að prjóna 2 1. saman við byrjun hvers mynzturs. Prjónið 6 (8) 10 umf. með hvítu garni. Prjónið fjórðu mynzturröð eins og þriðju og síðan 6 (8) 10 umf. með hvítu garni. Eftir seinustu mynzturumferðina eru prjónaðar 4 umf. og í þeirri þriðju af þessum fjórum er tekið úr þannig, prjónið 16 1. sl. og síðan 2 1. og 2 1. saman þar til 16 1. eru eftir, þá eru þær prjónaðar sléttar. Takið nú prjóna nr. 2 og prjóniö 6 umf. garðaprjón, með ljósbláu garni, síðan 4 umf. slét.tprjón með hvítu garni. Fellið laust af. Takið nú upp 62 (66) 70 1. með hvitu garni á prjóna nr. 2% á hægra bakstykki, miðju að aftan, frá háls- liningu niður að bláa kantinum að neðan og prjónið 2 sm. sléttprjón, feliið af. Þessi kantur er síðan brot- inn yfir á röngu og saumaður laus- lega niður með úrröktum ullarþræði. Takið nú vinstra bakstykki og tak- ið upp sama lykkjufjölda, prjónið og gangið frá á sama hátt og á hægra bakstykki. Saumið nú saman ermar- og hiiðar- sauma. Hvíti kanturinn að neðan er brotinn yfir á röngu og saumaður lauslega niður, einnig kantur á erm- um og hálslíningu. Saumið 3 hneppsl- ur á axlarstykki og festið tölur. +

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.