Veðrið - 01.09.1971, Blaðsíða 6

Veðrið - 01.09.1971, Blaðsíða 6
sjónarmið í þessum málum komi einkar vel fram í ályktun fundar norrænna veðurstofustjóra 1971, en þar segir m. a., (lauslega þýtt); „Fundurinn gerði sór á ný grein fyrir áhuga almennings og einkum þó ein- stakra atvinnugreina á veðurspám til talsvert lengri tíma en nú tíðkast. Lagði fundurinn í þessu sambandi áherzlu á, að tiilfræðilegt öryggi slíkra spáa yrði kannað gaumgæfilega, áður en liafin yrði útgáfa þeirra. Aðeins á þann hátt gætu notendur langtímaspáa gert sér fullnægjandi grein fyrir þvf, iivort þeir hefðu not fyrir slíkar spár, og einnig myndi það gera þeim kleift að liagnýta þær í áætlanagerð á sem raunhæfastan liátt. Varðandi þann hátt, sem liafður er á birtingu veðurspáa, var sá vandi rædd- ur, hvort reikna mætti með, að almenningur skildi, livað átt væri við með at- hugun á tölfræðilegu öryggi spánna. Fundurinn taldi þó, að jtetta væri ekki vandamál meðan einungis væri urn að ræða spár fyrir fáa daga, sent hvort eð er væru nokkuð öruggar. Hins vegar voru menn sammála um, að spár til mun lengri tíma en nú tíðkast, væru ennþá mjög óáreiðanlegar (at disse i dag hadde en meget lav treffsikkerhet), og að það gæti því haft alvarlegar afleiðingar að nota Jrær gagnrýnislaust. Fundurinn áleit einnig ástæðu til að ætla, að almenn birting opinberra stofnana á slíkum spám í fjölmiðlum, myndi leiða til þess, að ]>ær yrðu álitnar mun áreiðanlegri en Jjær eru í raun og veru (. . ville kunne gi disse varsler et preg av tilforlatelighet, som de langt fra hadde i dag).“ Fkki skal Jjví neitað, að líklega er j>að draumur flestra veðurfræðinga að geta með mikilli vissu sagt fyrir um veður langt fram í tímann. Er þiað }>ví að von- um, að víða er unnið að rannsóknum í þessu skyni, einkum á stórum stofnunum, }>ar sem rafreiknar gera kleift að kanna hlut flestra mikilvægra Jíátta í lieildar- myndinni. Áreiðanlega munu slíkar rannsóknir bera árangur áður en lýkur og gildistími veðurspáa J>ví smám saman lengjast. Rannsóknir og athuganir ein- stakra manna eru engu síður mikilvægar. Geta )>ær fært menn nær markmiðinu og skulu metnar að verðleikum. Eru athuganir Páls Berg{>órssonar J>ar síður en svo undanskildar. Tilgangur þessara hugleiðinga er einungis sá að vara við því, að spágleðin fari franr úr skynsamlegum mörkum. Séu slíkar spár birtar í fjöl- miðlum er mikil hætta á, að almenningur telji þær öruggari en efni standa til. Ymsir hafa ]>ó orðið til ]>ess að spyrja aðra veðurfræðinga álits á J>eim, og má líta á J>essar línur sem svar eins tir hópnum. Ritjregnir. Komin er út í safnritinu „The Zoology of Iceland" ritgerðin „The Climate and Weather of Iceland“ eftir Jón Eyjxirsson og Hlyn Sigtryggsson. Segir í for- mála, að Jón hafi hafið verkið, en því ekki verið lokið, er hann lézt í marz 1968. Að beiðni lians tók Hlynur J>á að sér að ljúka ]>ví. í ritgerðinni er fjallað um veðurfar og veðráttu á fslandi með nokkurri hliðsjón af dýralífi í landinu. Má J>ar finna töflur og kort, sem lýsa öllum helztu veðurþáttum, og einnig cr fjallað um skyld efni, svo sem hitasveiflur, hafís, jökla og ísaliig á vötnum og ám. Þarna er J>ví saman kominn í aðgengilegu fornii mikill fróðleikur um íslenzkt veðurfar. 42 ---- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.