Veðrið - 01.09.1971, Síða 10
1948, 24. fcbr. 1961 og 10. desember 1970. Verður nú gerð grein fyrir veðurfari
þessa daga með tilliti til mismunandi landslags og veðurfars svæðanna.
Veðrið 3.-5. marz 1948 er að flestu leyti mjög líkt einkennandi flóðaveðri eins
og lýst hefir verið hér að framan, tímabil sunnanáttar- og rigninga, sem hófst að-
faranótt 3. marz, fauk að kvöldi 4. marz, þegar kuldaskil fara austur yfir landið.
Það var þó sérstakt við veðurfarið að þessu sinni, að rétt um það bil, er sunnan-
straumurinn naði landinu sveigði hann allmikið til austurs, og varð því áttin
víða suðvestlæg í stað þess að vera suðlæg. Sérstaklega mun þessa hafa gætt í um
200 metra hæð og ofar. Af þessum sökum lá Þjórsársvæðið miklu opnara fyrir
regnáttinni en annars hefði orðið. Aðstæðurnar 10. desember 1970 voru mjög á
sama veg og hér er lýst.
Þann 24. febr. 1961 og dagana þar á undan er aðstaðan nokkuð önnur. Aðal-
einkennin eru að vísu hin sömu og áður, sterkt háþrýstisvæði ylir Vestur-Evrópu.
En yfir landinu er aðstaðan afbrigðileg. Eftir að skil hafa larið fram og til baka
yfir megnið af landinu milli austurs og vesturs, leggjast þau í stefnu frá Reykja-
nesskaga til Berufjarðar aðfaranótt 24. febr. og eru mjög skörp. Búast má við,
að vegna legu og hreyfinga skilanna hafi úrkoma í sambandi við þau verið mjög
mikil á Þjórsársvæðinu. Regnvarsins naut jtar ekki við slíkar aðstæður, heldur
var því líkast sem hitaskilin mynduðu aflíðandi fjallshlíð norðvestur eftir í fram-
haldi af Grænafjallgarði og Tungnaárfjöllum. Annarri mynd er ætlað að skýra
46 ---- VEÐRIÐ