Vikan


Vikan - 05.01.1961, Side 4

Vikan - 05.01.1961, Side 4
Eftir bandaríska blaðakonu, Jane Dallinger N NAN M URA Ýmsir brjóta heilann um það, hvort lífið innan múra kvennabúranna sé raunveru- Iega eins og því er lýst í sögum og sögnum frá Austurlöndum. I þessari grein getur lesandinn sjálfur gengið úr skugga um, hvernig því er háttað. Fimm vikur í kvennabúri voru mér fullnóg. Það varð að nægja, bví að herrann og hús- bóndinn var á heimleið. En í fjarveru Ahmeds A1 Yamans frá höll sinni, sem rís uppi í hæðadrögum Marokkós og er stranglega gætt af vopnuðum vörðum, hafði ég komizt í náin kynni við Þrjár eigin- konur hans. Ég hafði háð baráttu við „hið illa auga“ tortrygginna hjákvenna og kynnzt því, hvernig lífi kvenna í kvennabúri er varið. Og það var ómaksins vert og áhættunnar. Ég hef ferðazt mikið um furðulönd ævintýra- iífsins, siðan ég hætti skrifstofustörfum fyrir fjórum árum. Á þeim tima hef ég lifað innan um hausaveiðara í frumskógum Suður-Ame- ríku og snætt með þeim steikta maðka og soðn- ar slöngur. Ég hef stundað gimsteinagröft í Kólumbíu og kannað hinar lítt þekktu Galapagoseyjar. Hætturnar, sem ég lenti í á þessum ferðum, höfðu þó alls ekki orðið til þess að búa mig undir erfiðleika þá, er' mættu mér, þegar að því kom, að ég reyndi að fá inngöngu í kvennabúr. En þrautseigjan vann. Ég hafði tekið í mig að kynnast því, hvernig lífinu í kvennabúri væri háttað. Fyrstu drögin til þess lagði ég, þar sem ég er nú stödd, sem sé í Tanger. Það er dularfull borg með mjóturna, blæjum hjúp- aðar konur og karla, sem dansa magadans, — lífssvið með svo flókin og ótrúleg leikbrögð, að hvergi getur slikt á venjulegu leiksviði. Ég hafði hugsað mér að reyna þetta í Marokkó fyrir þá sök, að flest önnur lönd Múhameðs- manna loguðu i pólitískum erjum og sum höfðu bannað kvennabúr. En jafnvel í Marokkó virt- ust kvennabúrin hafa sokkið ofan í jörðina. Var um kennt flokki róttækra Múhameðsmanna, er vilja breyta þjóðháttum eftir vestrænum fyrirmyndum. Kvennabúr það, er ég heimsótti, átti rikur jarðeigandi um hálffimmtugt. Ég kalla hann Ahmed al Yaman. Hann átti þrjár eiginkonur og tólf hjákonur, sem ég mun einnig nefna dulnefnum. Það var ein eiginkvennanna, sem lét óskir mínar og drauma rætast. Ég kalla hana Azizu, sem er algengt arabískt nafn. Aziza fór leyniferðir til Tanger að hitta elsk- huga sinn, sem dansaði Þar á skemmtistað. Arabískur blaðamaður vissi um þessi stefnu- mót þeirra og fylgdi mér til skemmtistaðarins, sem var langt inni í gamla borgarhverfinu, Casbah. Við blaðamaðurinn og ég sátum fast við dansgólfið i daufri birtu. Ég var svo hepp- in, að Aziza kom þangað, meðan ég stóð við. Flestir gestanna reyktu pípur sinar og drukku ávaxtasaía, því að í Kóraninum er þeim bann- að að drekka áfengi. Sumir voru gengnir af trúnni og sátu með ölflöskur. Samræðuklið- urinn fyllti salinn. X-ogar blöktu á vaxkertum og vörpuðu hjákátlegum skuggum á veggina. Kona með andlitshjúp kom inn I salinn. Hún var klædd bláum kufli, sem náði niður á ökla. Það var gönguklæðnaður hennar. Augun voru stór, og á vinstri hönd hennar glampaði á geysistóran smaragð. Þetta var Aziza. En við urðum að bíða með að ná tali af henni, þar til Hafid hafði lokið dansi sínum. Hann var elskhugi hennar, sextán ára að aldri. Hans vegna lagði hún í þá tvisýnu að laumast út úr kvennabúrinu. Dansinum er naumast unnt að lýsa. Hafid var klæddur síðum buxum með demöntum skreyttu belti. Hann hnykkti sér og sneri með ýmsu móti og hreyfði magavöðvana eftir æs- andi hljóðfallinu. Gestirnir hrifust af hrynj- andi tóniistarinnar og tóku að klappa taktinn með lófunum, hærra og hærra. Eftir að dansi lauk, gekk blaðamaðurinn, vinur minn, til fundar við Azizu. Þegar hann kom aftur, hvislaði hann því að mér, að Aziza hefði fallizt á að lauma mér inn í kvenna- búrið. Abmad al Yaman var I orlofi I Cannes og ekki búizt við honum fyrr en eftir margar vikur. Ég hafði gert ráð fyrir að koma til kastala, þar sem Ahmed hefði konur sínar og hjákonur í haldi — gegn vilja þeirra. Það reyndist og rétt, að þrír stórir og sterkir varðmenn gættu þessarar fögru, márisku hallar. Byggingar- stillinn og hinar viðamiklu hurðir minntu mig á Þúsund og eina nótt. En innan við þær var spaugsemi, hlátur og hljómlist. Anziza kom til móts við mig og heilsaði mér á laukréttri spænsku og lélegri ensku. Ég hrós- aði henni fyrir málakunnáttu, en hún fræddi mig um, að allir Arabar væru góðir málamenn. E’r ég nú sá hana slæðulausa í fyrsta skipti, féll ég í stafi yfir fegurð hennar. Hún hafði dökk og tindrandi augu, nautnalegar varir og gljásvart hár. Ég spurði, hvernig hún ætlaði að útskýra komu mína. — Það er ekki ótítt, að kona eða hjákona bjóði vinum eða vandamönnum hingað til sín, — að þvi tilskildu, að það sé kvenfólk, svaraði hún og hló. — Ég ætla að segja, að þú sért vinkona móð- ur minnar. Hún er Evrópukona. Með því fæst skýring á, hvers vegna bláeyg kona skuli vera komin inn í kvennabúrið. Hún leiddi mig niður í garðinn. Þar sátu ungar, slæðulausar stúlkur umhverfis marm- aragosbrunn. Ein þeirra lék á gítar með þrem- ur strengjum. Stúlkurnar þyrptust um mig þegar i stað og skoðuðu mig með eftirvænting í augum. Sumar þeirra voru fyrirmannlegar á svip, aðrar hvers- dagslegri, en ósköp „sætar". Aðeins ein af öllum hópnum horfði á mig með hatur í augum. Hún hét Thorya, var frjórtán ára, ættuð ofan úr f jallahéruðunum. Ég komst brá.tt að ástæðunni. EIGINKONUR Ammeds þrjár voru hver annari ólíkar. Fyrsta kona hans, Raria, var 27 ára

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.