Vikan


Vikan - 05.01.1961, Side 33

Vikan - 05.01.1961, Side 33
Steiktur fiskur í ofni Framhald af bls. 16. Fiskhringur m/sósu. 400 gr. hakkaður fiskur, 1—2 tesk. salt, 2 matsk. bráðið smjör, 1 dl. hveiti eða heil- hveiti, 1 egg og 1 eggjahvíta, 3—5 dl. mjólk. Fiskurinn er hakkaður 2—4 sinnum með saltinu. Hrærður vel með smjöri, hveiti, eggjum og mjólkinni, sem er látin smátt og smátt út í ca. % dl. i einu. (Athugið bragð og þéttleika deigsins með því að sjóða eina bollu). Mótið er smurt og brauðmylsnu stráð í það. Deigið látið i og það má ekki fylla meira en % hluta mótsins. Smjör- pappír bleyttur og bundinn yfir. Soðið í vatnsbaði um það bil 45 mín. Borin fram með soðnum kartöflum og sósu t.d. rcelcju, karry, sítrónu eóa tómat- sósu. Rækjusósa. 3 dl. fisksoð, 2 matsk. hveiti 4- 1 dl. vatn 1-—2 matsk. smjör, 1 eggjarauða salt 1 matsk. rjómi rækjur. Soðið er jafnað með hveitijafningi. Smjörinu bætt í Eggjarauðurnar hrærðar með örlitlu salti og rjóma. Sósunni jafnað smátt og smátt þar í. Rækjurnar sem áður eru hitaðar yfir gufu látnar út i. Kryddað eftir smekk. Fiskikökur. % kg beinlaus fiskur, 100 gr beinlaust feitt saltkjöt, 2 hráar meðalstórar kartöflur, 1 egg, 1 dl mjólk, 1 tesk. salt (pipar), 4 msk. brauðmylsna, 50 gr smjör- liki, 2 dl fisksoð, 1 dl rjómabland, 3 msk. tómatkraftur. Fiskur, kjöt, salt og pipar er sax- að í söxunarvél. Kartöflurnar eru saxaðar með í seinna skiptið. Egginu hrært saman við ásamt mjólkinni smátt og smátt. Úr deiginu eru mótað- ar flatar kökur, sem er velt úr brauð- mylsnu og brúnaðar í smjörlíkinu ca. 5 mínútur á hvorri hlið. Rjóma, fisk- soði og tómatkrafti er hellt á pönn- una og bollurnar soðnar við hægan hita í nokkrar minútur. Bornar fram með soðnum kartöflum. Blaðið sern húðin finnur ekki fyrir Gillette hefir gert nýja uppgötvun, sem stóreykur pægindin við raksturinn. t’að er nýtt rakblað með ótrúlegum raksturseiginleikum. Skeggið hverfur án pess að pér vitið af. fegar notað er Blátt Gillette Extra rakblað má naumast trúa pví að nokkuð blað hafi verið í rakvélinni. 5 blöð aðeins Kr. 18.50. gólfið bónað. þér verðið að reyna það ® Gillcilc er skrásett vörumerki VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.