Vikan


Vikan - 24.08.1961, Blaðsíða 31

Vikan - 24.08.1961, Blaðsíða 31
'koma henni alveg úr jafnvægi. „Nei, ekki kyssa mig, nei, nei.“ Hún finn- Ur, að hún meinar ekki það, sem hún segir, og þess vegna hættir hún viS að banna honum að kyssa sig á hálsinn og eyrað. Stuttur andar- dráttur hans og hvíslandi ástarorð hljóma eins og i fjarska. Hún legg- ur höndina eins og ósjálfrátt um háls hans og dregur hann að sér niður i sófann. Hendur hans leita um brjóst hennar og niður mjaðm- irnar. Og hún finnur unað seitla um sig alla. Hjartað hamast og berst i brjósti hennar, og henni finnst það muni springa út þá og þegar. „Bergur.“ Niðurbældur tilfinn- ingaþorsti hennar brýzt nú fram og losar öll höft. Henni finnst um- hverfið dragast saman og taka að snúast, hring eftir hring, svo að hún verður þreytt í höfðinu, lokar augunum og endurgeldur honum kossana. Skyndilega hljómar hringing um alla ibúðina. Þau hendast hvort frá öðru, eins og eldingu hafi slegið niður i milli þeirra. Kristín sezt upp og reynir að laga hárið og föt- in eins og bezt hún getur. Bergur hendist fram á gólfið og rennir greiðu i gegnum úfinn lubbann og bölvar hroðalega. — „Hver er þetta?“ Kristín er hræðslan uppmáluð. „Ég veit það andskotann ekki, kon- an þin?“ „Ha? Nei, þremillinn hafi það, það getur ekki verið. Hún fór suður i fjörð til mömmu sinnar og sefur þar í nótt eða ætlaði það að minnsta kosti.“ „Hvað á ég að gera?“ Hún sprett- ur upp af sófanum. Löng, óþolinmóð Hcntugt.... og smckklcgi Hvftlr sloppar fyrir verzl- unarfólk og starfslið sjúkrahúsa. Bómullarskyrtur fyrir íþrótta- og ferðafólk, mansjettskyrtur. Vasaklútar kvenna og karla úr maco- og bóm- uilarefnum, auk þess tyrknesk handklæði. Mislit kjólaefni. Framboð vefnaðarvara frá verksmiðjum þýzka Al- þýðulýðveldisins er furðu fjölskrúðugt. Þér ættuð að sjá með eigin augum hve úrval okkar er mikið. DEUTSCHER IHNCN - UNDAUSSEHHANDEL T £ X T I L BERLINWO BtHRCNSTfiASSC 46 □ EUTSCHE DEMOCRATI S]C H E REPUBLIK „Það er sama í hvaða tízkublað er litið, alls staðar ber mest á skyrtu'peysum, bæði á karla og konur, og þess vegna teljum við.. BURLEY —STYLE PEYSU HAUSTSINS Á KARLMENN G. BÉRGMANN LAUFÁSVEGUR 16 — SÍMI 18970 hringing bergmálar aftur um íbúð- ina. — „Bergur, Bergur, hvað eigum við að gera?“ Kristín stendur um- komulaus á miðju gólfinu og horfir skelfd á Berg ráðalausan á skyrt- unni með stóran varalitsblett á flibbanum. „Svalirnar.“ Bergur næstum skyrpir orðinu út úr sér. „Svalirn- ar, — svalirnar, manneskja.“ Hann þrífur kápuna hennar, treður henni í fang Kristínar og ýtir henni ó- þolinmóðlega út á svalirnar og lok- ar á eftir henni. Svo tekur hann glösin og öskubakkann og setur inn í skáp, meðan látlaus hringing sker innan á honum eyrun. „Já, já, ég er að koma. Hvaða ó- sköp ganga á? Um leið og hann fer fram á ganginn, lítur hann yfir stof- una til að athuga, hvort allt sé nú eins og það á að vera, fer i slopp, og með kveljandi hjartslátt opnar hann dyrnar fram á gang. Framan við dyrnar stendur taugaóstyrkur maður í snjáðum poplinfrakka með hattkúf í hendinni. „Fyrirgefið, en eruð þér Bergur Jónsson?“ Skyndilega brýzt allur ótti Bcrgs fram í ógurlegri illsku. „Já, hvað viljið þér? Vitið þér, hvað klukkan er? Rífið mann upp um miðja nótt.“ „Eigið þér Dodge-bifreiðina hér framan við húsið?“ Maðurinn læzt ekki heyra hamaganginn i Bergi. „Já, er það ekki allt í lagi?“ Þolin- mæði Bcrgs er nú alveg á þrolum. „Ja, ekki beinlinis, mér varð það nefnilega á að keyra utan í framskít- brettið á bílnum.“ Bergur slappast nú algjörlega af, brosir vinalega framan í manninn. — „Það var gott, vinur. Ég hélt nefni- lega, að þetta væri kon ... Ég á við, ég hélt, að það væri eitthvað alvar- legt“. Hann klappar kumpánlega á öxl mannsins. „Komið bara á morg- un, og við getum rætt um þetta þá. Þér getið ekki trúað því, hversu glaður ég er.“ Hann hlær, um leið og hann lokar dyrunum á forviða manninn. Svo flýtir hann sér inn til að losa Kristínu úr fangavistinni og bæta henni þann tíma, sem hún hafði orðið að dúsa úti á svölunum. ENDIR. vikan 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.