Vikan - 24.08.1961, Blaðsíða 33
/
í hjarta borgarinnar mettuðu
sögulegum minningum liðinna
alda — er NAUST.
Innan veggja — sem gamalt skip
með viðarmiklum siglutrjám
horfinna skipa — Gömlum
skipsklukkum — og veðruðum
súðarþiljum. Hið sérstæða and-
rúmsloft staðarins laðar til sín
jafn unga sem aldna og í hálf-
rökkri hins stórbrotna umhverf-
is, njótið þér þeirra sjaldgæfu
þæginda sem ljúffengir réttir
og fullkomin þjónusta veitir
yður.
Þannig er NAUST.
Arfur frá Brasilíu.
Framhald af bls. 21.
hún ásakandi, og hann gat ekki borið
á móti því.
ALLT MUN FARA ÁGÆTLEGA.
— Það er alls ekki meiningin, að
ég vilji valda þér áhyggjum, sagði
Mikki. — Eins og þú getur skilið,
þá getur ekki liðið á löngu, að við
förum að græða peninga, — að vísu
sennilega ekki eins mikið fé og við
höfðum gert okkur vonir um, — en
nóg til þess, að við getum látið okkur
líða sómasamlega. Þetta er dásamlegt
iand, bsetti hann við með hrifningu.
— Og Monte Paraiso verður fullboð-
legt gistihús að nokkrum árum liðn-
um. 1 rauninni er það fullboðlegl nú
þegar, ■— en- þú hefðir átt að sjá,
hvernig umhorfs var, þegar við kom-
um. . . . En það var ef til vill hyggi-
legast að lýsa þvi ekki nákvæmlega,
hugsaði hann, þar sem hann hafði
ekki gert það í bréfum sínum.
Og þess í stað sagði hann: — Gisti-
húsið er upprunalega gamalt óðals-
setur frá landnámstímunum. Og um-
hverfið, . . . nei, þú átt eftir að sjá
það eigin augum. Terens var nógu
glöggskyggn til að sjá, hvilíkir mögu-
leikar voru við staðinn bundnir, en
hann hafði ekki dugnað til að gera
drauma sína að veruleika. E'n það hef
ég aftur á móti, sagði Mikki, og það
var auðheyrt, að það var sannfæring
hans. — Það er ýmislegt, sem ég er
staðráðinn í að hrinda i framkvæmd,
en það getur að sjálfsögðu ekki orðið
nema smátt og smátt, eftir þvi sem
okkur aukast efni. Og við erum strax
farin að græða peninga. — Fyrsti
dvalargesturinn kom í vikunni sem
leið, áður en við höfðum sett auglýs-
inguna i blöðin, og við megum áreið-
anlega búast við fleirum. Ég þarf að
koma við í pósthúsinu í Nova Fri-
burgo og aðgæta, hvort ekki hafa
borizt fyrirspurnir.
Þegar Beryl heyrði hrifninguna í
rödd hans, tók henni að renna mesta
reiðin. Kannski var þetta ekki eins
afleitt og hún gerði sér í hugarlund.
— Ég skil bara ekki, hvers vegna
þú skrifaðir r.:ér ekki þetta, maldaði
hún i móinn.
Mikki brosti daufu brosi. — Þetta
urðu okkur öllum mikil vonbrigði,
og ég vildi ekki verða til Þess að draga
úr þér kjark. Ég hugsáði sem svo, að
ef þú bara kæmir hingað og dveldist
hérna í nokkra mánuði, eins og um
var talað, þá mundi þér falla staður-
inn vel í geð, áður en lyki. Og svo
flýtti hann sér að bæta við. — Það
gerði líka strik í reikninginn, að Þú
komst tveimur mánuðum áður en um-
talað var í fyrstu.
—■ En það skrifaði ég þér, og fyrst
því bréfi seinkaði, hefðir þú að
minnsta kosti getað talað við mig í
sima eða sent mér skeyti. Og róm-
ur hennar var enn ásakandi.
Mikki var að örvæntingu kominn.
INSTANT TAN
meö vitamin D
SNyRTlVÖRUR H.f.
Box 834. — Sími 17177.
Þessi kristaltæri vökvi fer nú
sem eldur í sinu um allan heim.
Hvers vegna? Vegna þess að
þcr berið hann á yður að kvöldi
liJ, og að niorgni, þegar þér
vaknið, eruð þér orðin sólbrún,
tins og þér liafið legið á bað-
slrönd, svo dögum sltiplir. Flýt-
ir einnig fyrir að lniðin verði
brún ef legið er í sólbaði.
Notkunarregiur:
Berið á yður i upþhafi, Bsvar
sinnum, með klukkustundar
ntillibili, að kvöldi til. Það tek-
ttr um það bil 0 tíma þar lil
ltörundið cr orðið brúnt. Nauð-
synlegt er að þvo sér utn hend-
urnar eftir að búið er að bera
á sig.
Til að ltalda við liinutn eðli-
lega biúna lil, setn þér ltafið
fengið, nægir að Itera á sig
tíinu sinni að tnorgni, svo Jengi
sem óskað er.
f.átið eklvi ltjá líða að kaupa
yður glas af þessum ttndravökva
trax i dag og sannfærast um
hæfileika bans. Er algerlega
skaölaust fvrir húðina.
Kæst í flcstum snyrtivöru- og
lyfjaverzlunum um allt land.
vikan 3 3